Gerðir kirkjuþings - 2007, Síða 33

Gerðir kirkjuþings - 2007, Síða 33
Gerðir Kirkjuþings 2007 Lögð hefur verið mikil vinna í að fara yfir fyrirkomulag á greiðslum aukaverka presta einkum vegna skírnar og fermingar með undirbúningi. Álitið er að greiðslur þessar geti numið um 30 - 40 millj. kr. á ári í dag. Eitthvað mun vera um að þær innheimtist ekki að fullu. Lagahóp Kirkjuráðs var falið að fara yfir málið og gera tillögur um breytt fyrirkomulag sem miðaði að því að fella greiðslur sóknarbama til presta að mestu leyti niður. Telja má eðlilegt að sóknir beri þennan kostnað alveg eins og af öðru fræðslustarfi. Unnar vom tillögur sem miðuðust við að kirkjan tæki á sig kostnaðinn og að honum yrði skipt á nokkra aðila. Gert var ráð fyrir að gjald vegna fermingarfræðslu yrði lækkað úr 9.600 kr. í 8.000 þar sem prestar myndu fá greiðslur fyrirhafnarlaust í nýju kerfi, en nokkur vinna getur fylgt innheimtu þessari. Prestar tækju á sig þessa lækkun í staðinn vegna þessa hagræðis. Þá var gert ráð fyrir að Kirkjumálasjóður greiddi helming gjaldsins til presta og héraðssjóðir hinn helminginn. Þessar hugmyndir vom kynntar stjórn Prestafélags íslands og á fyrrgreindum fundi Kirkjuráðs með próföstum í mars. Skiptar skoðanir vom um málið. Einnig var rædd sú útfærsla að sóknarböm greiddu skráningargjald vegna fermingarfræðslu e.t.v. um tvö þús. kr. Þar sem þessar hugmyndir gætu reynst nokkuð flóknar í framkvæmd var ákveðið að fresta málinu. Kirkjuráð telur æskilegt að fá umræðu um málið á Kirkjuþingi. VI. Fasteignir Nýtt fasteignasvið Eftir að lög um breyting á þjóðkirkjulögunum nr. 78/1997 vom samþykkt á Alþingi 17. mars sl. og sem tóku gildi 1. júní sl. hefur verið unnið að tillögum um stjómskipulag fasteignamála. Kirkjuráð tók ákvörðun um fyrirkomulag þeirra á fundi sínum 13. september sl. Var þá eftirfarandi bókað: I. Stofnun fasteignasviðs. Kirkjuráð stofnsetur fasteignasvið sem lýtur stjórn ráðsins, er rekið af Kirkjumálasjóði og hefur aðsetur á Biskupsstofu. Viðfangsefni sviðsins eru: 1. Fasteignir Kirkjumálasjóðs - Laugavegur 31, Bergstaðastræti 75, Hjarðarhagi 30 (íbúð á 1. hæð), Háaleitisbraut 66 (Grensáskirkja) neðri hæð, allt í Reykjavík, Skálholt, vígslubiskupssetur á Hólum og Langamýri í Skagafírði. 2. Aflögð prestssetur - prestssetursjarðir. Desjarmýri, Skeggjastaðir, Ásar, Bergþórshvoll, Hvoll í Saurbæ, Vatnsfjörður, Ámes I, Prestsbakki, Háls - prestsbústaðir. Tálknafjörður, Raufarhöfn 3. Núverandi prestssetur skv. starfsreglum Kirkjuþings um prestakallaskipan - Kaup og sala - nýbyggingar - meiri háttar viðhald 4. Leiga og útleiga húsnœðis 5. Ráðgjöf til sóknamefnda og við úthlutanir úr Jöfnunarsjóði sókna varðandi kirkjur og safnaðarheimili 6. Önnur mál skv. ákvörðun Kirkjuráðs II. Stjómkerfi Kirkjuráð fer með yfirumsjón og fyrirsvar þessara viðfangsefna, samþykkir árlegar verk- og fjárhagsáætlanir fyrir fasteignaumsýsluna og tekur ákvarðanir um einstök mál eftir því sem þurfa þykir. Kirkjuráð undirbýr, með tilstyrk ráðgjafarhóps um fasteignir, tillögur fyrir Kirkjuþing um stefnumótun og mikla hagsmuni og gerir þinginu jafnframt árlega grein fyrir starfsemi og ákvörðunum sínum á þessu sviði. Kirkjuráð vinnur samkvæmt lögum, starfsreglum og stefnu Kirkjuþings um fasteignamál. 31
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82

x

Gerðir kirkjuþings

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.