Peningamál - 01.06.2005, Síða 19
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PEN INGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
5
•
2
19
árinu 2004 heldur einnig frá árunum 2006 og 2007. Nú er spáð
tæplega 53% vexti fjármunamyndunar atvinnuveganna í ár, sem er
svipað og spáð var í mars. Á næsta ári dregur úr þunga stóriðju- og
virkjanaframkvæmda en nú er gert ráð fyrir heldur meiri samdrætti á
næsta ári en áður, eða tæplega 14%. Viðbótarfjárfesting Norðuráls,
Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja sem gengið var frá
samningum um í apríl sl. fellur til á árunum 2007 og 2008 og hefur
því ekki áhrif innan spátímabilsins (sjá rammagrein 2). Gert er ráð fyrir
svipuðum vexti atvinnuvegafjárfestingar án stóriðju í ár og í mars-
spánni, og áfram er reiknað með samdrætti á næsta ári.
Uppgjör skráðra fyrirtækja í Kauphöll Íslands gætu e.t.v. gefið
tilefni til að spá meiri vexti. Velta þeirra jókst um 27% í fyrra og fram-
legð og hagnaður var með besta móti. Miðað við uppgjör sem fyrir
liggja eftir fyrsta fjórðung í ár virðist staða þeirra sterk þótt þau sýni
aðeins lakari afkomu en í sama fjórðungi í fyrra. Fjárfesting þeirra var
þó tiltölulega lítill hluti af heildarfjármunamyndun atvinnuveganna á
sl. ári, eða tæplega 17% af annarri fjármunamyndun atvinnuvega en
þeirri er tengist stóriðju, eða skipa- og flugvélakaupum. Vöxturinn
hefur enn fremur að nokkru leyti átt sér stað erlendis. Um fjórir
fimmtu hlutar veltuaukningar síðasta árs komu að utan, annaðhvort
sem tekjur af útflutningi eða vegna starfsemi erlendis.
Sú rekstrarstærð sem skiptir einna mestu máli varðandi fjárfest-
ingu er veltufé frá rekstri, en það er það fjármagn sem fyrirtæki hafa
út úr starfsemi sinni til fjárfestingar og afborgana af lánum. Veltufé
skráðra fyrirtækja frá rekstri jókst um nær þriðjung á sl. ári og nam
tæplega 10% af veltu. Heldur stærri hluta veltufjár var varið til hreinn-
ar fjárfestingar í fyrra en árið áður, en þar sem hluta þess var varið til
fjárfestingar erlendis hafði það ekki samsvarandi áhrif á innlenda
Tafla IV-2 Veltufé frá rekstri og fjárfesting skráðra atvinnufyrirtækja
árin 2003 og 2004
Öll skráð atvinnufyrirtæki 2003 2004
Veltufé frá rekstri 32.412 40.310
Hrein fjárfesting (m.kr.)1 12.123 16.836
sem hlutfall af veltufé (%) 37 42
Sjávarútvegur
Hrein fjárfesting (m.kr.)1 2.018 3.283
sem hlutfall af veltufé (%) 31 39
Iðnfyrirtæki
Hrein fjárfesting (m.kr.)1 3.580 3.911
sem hlutfall af veltufé (%) 35 27
Upplýsinga- og samskiptatækni
Hrein fjárfesting (m.kr.)1 3.333 3.305
sem hlutfall af veltufé (%) 42 34
Flutningafyrirtæki
Hrein fjárfesting (m.kr.)1 2.347 4.451
sem hlutfall af veltufé (%) 41 61
1. Hrein fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum.
Heimild: Ársreikningar fyrirtækja birtir á vef Kauphallar Íslands (www.icex.is).
Mynd IV-4
Vöxtur fjármunamyndunar í heild 1997-20061
1. Spá Seðlabankans 2005-2006.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006
0
10
20
30
40
-10
-20
-30
Magnbreyting frá fyrra ári (%)
Mynd IV-5
Fjármunamyndun atvinnuvega
og stóriðju 1991-2006
1992 1994 1996 1998 2000 2002 2004 2006
0
4
8
12
16
20
% af VLF
Fjármunamyndun atvinnuvega
þar af stóriðja
1. Spá Seðlabankans 2005-2006.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
Mynd IV-6
Vöxtur fjármunamyndunar og innflutnings fjár-
festingarvöru á fyrsta ársfjórðungi 1998-2005
Heimild: Hagstofa Íslands.
1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005
0
10
20
30
40
50
60
70
80
90
-10
-20
-30
-40
Magnbreyting frá fyrra ári (%)
Fjármunamyndun
Innflutningur fjárfestingarvöru