Gerðir kirkjuþings - 2006, Síða 47
2. mál
Fjármál Þjóðkirkjunnar
Flutt af Kirkjuráði
Frsm. Jóhann E. Bjömsson
Helstu þœttir til umræðu og ályktunar
Heildartekjur Þjóðkirkjunnar árið 2007 em áætlaðar 3.838,8 m.kr. að frádregnum 67,6
m.kr. sértekjum sem kirkjunni er ætlað að afla. Greiðslur vegna kirkjugarða árið 2007
eru áætlaðar 794,1 m.kr. Áætlaðar tekjur Þjóðkirkjunnar hækka um 335,2 m.kr. milli
áranna 2006 og 2007 en hækkunin er 379,8 m.kr. ef greiðslur til kirkjugarða eru taldar
með. Sérframlag til Hallgrímskirkju að fjárhæð 12,4 m.kr. vegna viðgerða á tumi er
veitt til næstu sex ára eða samtals um 74 m.kr. Heildarkostnaður er áætlaður um 222
m.kr. og er gert ráð fyrir að ríki, Reykjavíkurborg og Þjóðkirkjan styrki framkvæmdina
að jöfiiu. Stofhkostnaðarframlag til Skálholts er 10,8 m.kr. og hækkar um 5,4 m.kr. ffá
fyrra ári. Þar af em 6 m.kr. sem er fyrsta greiðsla sem heitið er að veitt verði árlega á
næstu 8 ámm í samræmi við ákvörðun ríkisstjómar um að styrkja nýbyggingu í
Skálholti. Þá er tímabundið framlag til Dómkirkjunnar vegna anddyris safnaðarheimilis
að fjárhæð 5 m.kr. fellt niður og einnig 3 m.kr. til byggingar aðstöðuhúss við
Þingeyraklausturskirkju. Eins og undanfarin ár kemur sérstakt ffamlag að fjárhæð 7,1
m.kr. til að standa undir kostnaði við sérþjónustuprest vegna áfengis- og
vímuefhavandans.
Á árinu 2006 hækkuðu greiðslur vegna sóknargjalda og greiðslur í Jöfiiunarsjóð og
Kirkjumálasjóð um 8,6% í samræmi við hækkun á meðaltekjuskattsstofni milli
tekjuáranna 2004 og 2005. Sóknargjald árið 2006 er 1.661,6 m.kr. Greiðslur til
kirkjugarða miðast við fjölda greftrana næstliðins árs og stærð kirkjugarða.
Skil sóknargjalda til Þjóðkirkjunnar 2007 hækka sem nemur 13,8% eða um 223 m.kr.
frá fjárlögum 2006. Hækkunin er í samræmi við áætlaða hækkun á meðaltekju-
skattstofrd einstaklinga í Þjóðkirkjunni 16 ára og eldri milli tekjuáranna 2005 og 2006.
Hækkun vegna kirkjugarða nemur 5,9% eða 44,6 m.kr.
Biskupsstofa
I forsendum fj árlagafrumvarps fyrir árið 2007 er reiknað með að rekstrarútgjöld hækki
um 4,5% frá fyrra ári. Framlag til Biskups íslands er 1.315 m.kr. að frádregnum
sértekjum og hækkar um 1,9% milli ára. Nánari athugun á samræmi milli niðurstaðna í
reiknilíkani á grundvelli samnings ríkis og kirkju og reikniforsendna
fjárlagaffumvarpsins stendur yfir. Þá á eftir að taka tillit til úrskurðar kjararáðs um laun
presta og prófasta frá 4. október sl. Því kunna að verða breytingar á ffamlaginu við
aðra umræðu fjárlagafrumvarps 2007.
I rekstraráætlun Þjóðkirkjunnar fyrir árið 2005 var gert ráð fyrir að halli yrði um 5 m.kr.
og var þá reiknað með að afgangur fjárheimildar frá árinu 2004 mætti tapinu. Reyndin
var að halli á rekstri var um 16,3 m.kr. Áætlaðar tekjur voru hærri sem nemur 8,1% en
áætluð gjöld hærri sem nemur 9%. Skýrist það að mestu að fleiri samstarfssamningar
45