Gerðir kirkjuþings - 2007, Page 67

Gerðir kirkjuþings - 2007, Page 67
Gerðir Kirkjuþings 2007 V. Kafli Leiga/afgjald 17. gr. Stjórn prestssetra reiknar árlega leigu/afgjald, sem prestur innir af hendi vegna afnota sinna af prestssetri meðan hann gegnir embætti og fer með forráð prestssetursins. Til viðmiðunar árlegrar leigu skal stjórn prestssetra taka fasteignamat þeirra eigna sem prestur hefur umráð yfir, eins og það er 1. desember næst á undan gjaldaári, svo og einnig þau lögboðnu gjöld sem innt eru af hendi af hálfu stjómar prestssetra vegna þessara sömu eigna. Til viðmiðunar skulu einnig vera hlunnindi eða önnur verðmæti sem ekki eru talin til fasteignamats en hafa sannanlegt verðgildi og prestur nýtir. Ákvörðun leigu skal tekin fyrir eitt ár í senn og skal því jafnað niður á gjaldaárið með mánaðarlegum greiðslum frá 1. júní til 31. maí og skal það tilkynnt leigutökum fyrir 1. maí. Ákvæði húsaleigulaga og ábúðarlaga taka til réttarsambands aðila eftir því sem við getur átt. Leigan skal jafnan innt af hendi fyrirfram fyrir hvern mánuð og það dregið af launum prests. Prestur greiðir ekki leigu fyrir eigin eignir á prestssetri ef þær em fyrir hendi. Þá greiðir prestur ekki leigu af þeim hluta prestsseturs er ekki nýtist honum og sem stjórn prestssetra hefur samþykkt að prestur skuli ekki hafa afnot af eða umráð yfir. 18. gr. Stjórn prestssetra er heimilt að lækka leigugjald fyrir prestssetur að ósk prests enda séu fyrir því gild rök. Hér er m.a átt við lögmæt leyfi er biskup veitir, sérstakar skyldur, sérstakar aðstæður, óeðlilegan rekstrarkostnað eða óvanalega hátt fasteignamat. Stjóm prestssetra er heimilt að mæla svo fyrir að ákvarðanir um þessi efni skuli vera tímabundnar og falla sjálfkrafa úr gildi er prestur lætur af embætti og afhendir prestssetur. VI. Kafli. Hlutverk stjómar prestssetra 19. gr. í prestakalli þar sem Kirkjuþing hefur ákveðið að skuli vera prestssetur, en stjórn prestssetra hefur ekki yfir húsnæði að ráða, er stjórninni heimilt að gera samning við prestinn um leigu á húsnæði í hans eigu sem prestssetur. 20. gr. Stjóm prestssetra getur leitað eftir ljárstuðningi viðkomandi sókna sem og annarra aðila þegar ráðist er í mjög fjárfrekar framkvæmdir. VII. Kafli Hagsmunir og fyrirsvar 21. gr. Stjóm prestssetra hefur almennt íyrirsvar vegna prestssetra út á við og gætir hagsmuna prestssetra í samráði við hlutaðeigandi prest, prófast og önnur kirkjuleg yfirvöld. Stjóm prestssetra hefur gætur á lagasetningu, lagabreytingum, setningu eða breytingu á fyrirmælum stjórnvalda er varða hagsmuni prestssetra. 65

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.