Gerðir kirkjuþings - 2007, Side 75
Gerðir Kirkjuþings 2007
5. Fyrirspurn frá Huldu Guðmundsdóttur
Eru guðfræðileg rök gegn því að nota hugtakið „vígsla” um athöfn staðfestrar
samvistar, þegar og ef prestar Þjóðkirkjunnar framkvæma bæði „blessun” og frágang
löggemingsins?
Svar biskups íslands
Það em vissulega guðfræðileg rök. Mál þetta er til umfjöllunar á Kirkjuþingi og er,
þegar fyrirspurn þessi er sett fram, til meðferðar hjá allsherjarnefnd þingsins Þar af
leiðandi telur ég ekki rétt að ræða þetta mál í fyrirspurnartíma að svo stöddu, enda
umfjöllun allsherjarnefndar og seinni umræðu Kirkjuþings um málið ekki lokið. Já,
það eru guðfræðileg rök hvom tveggja með og á móti.
6. Fyrirspurn frá Huldu Guðmundsdóttur
í ályktun Kirkjuþings 2006 var tekið undir ræðu biskups við setningu þingsins um
mikilvægi vitunarvakningar þjóðarinnar til að hamla gegn aukinni neyslu vímuefna.
Telur biskup, í ljósi vímuvarnarstefnu Þjóðkirkjunnar, að kirkjan geti sett fram skoðun
á fmmvarpi um frjálsa sölu á áfengi í verslunum?
Svar biskups íslands
í stefnu Þjóðkirkjunnar í vímuefnavandanum kemur m.a. fram að Þjóðkirkjan taki
undir viðhorf Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar WHO frá 1955 þar sem
alkóhólismi er skilgreindur sem sjúkdómur. Jafnan er minnt á að sá sjúkdómur snertir
ekki bara líf einstaklingsins sem í hlut á heldur fjölskyldu og aðra sem em í kringum
hann.
Það er kunnara en frá þurfi að segja að bein tengsl em á milli glæpa og afbrota
af ýmsu tagi og vímuefnaneyslu. Vonbrigði, reiði, öfund, em m.a. fylgifiskar
vímunnar eins og minnt er á í stefnunni. Þjóðkirkjan hefur tekist á við vandmál
vímuefnaneyslu með prédikun, fræðslu, sálgæslu og fyrirbæn. Starfsfólk kirkjunnar,
prestar, djáknar og fleiri hafa lagt mikið á sig til að hjálpa einstaklingum til þess að
finna leið til bata og stutt fjölskyldur þeirra margvíslega.
Kirkjan gegnir mikilvægu hlutverki í eflingu heilbrigðis og hamingju. Öll
þjónusta kirkjunnar hefur í sér fólgið, í senn forvamargildi og hjálp í vanda. Brýnt er
að starfsfólk þjóðkirkjunnar beiti sér markvisst í starfi sínu í baráttunni við
vímuefnavandann. A fræðslusviðinu er unnið mikið forvamarstarf. Börn frá
leikskólaaldri til unglingsára fá fræðslu sem leggur áherslu á jákvæði lífsgildi og
kemur að góðu haldi ekki síst í baráttunni við vímuefnavandann síðar á lífsleiðinni. I
foreldrastarfi miðlar kirkjan uppeldislegum gildum og beinni aðstoð við foreldra í afar
mikilvægu uppeldisstarfi þeirra. Þjóðkirkjan hefur tekið átt í samstarfi við ýmsa aðilja
vegna grunnskólanemenda og viljað stuðla að því að halda þeim frá neyslu áfengis og
vímuefna. Samstarf hefur og verið við framhaldskólann um að vinna þar að hliðstæðu
marki einkum með því að koma að “Lífsleikni” í framhaldsskólum sem er jákvætt
spor í þessa átt og hefur augljóst forvamargildi.
I erlendum rannsóknum hefur m.a. komið í ljós að aukið aðgengi að áfengi
hefur leitt til aukinnar neyslu. Þetta kom m.a. fram í útvarpsviðtali nú í vikunni við
sérfræðing hjá Lýðheilsustofnun sem spurður var um framkomið frumvarp. Ef biskup
fær frumvarpið til umsagnar frá Alþingi er ljóst að ég mun með vísan til stefnu
þjóðkirkjunnar í vímuvarnamálum, benda á að frumvarpið gengur þvert á
forvamarstarf kirkjunnar og annarra aðila og mun auka enn á vanda okkar samfélags
við vímuefnavandann.
73