Gerðir kirkjuþings - 2006, Qupperneq 93
b) Skipulögð þjónusta
Til þess að þjónustan sé markviss skipuleggur kirkjan margvíslegt starf. Skipulagið er
unnið út frá einingum kirkjunnar þ.e. sóknum, prófastsdæmum, sérþjónustu og
stofnunum. Þau sem leiða kærleiksþjónustuna eru einkum prestar og djáknar en allir
starfsmenn Þjóðkirkjunnar vinna að kærleiksþjónustu með einum eða öðrum hætti.
Kirkjan sinnir hjálparstarfi og kristniboði innan lands og utan, og veitir sérstaka
þjónustu við fjölskyldur í vanda. Sjá nánar í yfirliti hér að neðan.
II. kafli
Yfirlit um kærleiksþjónustu og hjálparstarf
Kirkjan skipuleggur margs konar þjónustu meðal allra aldurshópa bæði á íslandi og í
öðrum löndum. Nefiidir og ráð eru að störfum sem og stofnanir er sinna sérstaklega
kærleiksþjónustu loks eru sérþjónustuprestar og djáknar starfandi á þessu sviði:
a) Nefiidir sem einkum starfa að kærleiksþjónustu: ellimálanefiid, fagráð um meðferð
kynferðisbrotamála, hópslysanefiid, kristniboðs- og hjálparstarfsneínd, starfshópur gegn
ofbeldi gagnvart konum. Þá starfa einnig hópar og nefhdir innan sókna og
prófastsdæma.
b) Sérþjónustuprestar: Til dæmis prestar á sjúkrahúsum, prestar fatlaðra, fanga,
heymarlausra, innflytjenda, vímuvama, að Sólheimum í Grímsnesi og í skólum. Starf
presta erlendis, hefur ávallt falið í sér margþætta kærleiksþjónustu einkum við sjúklinga
og aðstandendur þeirra.
c) Djáknar hjá sóknum, félagasamtökum og stofiiunum svo sem á sjúkrahúsum,
hjúkrunarheimilum og í skólum.
d) Stofnanir kirkjunnar: Fjölskylduþjónusta kirkjunnar og Hjálparstarf kirkjunnar.
e) Samstarf við aðra aðila: Kirkjan á aðild að Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna,
auk þess sem hún styður við starfsemi margra aðila sem starfa á þessu sviði, svo sem
Samband íslenskra kristniboðsfélaga og Landspítala Háskólasjúkrahús. Þá hefur kirkjan
stutt Kvennaathvarfið.
III. kafli
Það sem hér fer á eftir eru einkum áhersluþættir umfram hina almennu þjónustu sem
veitt er í öllum sóknum landsins:
Hér skulu nefiid þau verkefrú sem er að ftnna í Stefnu og starfsáherslum Þjóðkirkjunnar
2004-2010 (6. kafla) og gerð grein fyrir hvemig þeim er sérstaklega sinnt í dag mnan
kirkjunnar:
6.2 Verkefni
Við viljum leita uppi og styðja með virkum hætti hópa eða einstaklinga í hverri
sókn sem skortir stuðning og samfélag en njóta ekki sérþjónustu kirkjunnar.
Þessir hópar eru meðal annars:
o Einstæðingar
- Skipulagðar vinaheimsóknir, einkum meðal aldraðra, er víða á
vegum sókna og prófastsdæma
91