Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2015, Síða 14
Helgarblað 30. janúar–2. febrúar 201514 Fréttir
J
uliane Ferguson ákvað að
stíga fram undir nafni og
mynd í vikunni eftir að Hæsti
réttur felldi úr gildi nálgunar
bann sem lögreglustjórinn á
höfuðborgarsvæðinu hafði sett á
fyrrverandi sambýlismann hennar.
Bannið var fellt úr gildi þrátt fyrir
að maðurinn hafi sent samstarfs
fólki Juliane kynlífsmyndband af
henni nokkrum vikum áður.
DV sagði sögu Juliane um miðj
an desember en hún hafði þá
flúið heimili sitt vegna ofbeld
is mannsins. Síðan þá hefur hún
dvalið í Kvennaathvarfinu á meðan
maðurinn býr frítt í íbúðinni henn
ar. Þau deila forræði yfir tveggja ára
dóttur þeirra, sem býr hjá Juliane
og manninum á víxl.
Gríðarlegt áreiti
Juliane er frá Bandaríkjunum en
flutti hingað til lands árið 2008
með íslenskum eiginmanni
sínum. Þau skildu skömmu síðar
en eiga saman tvö börn sem nú eru
átta og tíu ára. Julie er vel mennt
uð og í góðu starfi hjá bandarísku
fyrirtæki hér á landi. Hún kynnt
ist manninum sem um ræðir árið
2011 og árið 2013 eignuðust þau
saman dóttur.
Þegar DV ræddi við Juliane, eða
Julie eins og hún er jafnan kölluð,
í desember treysti hún sér ekki til
þess að koma fram undir nafni af
ótta við hefndaraðgerðir manns
ins. Áhyggjur hennar reyndust
réttmætar. Í dómi héraðsdóms
segir að maðurinn hafi ekki sent
kynlífsmyndböndin af tilefnis
lausu, sendingarnar hafi komið í
kjölfar og sem viðbrögð við um
fjöllun Julie um málefni fjöl
skyldunnar í fjölmiðlum. Af þeirri
ástæðu hafi þær ekki falið í sér
refsiverð brot.
Julie segir manninn hafa brugð
ist reiður við viðtalinu og sent
henni hótandi skilaboð í gríð og
erg. „Eitt kvöldið fékk ég 63 SMS
skilaboð frá honum á einum og
hálfum tíma. Ég svaraði kannski tíu
skilaboðum þar sem ég bað hann
um að láta mig vera. Ég veit að ég
hefði ekki átt að svara honum, en
það er gríðarlegt áreiti að fá þessi
skilaboð. Þau eru alltaf af sama
meiði. Ég sé vond manneskja,
vond móðir og muni fara til helvít
is. Hann hefur sent mér myndir af
börnunum mínum með skilaboð
um um að ég muni aldrei sjá þau
aftur. Eftir að viðtalið kom út sendi
hann fyrrverandi eiginmanni mín
um líka skilaboð og bað hann að
hjálpa sér við að fá öll börnin tek
in af mér. Hann hefur einnig sent
vinkonu minni og jafnvel Kvenna
athvarfinu skilaboð um mig. Hver
áreitir Kvennaathvarfið?“
Austurríska leiðin ekki í boði
Viðbrögðin sem Julie fékk við við
talinu voru hins vegar ekki al
slæm. Hún segir lögregluna hafa
tekið mál hennar af meiri festu
og er sannfærð um að lögreglu
þjónarnir hafi gert allt sem í þeirra
valdi stóð til þess að aðstoða hana.
Það sé réttarkerfið sem sé gallað.
„Daginn eftir að viðtalið kom út
fékk ég símtal frá lögreglunni. Mér
var sagt að hún ætlaði að reyna að
fá nálgunarbann á manninn og
fá hann fjarlægðan af heimilinu á
grundvelli austurrísku leiðarinn
ar. Austurrísku leiðinni hefur hins
vegar aldrei áður verið beitt eft
ir að þolandinn fer af heimilinu,
heldur er þessu úrræði beitt strax
í kjölfar ofbeldisins. Mér var sagt
af lögfræðingnum sem mér var
útvegað af lögreglu að þessu úr
ræði hefði átt að vera beitt 30.
júlí þegar lögreglan var kölluð á
heimilið vegna árásarinnar. Það
hefði sannarlega breytt lífi mínu
hefði það verið gert.”
Í viðtali við DV hinn 16. desem
ber síðastliðinn segir Julie ítarlega
frá umræddu atviki. Fjölskyldan
var þá nýkomin heim frá Spáni
og vildi Julie byrja á því að ganga
frá farangrinum og ryksuga gólfin,
því þau eiga ketti. „Hann vildi hins
vegar að ég færi að svæfa börnin.
Þegar ég sagðist ætla að byrja á því
að ryksuga byrjaði hann að ýta mér
af fullum krafti upp að veggnum
aftur og aftur. Börnin byrjuðu að
öskra og hann hélt áfram að öskra
á mig. Sagði að þetta væru börnin
mín og ég þyrfti að svæfa þau.
Ég hljóp inn í eldhús, tók bjór
inn sem hann hafði keypt í Frí
höfninni og sagðist ætla að fleygja
honum niður af svölunum. Þá
varð hann reiður, hljóp á eftir mér
og hrinti mér fast á svalahurðina.
Hurðin stóð opin og ég lenti með
vörina á henni. Þegar ég hugsa um
þetta núna heyri ég öskrin í börn
unum mínum. Mér hefði aldrei
dottið í hug að það kæmi jafn mik
ið blóð við það að skera vörina á
sér með þessum hætti. Ég datt í
gólfið og það myndaðist strax poll
ur af blóði á gólfinu. Þegar ég stóð
upp hélt áfram
að fossast blóð
á bolinn minn,“
sagði Julie í um
ræddu viðtali.
Hún segist
næst hafa náð
í börnin sín,
hlaupið með þau
inn á baðherbergi
og læst hurðinni.
„Ég grét svo mikið
og skalf að ég gat
ekki gert mig skilj
anlega þegar ég
hringdi í neyðar
línuna. Þannig að
tíu ára dóttir mín
tók af mér sím
ann, útskýrði hvað
hafði gerst og gaf
upp heimilisfangið
okkar.“
Þegar lögreglan
kom á svæðið var
maðurinn farinn.
Julie gaf skýrslu
um hvað hefði gerst
og að hennar sögn
bað hún á þessum
tímapunkti um að
maðurinn yrði fjarlægður af heim
ilinu. „Mér var sagt, sem fyrr, að
þeir gætu haldið honum í sólar
hring en þar sem hann væri með
lögheimili þarna gæti hann komið
aftur að þeim tíma liðnum,“ sagði
Julie í viðtali við DV í desember.
Austurríska leiðin svokallaða,
sem gefur lögreglustjóra heimild
til að fjarlægja ofbeldismenn af
heimilum sínum til þess að styrkja
réttarstöðu þolenda ofbeldis, var
samþykkt sem lög hér á landi árið
2011. Samt sem áður var Julie ekki
boðið þetta úrræði. Hún varð því
að búa með manninum í nokkra
orðin vön
n Maðurinn sendi kynlífsmyndbönd af Juliane n Vildi hefna fyrir umfjöllun
n Var eyðilögð þegar Hæstiréttur felldi nálgunarbannið úr gildi
Áslaug Karen Jóhannsdóttir
aslaug@dv.is „Hann hef-
ur sent
mér myndir af
börnunum mín-
um með skila-
boðum um að
ég muni aldrei
sjá þau aftur
16. desember 2014
„Ég var
gjörsam-
lega eyðilögð
sársaukanum