Gerðir kirkjuþings - 2006, Page 62
kirkna nr. 22 16. nóvember 1907
c) úttekt á prestssetri við starfslok sóknarprests og við afhendingu prestsseturs til
viðtakandi sóknarprests eða prestssetrasjóðs sbr. lög um prestssetur nr. 137/1993
d) úttekt á prestssetri þegar gagngerðar endurbætur hafa farið fram eða þegar þess er
óskað af lögbærum aðilum sbr. lög um prestssetur nr. 137/1993
e) úttekt á bókasafni prestakalls, sbr. lög nr. 17/1931
f) úttekt á kirkju, sem lögð er niður eða réttarstöðu hennar er breytt.
20. gr. Prófastur hefur tilsjón með prestssetrum, kirkjum, kirkjueignum og
kirkjugörðum og grafreitum. í eftirlitsskyldu prófasts felst að hann gætir þess að réttindi
gangi ekki undan, að umgengni sé góð og að rekstur og öll meðferð og afnot eigna séu
við hæfi og samkvæmt lögum og reglum. Prófastur beitir sér fyrir því að hlutaðeigandi
vörslumaður eða umráðandi bæti úr ef annmarkar þykja vera á meðferð réttinda og
eigna samkvæmt framanskráðu. Ef tilmælum prófasts er ekki sinnt sendir prófastur
hlutaðeigandi stjómvöldum eða biskupi málið til úrlausnar.
21. gr. Prófastur vísiterar prestaköll, söfiiuði, kirkjur, kapellur, kirkjugarða og grafreiti
reglubundið. Við skipulag vísitasía sinna gætir prófastur samræmis við ákvörðun
biskupafundar um skipulag á vísitasíum biskups íslands og vígslubiskupa. Prófastur
vísiterar og þegar þess er óskað svo sem vegna meiri háttar ffamkvæmda á vegum
safiiaða eða vegna sérstakra viðburða svo sem kirkjuhátíða. Prófastur heldur
vísitasíubók sem varðveitir kirkjulýsingar og munaskrá og sendir biskupi endurrit úr
henni að lokinni vísitasíu sem og fundargerðir.
22. gr. A vísitasíum skal prófastur annast eftirlit með kirkjum og eignum hennar,
kapellum, kirkjugörðum, grafreitum og prestssetmm, sbr. 19. gr. og geta um ástand
þeirra. Prófastur skal kanna kirkjusókn, helgihald, sálgæslu, kærleiksþjónustu, bama-
og æskulýðsstarf, fræðslumál og annað safnaðarstarf. Hann skal kanna samskipti presta,
sóknamefnda, starfsfólks og safiiaðar. Hann skal hafa eftirlit með því að
prestsþjónustubækur og gjörðabækur sóknanefnda séu samviskusamlega færðar.
Prófastur skal styðja sérstaklega þá aðila, sem getið er í 3. mgr., í þjónustu sinni og
safiiaðarstarfi. Hann skal veita þeim leiðsögn og hvatningu og leiðbeina um góða
starfshætti. Prófastur annast um að misfellum í þeim efnum, sem getið er í 1.-4. mgr.,
sé komið í rétt horf og gera biskupi viðvart ef tilefni er til.
23. gr. Prófastur veitir kirkjustjóminni umsögn um tiltekin málefni ef óskað er eða
vekur athygli kirkjustjómar á málefiii að eigin frumkvæði telji hann það nauðsynlegt,
þ.m.t. mál er varða almennt framtíðarskipulag kirkjustarfs.
24. gr. Prófastur hefur þá stjómsýslu á hendi sem kveðið er á um í lögum um bókasöfn
prestakalla nr. 17/1931.
25. gr. Prófastur áritar þær bækur sem hér greinir:
a) bók undir bókaskrá prestakalls sbr. lög um bókasöfh prestakalla nr. 17/1931
b) gerðabók sóknamefiida og safiiaðarfunda, sbr. starfsreglur um sóknamefndir.
60