Gerðir kirkjuþings - 2006, Page 73
prestssetranna í framhaldinu. Viðræður hafa staðið yfir síðan með hléum. Árið 2002
lagði ríkið fram tilboð sem Kirkjuþing taldi ekki unnt að fallast á.
Á Kirkjuþingi 2005 var samþykkt að fela Kirkjuráði, í samráði við stjóm
Prestssetrasjóðs, að vinna að því fram að Kirkjuþingi 2006 að ljúka samningum við
ríkisvaldið um málefiii prestssetranna. Unnið hefur verið að málinu og hefur
meðfylgjandi samkomulag um prestssetur náðst milli ríkisins og kirkjunnar. Gerður er
fyrirvari um samþykki Alþingis og Kirkjuþings.
íslenska ríkið og Þjóðkirkjan gera með sér eftirfarandi
samkomulag
um prestssetur og afhendingu þeirra til Þjóðkirkjunnar
I. Kafli
1. gr.
Prestssetur, þ.e. prestssetursjarðir og prestsbústaðir, sem Prestssetrasjóður tók
við yfirstjóm á frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu hinn 1. janúar 1994 með síðari
skjalfestum afhendingum frá ráðuneytinu, sbr. upptalningu prestssetra í II. kafla
samkomulags þessa, er eign Þjóðkirkjunnar.
2. gr.
Prestsbústaðir, hús og aðrar eignir, sem Prestssetrasjóður hefur keypt er eign
Þjóðkirkjunnar, sbr. upptalningu í III. kafla samkomulags þessa.
3. gr.
Islenska ríkið afhendir eignimar til fullra yfirráða eins og þær em nú ásamt þeim
réttindum, skyldum og/eða kvöðum sem þeim fylgja með þeim takmörkunum sem
nánar greinir í samkomulagi þessu. Þjóðkirkjan tekur við eignunum ásamt réttindum,
skyldum og/eða kvöðum frá sama tíma.
4. gr.
Samkomulag þetta felur í sér, auk afhendingar tiltekinna eigna til
Þjóðkirkjunnar, að íslenska ríkið hækkar árlegt ffamlag sitt til Kirkjumálasjóðs sem
nemur 3,0% af því gjaldi sem árlega er greitt til sjóðsins þannig að gjald í
Kirkjumálasjóð verði 14,3% frá 1. janúar 2007. Samhliða umræddri hækkun munu
framlög samkvæmt eftirfarandi viðfangsefnum undir fjárlagaliðnum 06-701
Þjóðkirlgan falla brott frá og með íjárlögum 2007: 1.12, 1.15, 1.16 og 1.91.
5. gr.
Með eignaafhendingu og uppgjöri samkvæmt samkomulagi þessu á sér stað
fullnaðaruppgjör vegna allra prestssetra og prestssetursjarða.
Uppgjör þetta tekur einnig til ákvarðana stjómvalda um stofhun, flutning,
viðhald eða breytingar á prestssetrum sem teknar vom áður en umsýsla prestssetra
71