Gerðir kirkjuþings - 2007, Síða 34

Gerðir kirkjuþings - 2007, Síða 34
Gerðir Kirkjuþings 2007 Varðandi fasteignir hefur Kirkjuráð ávallt í huga o að fasteignir eru fyrst og fremst starfstæki kirkjunnar og þjónustu hennar o menningar- sögu- og fagurfræðilega þætti við umsýslu þeirra o hagkvæmni í rekstri þeirra o að gæta eignanna í hvívetna og allra hagsmuna og réttinda sem þeim tengjast o að tryggja eðlilega arðsemi af þeim. Kirkjuráð setur fasteignasviðinu markmið og skilgreina helstu verkþætti sviðsins. Á fasteignasviði eru samtals 3,5 stöðugildi III. Starfshópur Kirkjuráðs um fasteignir Kirkjuráð skipar fjórða starfshóp sinn. Til ráðgjafar og undirbúnings ákvarðana er stofnsettur ráðgefandi starfshópur um fasteignir, skipaður þremur mönnum, þar af einum kirkjuráðsmanni og einum kirkjuþingsmanni. Framkvæmdastjóri Kirkjuráðs tekur þátt í störfum hópsins og veitir sviðinu forstöðu þar til annað hefur verið ákveðið. IV. Umsjón málaflokka 1. Fasteignir Kirkjumálasjóðs, þ.m.t fyrrum prestssetur Kirkjuráð - ráðgjafarhópur um fasteignir og starfsmenn fasteignasviðs 2. Fasteignin Skálholt og mannvirki - fasteignin Löngumýri og mannvirki Kirkjuráð - ráðgjafarhópur um fasteignir og starfsmenn fasteignasviðs 3. Prestssetur skv. gildandi staifsreglum Kirkjuþings Stjórn “Prestssetrasjóðs” skv. 3. gr. starfsreglna um Kirkjumálasjóð vegna rekstrar og umsýslu prestsbústaða og prestssetursjarða hefur svipaða stöðu og stjórn sjóðsins hafði fyrir 1. júní 2007. Kirkjuráð ber þó upp tillögur á Kirkjuþingi um kaup og sölu eigna og skipar stjórnina skv. tilnefningum Kurkjuþings og Prestafélags Islands. Þá samþykkir Kirkjuráð fjárhagsáætlun. Unnt er að kæra ákvarðanir stjórnar sjóðsins til Kirkjuráðs sem æðra stjómvalds. Kirkjuþing ákveður hvar prestssetur skuli vera. 4. Kirkjur og safnaðarheimili - ráðgjöf til sókriamefiida og við úthlutanir úr Jöfimnarsjóði sókna Kirkjuráð - ráðgjafarhópur um fasteignir, bygginga- og listanefnd og starfsmenn fasteignasviðs 5. Sérstök málefni varðandi fasteignir s.s. meiriháttar byggingarframkvœmdir, stefnumótun o.fl. Kirkjuráð - ráðgjafarhópur um fasteignir og starfsmenn fasteignasviðs. Kirkjuráð hefur skipað ráðgjafarhópinn. í hópnum eru Halldór Gunnarsson, kirkjuráðsmaður, Bjami Kr. Grímsson, kirkjuþingsmaður og Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri Biskupsstofu. Framkvæmdastjóri Kirkjuráðs mun starfa með hópnum til að byrja með og eftir þörfum. Kirkjuhús í skýrslu Kirkjuráðs á síðasta Kirkjuþingi kom fram að Kirkjuráð hefði á tímabilinu rætt hugmyndir að hugsanlegu nýju kirkjuhúsi. Sú vinna hefur haldið áfram og ræddu m.a. biskup íslands og framkvæmdastjóri Kirkjuráðs við borgarstjórann í Reykjavík um möguleika á lóð á Skólavörðuholti. Kom fram mikill stuðningur og velvilji í garð kirkjunnar af hálfu borgarstjóra um að leysa það mál. Mál þetta verður áfram til vinnslu. Skálholt Eins og fram kom í skýrslu Kirkjuráðs frá síðasta ári gaf ríkisstjórnin fyrirheit um fjárhagslegan stuðning við byggingu þjónustuhúss og bókhlöðu í Skálholti og samþykkti Kirkjuráð að leggja fram stofnframlag á móti framlagi ríkisins. Framlag 32
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82

x

Gerðir kirkjuþings

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.