Gerðir kirkjuþings - 2006, Qupperneq 55
afborganir af eldri lánum vegna ffamkvæmda tekin með þá nema útgjöld sjóðsins á
árinu 2005 vegna þessara liða samtals um 78% af útgjöldum hans.
Alls eru prestssetur í umsjón sjóðsins 85 talsins, sem skiptast í 39 prestssetursjarðir og
46 prestsbústaði í bæ. Er því að mörgu að hyggja þegar hugað er að viðhaldi þeirra.
Meðalaldur íbúðahúsa, sem eru í eigu eða umsjón Prestssetrasjóðs er um 46 ár
(byggingarár 1960). Elsta íbúðarhúsið er skxáð byggt 1923 en það yngsta er ffá 2003.
Af þeim 39 jörðum sem eru í umsjón sjóðsins eru 31 setnar prestum en 8 jarðir eru
leigðar öðrum.
Meðalstærð íbúðarhúsa er 216 m2 og sé tekið mið af meðalbyggingarkostnaði slíks húss
þá gæti það kostað um 35,6 millj. kr. nýtt. Nýbyggingarverð allra íbúðarhúsa í umsjón
Prestssetrasjóðs gæti því numið um 3.200 millj. kr. Samkvæmt viðmiðunartölum
kannana er viðhaldskostnaður áætlaður 1-5% af nýbyggingarkostnaði, og þyrfti þá
þyrfti á milli 31,7 millj. kr. og 158,6 millj. kr. í viðhald og endurbætur árlega vegna
íbúðarhúsa í umsjón sjóðsins og er þá annar tilfallandi kostnaður (t.d. bílgeymslur og
lóðir) ótalinn. Mikið hefur verið unnið að viðhaldi á prestsetrum undanfarin ár og því
eru mörg þeirra, sem betur fer, í ágætu ásigkomulagi. Ástand prestssetra er þó enn
nokkuð misjafnt og forgangsraða þarf viðhaldsverkefnum og byggingarffamkvæmdum.
Á árinu 2005 námu útgjöld til viðhalds nánast sömu upphæð og á árinu áður. Eins og
árið áður hefur Prestssetrasjóður ekki farið varhluta af þeirri ffamkvæmdagleði (þenslu)
sem er í þjóðfélaginu nú. Hefur oft verið erfitt, eða jafnvel ómögulegt, að fá
iðnaðarmenn til viðhalds- og byggingarstarfa fyrir sjóðinn auk þess sem tilboð í verk
hafa verið há. Er það m.a. ein af ástæðum þess að útgjöld vegna viðhalds- og
byggingarframkvæmda hafa verið minni en ráð var fyrir gert á árinu. Þau verkefiii og
fjármunir til þeirra bíða til næsta ársins.
í viðhaldi prestssetra hefur það ætíð haft forgang að fara í þær viðgerðir á skemmdum
sem geta valdið varanlegu eða meiriháttar tjóni á prestssetrinu. Viðgerðir á útveggjum,
gluggum og þaki ásamt lagnakerfi hafa vegið þar þyngst. Einnig hefur eðlilegu viðhaldi
innanhúss verið sinnt eftir því sem efiii og aðstæður hafa leyft. Heildarkostnaður vegna
viðhalds á árinu 2005 nam um 42 millj. kr., sem skiptast nánast jafiit milli verkþátta að
utan og innan. Á starfsárinu hefur, eins og undanfarin ár, verið haldið áfram þeirri
stefiiu sem var mörkuð í viðhaldsmálum prestssetra.
Stöðugt er lögð áhersla á að stjóm sjóðsins ásamt framkvæmdastjóra hafi gott eftirlit
með framkvæmdum, þannig að verkáætlanir standist. Starfsmenn sjóðsins leggja fýrir
hvem stjómarfund skýrslur varðandi viðhaldsþörf og þau verkefni sem em í vinnslu
hveiju sinni.
Heimasíða Prestssetrasjóðs
A heimasíðu sjóðsins em upplýsingar um starfsemi hans, starfsmenn og stjóm. Þar er
einnig að finna upplýsingar um starfsreglur, lög er varða starfsemi sjóðsins og
vinnureglur stjómar, ársskýrslur fýrri ára og nýjar fundargerðir stjómar, ásamt
53