Peningamál - 01.06.2005, Side 52

Peningamál - 01.06.2005, Side 52
RÆÐA FORMANNS BANKAST JÓRNAR Á ÁRSFUNDI SEÐLABANKANS 2005 P E N I N G A M Á L 2 0 0 5 • 2 52 lánakerfisins auk þess sem breyting á bindiskyldu er ógagnsæ aðgerð og áhrif á væntingar ófyrirséð. Húsnæðiskostnaður á að vera liður í þeirri vísitölu sem verðbólgumarkmiðið miðast við Þá er Seðlabankinn eindregið þeirrar skoðunar að húsnæðiskostnaður eigi áfram að vera þáttur í þeirri verðvísitölu sem verðbólgumarkmiðið miðast við og að sú aðferð sem Hagstofa Íslands hefur notað við að meta húsnæðiskostnað sé í meginatriðum hin besta sem völ er á. Þetta helgast af því að húsnæðiskostnaður er mikilvægur þáttur í neyslu einstaklinga og 80% landsmanna búa í eigin húsnæði. Með því að sniðganga verðbreytingar húsnæðis væri því horft fram hjá veru- legum þætti í útgjöldum einstaklinga. Fyrir seðlabanka sem gert er að fylgja verðbólgumarkmiði hefur húsnæðisliður neysluverðsvísitölu reynst hafa gott spásagnargildi um almenna verðþróun. Þetta stafar væntanlega af því að húsnæðismarkaðurinn er ótengdur erlendum mörkuðum. Aukinni eftirspurn eftir húsnæði verður ekki beint út úr þjóðarbúskapnum eins og ásókn í aðra vöru og þjónustu, og ekki gætir þar heldur erlendrar samkeppni að nokkru marki. Þegar eftir- spurn eykst hratt tekur húsnæðisverð því oft að hækka fyrr og meira en verðlag á vöru og þjónustu almennt. Þá má benda á að ef hús- næðisverð hefði ekki verið í vísitölu neysluverðs hefði verðbólga farið yfir 10% í efnahagslægðinni á árinu 2001, og það hefði krafist enn harðari aðgerða af hálfu Seðlabankans en þá var beitt. Meiri aðlögunarhæfni og umbætur á sviði efnahagsmála hafa haft í för með sér hækkun lánshæfismats ríkissjóðs ... Fyrir stuttu hækkaði matsfyrirtækið Standard & Poor’s mat sitt á láns- hæfi ríkissjóðs, og er það nú talið mjög gott af þeim þremur fyrir- tækjum sem meta ríkissjóð og mest kveður að, þ.e. Standard & Poor’s, Moody’s og Fitch. Öll fylgjast matsfyrirtækin vel með íslensku efna- hagslífi. Vegna þess að Standard & Poor’s hefur nýlega hækkað lánshæfiseinkunn ríkissjóðs er fróðlegt að skoða helstu þætti í umsögn fyrirtækisins, bæði þá sem styrkja matið og hina sem bent er á að geti veikt það. Fyrirtækið telur að hækkun lánshæfismatsins sé til marks um verulegar og viðvarandi framfarir í aðlögunarhæfni og uppbyggingu íslensks hagkerfis. Fjármálakerfið hafi styrkst, bæði regluverk og fjár- málaeftirlit. Aðkoma banka að fasteignamarkaði styrki fjármálakerfið. Opinber fjármál standi traustum fótum og stjórnkerfið sé í senn stöð- ugt og sveigjanlegt. ... en það gæti lækkað aftur aukist erlendar skuldir verulega Fyrirtækið telur hins vegar að hreinar skuldir þjóðarbúsins séu mjög miklar og vaxandi, viðskiptahalli sé mikill og erlend lausafjárstaða til- tölulega slök. Það geti skipt sköpum að staðið verði við langtíma- stefnu stjórnvalda í ríkisfjármálum og að ófyrirséðri aðlögunarþörf verði mætt með aðgerðum í ríkisfjármálum fremur en í peninga- málum. Vaxi erlendar skuldir verulega og grafi ójafnvægi alvarlega um sig eftir stórframkvæmdir geti það dregið úr lánshæfi. Þetta voru meginatriðin í umsögn Standard & Poor’s. Ástæða er til að taka þau

x

Peningamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.