Gerðir kirkjuþings - 2006, Side 56
upplýsingum og myndum af prestssetrum sem eru í umsjón prestssetrasjóðs.
Fróðleikur um prestssetur fyrr og nú er einnig aðgengilegur á heimasíðunni.
Eins og gefur að skilja þá verður þessi heimasíða í stöðugri mótun og því í raun aldrei
lokið. Slóð hennar er: http://kirkjan.is/prestssetrasjodur/
Öll skjöl sjóðsins og fundargerðir stjómar em geymd á innra tölvuneti biskupsstofu eins
og reglur segja til um og eru þar aðgengileg þeim sem réttindi hafa til þess að skoða.
Starfsreglur Prestssetrasjóðs
Á Kirkjuþingi 2005 vom til umfjöllunar tvær breytingar á starfsreglum Prestssetrasjóðs
nr. 826/200 og til umræðu komu reglur stjómar um meðferð hlunninda á
prestssetursjörðum. Tillögum þessum var vísað til stjómar sjóðsins til nánari
umfjöllunar og ákvörðunartöku. Þeim tilmælum var beint til stjómar að fara yfir
starfsreglur sjóðsins og vinna nýjar tillögur, með það að markmiði að starfsreglumar
“verði skýrari”. Stjóm sjóðsins hefur tekið starfsreglumar í heild til endurskoðunar í
samráði við Kirkjuráð og liggja þær fýrir sem sérstakt mál á þinginu.
í drögum að nýjum starfsreglunum er tekið á hlunnindum prestssetursjarða í ljósi nýrra
ábúðar- og jarðalaga svo og fleiri breytinga í reglu- og lagaumhverfi þessa málaflokks.
Af þeim 39 jörðum sem em í umsjón Prestssetrasjóðs hafa nánast allar einhver
hlunnindi sem metin em til fasteignamats svo sem lax- og silungsveiði, æðarvarp, reki,
jarðhiti o.fl. Samtals em þessu hlunnindi metin til um 120 millj. kr. skv. fasteignamati í
lok ársins 2005. Einnig em nokkrar jarðir með hlunnindi sem ekki em metin til
fasteignamats, eins og greiðslumark sauðfjár (mjólkur) og hreindýraarð. Á síðasta
Kirkjuþingi og á undanfomum árum hefur verið nokkur umræða um hvemig fara skuli
með slík hlunnindi þ.e. hvort arður af þeim skuli allur renna til sitjandi presta á
prestsetursjörðum, eða ganga til viðhalds og endurbóta á prestssetursjörðum.
Niðurstaða þessarar umræðu liggur enn ekki fyrir, en þó þykir ljóst að meginreglan
verði sú að arður af hlunnindum prestssetra, sem félög, hagsmunasamtök eða stofnanir
stýra og greiða, svo sem af lax- og silungsveiði, hreindýraveiðum, lóðarleigu eða öðm
sambærilegu, er til viðhalds og endurbóta viðkomandi prestsseturs (renni í
fymingarsjóð), enda sé þá tekið tillit til þess við ákvörðim afgjalds af jörðinni. Af
öðrum verðmætum, sem ekki era talin til fasteignamats, en umráðamaður nýtir í eigin
þágu á prestssetrinu, svo sem greiðslumark sauðfjár/mjólkur í eigu viðkomandi
prestsseturs, o.fl. sambærilegar tekjur, skal hann greiða sérstaka leigu.
Samskipti sjóðsins við presta á jörðum þar sem tekjur era af hlunnindum fara eftir
gildandi lögum og reglum, en eðlilega er tekið tillit til þess sem hér að ofan greinir.
Stjóm Prestssetrasjóðs og umráðamaður prestssetursjarðar gera við prestaskipti með sér
sérstakt samkomulag um nýtingu, gæslu og varðveislu hlunninda, eftir því sem við á
hverju sinni og er það fylgiskjal með haldsbréfi. Umráðamenn prestssetursjarða sem
hafa haldsbréf, munu halda áfram öllum sínum réttindum til arðs af hlunnindum sem
þeir hafa nú.
54