Gerðir kirkjuþings - 2007, Síða 25

Gerðir kirkjuþings - 2007, Síða 25
Gerðir Kirkjuþings 2007 Fjársýsla ríkisins annast útreikning launa og greiðslur til presta og starfsmanna Biskupsstofu. Biskupsstofa hefur umsjón með og ber ábyrgð á launaumsýslunni sem er unnin í mannauðskerfi ríkisins. Ef launagreiðslur flytjast til Kirkjumálasjóðs er líklegt að áunninn réttindi eins og lífeyrisréttindi starfsmanna skerðist og þá þyrfti að færa lífeyrissjóðsskuldbindingar til bókar hjá Kirkjumálasjóði. Að mati Kirkjuráðs er því ekki ráðlegt að breyta nokkru þar um sinn. Á Biskupsstofu eru greidd laun til starfsmanna Kirkjumálasjóðs, Kirkjugarðasjóðs, nefndarlaun o.fl. auk þess sem Biskupsstofa sér um að greiða laun starfsmanna Skálholts. Sú umsýsla fer fram í launakerfi Biskupsstofu, en færslur eru fluttar rafrænt inn í fjárhagskerfi. Nokkuð hefur verið í umræðunni hvort heppilegt sé að færa umsýslu með rekstrarkostnaði prestsembætta og vegna prófastsdæma frá Biskupsstofu til Kirkjumálasjóðs. Kosturinn við þá tilhögun er að rekstrarkostnaður prestsembætta verður þá ekki greiddur með launum og eðlilegur aðskilnaður skapast milli launa og reksturs embættanna. Kirkjuráð telur að kanna þurfi hvort breytingar sem þessar hafa í för með sér aðra skattameðferð ef greiðsla fer fram án þess að reikningur sé sendur inn á móti. Það kann einnig að vera tvíverknaður ef gefa þarf út mánaðarlegan launaseðil hjá Kirkjumálasjóði. Kirkjuráð hefur samþykkt að láta kanna - í samráði við Prestafélag íslands, Ríkisendurskoðun, Ríkisskattstjóra og Fjársýslu ríkisins - með hvaða hætti er hægt að greiða rekstrarkostnað prestsembætta úr Kirkj umálasj óði. - Fjárhagsnefnd beinir því til Kirkjuráðs að við aukið svigrúm Kirkjumálasjóðs á næstu árum verði rýmri jjárráð nýtt m.a. til þess að jjölga prestsembættum þar sem þeirra helst er þörfog efla kynningarstarfá vegum Þjóðkirkjunnar. í fyrri umræðu um fjármál Þjóðkirkjunnar vegna ársins 2008 er gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun Kirkjumálasjóðs að ráðinn verði fjölmiðlafulltrúi sem annist kynningarmál Þjóðkirkjunnar. Móta þarf stefnu um fjölgun prestsembætta, sem Kirkjuþing þarf að fjalla um. 3. mál Kirkjuþings 2006. Breytingar á skipan prestakalla. Á Kirkjuþingi var samþykkt að leggja niður Ljósavatnsprestakall, Þingeyjarprófastsdæmi. Þá var enn fremur samþykkt að Skeggjastaðaprestakall, Þingeyjarprófastsdæmi og Þórshafnarprestakall, Múlaprófastsdæmi, skyldu sameinuð undir nafninu Langanessprestakall. Tóku þessar breytingar gildi 1. desember 2006. Kirkjuráð samþykkti að óska eftir því við Prestssetrasjóð að neðri hæð prestsbústaðarins að Skeggjastöðum, Múlaprófastdæmi, yrði áfram lögð til safnaðarstarfs Skeggjastaðasóknar, sókninni að kostnaðarlausu. Þann 1. júní s.l. færðist jörðin undir Kirkjuráð. 4. mál Kirkjuþings 2006. Skýrsla Prestssetrasjóðs Ályktun Kirkjuþings hljóðaði svo: Kirkjuþing 2006 felur stjóm Prestssetrasjóðs að gera áætlun um stærri viðhaldsverkefni á prestssetrum tilfimm ára. Kirkjuþing 2006 beinir því til stjómar Prestssetrasjóðs að veita prestum heimild til að láta vinna smærri viðhaldsverkefni að eigin frumkvæði, enda sé það gert í samráði við sjóðinn. Ályktun þessi þótti ekki kalla á sérstakar aðgerðir af hálfu Kirkjuráðs. 7. mál Kirkjuþings 2006. Starfsreglur um prófasta 8. mál Kirkjuþings 2006. Starfsreglur um vígslubiskupa 9. mál Kirkjuþings 2006. Starfsreglur um biskupafund 23
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82

x

Gerðir kirkjuþings

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.