Gerðir kirkjuþings - 2006, Side 54
Skammtímaskuldir sjóðsins eru nú 17,2 millj. kr. og hafa þær hækkað á árinu 2005 um
3,5 millj. kr. sem stafar af því að bókfærðar eru ógreiddar greiðslur vegna uppgjöra við
presta og yfirtekinna skulda við prestaskipti sem til greiðslu komu í byrjun árs 2006.
Bókfærður tekjuafgangur Prestssetrasjóðs á starfsárinu 2005 stafar fyrst og fremst af
auknum óreglulegu tekjum sjóðsins sem ekki var gert ráð fyrir á árinu. Einnig verður að
geta þess að fresta hefur þurft nokkrum stórum framkvæmdum sökum þess að ekki hafa
fengist iðnaðarmenn til starfa eða að tilboðum hefur ekki verið tekið sökum þess hvað
þau hafa verið há. Má þar t.d. nefna að áætluð bygging vélageymslu á Valþjófsstað var
frestað vegna þess hve tilboð í verkið var hátt.
Hækkun launakostnaðar milli áranna 2004 og 2005 var skv. umsömdum ákvæðum
kjarasamninga. Starfsmenn og stjóm sjóðsins eru á sömu launum og fólk með
sambærilega menntun og störf innan kirkjunnar.
Eins og undanfarin ár er enn vonast til að handan homsins séu samningar við ríkið um
prestssetrin, en það er gömul saga og ný að ljóst má vera að við stofiiun Prestssetrasjóðs
á sínum tíma var starfsemi hans og umfang verulega vanmetið og ástand prestssetra
ofmetið.
Tekjur og gjöld Prestssetrasjóðs em eins og meðf. töflur og myndir sýna (uppl. úr
ársreikningi 2005).
Fymingarsjóður prestssetra
Hvert prestssetur er sérstök og sjálfstæð rekstrareining. Hveiju prestssetri tilheyrir s.k.
fymmgarsjóður (viðhaldssjóður) er varðveitist í Prestssetrasjóði og stjóm sjóðsins
stýrir. Ur fymingarsjóði hvers prestsseturs er greiddur kostnaður vegna prestssetursins,
svo sem vegna nýframkvæmda og endurbóta ásamt tryggingum vegna þeirra, svo og
annar tilfallandi kostnaður.
I fymmgarsjóð greiðast tekjur af hlunnindum viðkomandi prestsseturs (skv. ákvæðum í
samþykktum starfsreglum sjóðsins), húsaleiga og aðrar tekjur sem stjóm sjóðsins fer
með og bókfærður er hjá hveiju prestssetri.
Fymingarsjóður hvers prestsseturs er bókfærður í bókhaldi sjóðsins, þannig að fyrir
liggur árlega tekjufærsla og gjöld með öllum áföllnum kostnaði við rekstur þess, ásamt
tekjum og gjöldum prestsseturs sem hefur verið lagt niður en nýtur þjónustuskyldu.
Fymingarsjóður prestssetra er yfirfarin og bókfærður hjá Ríkisendurskoðun ár hvert og
er aðgengilegur í bókhaldi Biskupsstofu, hjá Prestssetrasjóði og á Kirkjuþingi hveiju
sinni.
Meiriháttar viðhald prestssetra
Stærsti gjaldaþáttur Prestssetrasjóðs á hveiju ári em framkvæmdir við viðhald og
endumýjun prestssetra og útihúsa, þar sem það á við, ásamt rekstri þeirra. Nemur þetta
sem svarar um 60% af útgjöldum sjóðsins á ári hveiju. Sé fjármagnskostnaður og
52