Gerðir kirkjuþings - 2006, Page 66
9. mál
Starfsreglur um biskupafund
Flutt af Kirkjuráði
Frsm. Halldór Gunnarsson
1. gr. Biskup íslands boðar vígslubiskupa til biskupafundar, sbr. 19. gr. laga um stöðu,
stjóm og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997 og stýrir honum.
2. gr. Biskupafundur er haldinn ársijórðungslega og oftar ef þurfa þykir.
3. gr. Biskupafundur fjallar um málefni sem lög, starfsreglur, ályktanir og samþykktir
kveða á um varðandi trú og kenningu kirkjunnar, helgisiði og helgihald. Biskupafundur
býr mál er varða trú, kenningu, helgisiði og helgihald í hendur Kirkjuþings sbr. 20. gr.
laga 78/1997.
4. gr. Biskupafundur er haldinn til samráðs um biskupsþjónustuna og upplýsinga um
málefhi kirkju og kristni.
Biskupafundur skipuleggur vísitasíur biskups íslands og vígslubiskupa og gerir
samræmda áætlun um þær.
5. gr. Biskupafundur endurskoðar árlega skipan sókna, prestakalla og prófastsdæma.
Biskupafundur gerir tillögur um þau efiii á grundvelli gildandi laga og starfsreglna,
þingsályktana og stefhumörkunar Kirkjuþings og býr mál er varða breytingar í þeim
efiium í hendur Kirkjuþings. Biskupafundur fjallar auk þess um allar tillögur um þessi
efiii sem kunna að berast og býr þær til flutnings á Kirkjuþingi eftir því sem málavextir
gefa tilefhi til og greinir Kirkjuþingi ffá málsmeðferð. .
6. gr. Starfsreglur þessar sem settar eru á grundvelli 19. gr. og 59. gr. laga um stöðu,
stjóm og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997 öðlast gildi 1. janúar 2007.
Jafnfi'amt falla brott starfsreglur um biskupafund nr. 822/2000 frá sama tíma.
64