Gerðir kirkjuþings - 2007, Side 43
Gerðir Kirkjuþings 2007
Nefndarálit
Fjárhagsnefnd fór yfir ársreikninga og ijárhagsáætlanir Þjóðkirkjunnar, stofnanir
hennar og sjóði. Fjárhagsnefnd þakkar skýra framsetningu reikninga og áætlana og
yfirgripsmikil yfrrlit og skýringar á öllum rekstri sem undir Þjóðkirkjuna heyra.
Fjármálastjóri greiddi greiðlega úr spurningum nefndarmanna varðandi fjármálin.
Nefndin fór einnig yfir endurskoðunarskýrslu Ríkisendurskoðunar, en í
skýrslunni er fjallað um ársreikninga embætta, sjóða, stofnana og fyrirtækja
Þjóðkirkjunnar. Nefndin hafði einnig til umfjöllunar samantekt ársreikninga sókna
2006, yfirlit unnið úr ársreikningum héraðssjóða fyrir árið 2006 og skýrslu um
úthlutanir styrkja úr Jöfnunarsjóði sókna á árunum 1991 - 2007 og tillögur um
úthlutun árið 2008.
Nefndin fékk á sinn fund sr. Sigurð Sigurðarson vígslubiskup í Skálholti og
Kristin Ólason, rektor Skálholtsskóla, Guðlaugu Magnúsdóttur, forstöðumann
Fjölskylduþjónustu kirkjunnar og Guðmund Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóra
Kirkjuráðs, sem leystu greiðlega úr spurningum nefndarmanna og veittu nefndinni
gagnlegar upplýsingar.
Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármálastjóri Biskupsstofu lagði fram á sérstöku
minnisblaði ýtarleg svör við spumingum sem fram vom settar í almennum umræðum
á Kirkjuþingi og fylgir það nefndaráliti.
Varðandi fjármál Þjóðkirkjunnar vill fjárhagsnefnd draga fram eftirfarandi
atriði:
1. Fjárhagsnefnd telur að stofnun fasteignasviðs stuðli að skilvirkri umsýslu.
2. Fjárhagsnefnd beinir því til Kirkjuráðs að aflað verði gagna um reynslu
nágrannakirkna af því að fylgja mótaðri fjárfestingastefnu. Fjármálahópi Kirkjuráðs
verði falið að hafa umsjón með verkefninu og undirbúa drög að fjárfestingastefnu sem
Kirkjuráð leggi fyrir Kirkjuþing 2008.
3. Fjárhagsnefnd beinir því til Kirkjuráðs að í ársreikningi Kirkjumálasjóðs komi fram
hversu miklum fjármunum er varið til barna- og unglingastarfs.
4. Fjárhagsnefnd leggur áherslu á að unnið verði áfram að rafrænum skilum á
ársreikningum ásamt ársskýrslum sókna. Nefndin ítrekar ábendingar um að fámennum
sóknum verði veitt aðstoð við að koma reikningsskilum í viðunandi horf. Nefndin
gerir tillögu til Kirkjuráðs um að þess verði farið á leit við biskupafund að hann
hlutist til um að sóknir geti sameinast um starf, rekstur og reikningshald.
Kirkjuþing 2007 afgreiddi fjármál Þjóðkirkjunnar með eftirfarandi
Ályktun
Kirkjuþing 2007 afgreiðir ársreikninga Þjóðkirkjunnar fyrir árið 2006 um einstaka
sjóði, stofnanir og viðfangsefni Þjóðkirkjunnar athugasemdalaust. Rekstraráætlun
fyrir árið 2008 um helstu viðfangsefni Þjóðkirkjunnar em í samræmi við
megináherslur Kirkjuþings með hliðsjón af þeim fjárhagsramma sem Þjóðkirkjan býr
við.
41