Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2015, Blaðsíða 62
Helgarblað 30. janúar–2. febrúar 201562 Fólk
T
ónlistarkonan Steinunn
Eldflaug Harðardóttir, sem
er einnig þekkt undir lista-
mannsnafninu DJ Flugvél
og Geimskip, fór til Japan
í nóvember á vegum Útflutnings-
stofu íslenskrar tónlistar, ÚTÓN,
og STEFs, Sambands tónskálda og
eigenda flutningsréttar. Tilgangur
ferðalagsins var að hitta tónlistar-
fólk frá Norðurlöndunum, Japan
og Kóreu og vinna með þeim að því
að semja tónlist sem flokkast undir
tónlistarstefnurnar J-pop og K-pop.
Hvað ertu að gera í Japan?
Steinunn varð undrandi á því að
sjá mynd af sjálfri sér, skjáskot úr
sjónvarpsþætti, hjá japönskum
Twitter-notanda um daginn, og
það kom henni enn meira á óvart
að athugasemdir á japönsku hrúg-
uðust inn á þráðinn og japönskum
fylgjendum hennar á samfélags-
miðlum fjölgaði skyndilega. Skýr-
inguna var að finna í örstuttu viðtali
sem tekið var fyrir sjónvarpsþáttinn
„Hvað ertu að gera í Japan“: „Ég var
búin að vera á ferðalagi í 20 klukku-
tíma, var dauðþreytt og skítug og
leið ömurlega. Ég var nýbúin að
þvo mér í framan, var ekkert mál-
uð og í skelfilega ljótum ferðalaga-
fötum. Þegar ég gekk út af flugvell-
inum hugsaði ég með mér að það
væri eins gott að ég færi beint upp
á hótel og léti engan sjá mig fyrr en
ég væri búin að sofa, fara í sturtu,
klæða mig og mála mig. Þá kemur
allt í einu sjónvarpstökulið askvað-
andi með risastóra upptökuvél og
ýtir hljóðnema að nefinu á mér og
spyr: „Hi, can we talk to you? What
are you doing in Japan?““ Það sýndi
sig svo að um var að ræða vin-
sælan þátt í japönsku sjónvarpi og
þátturinn með Steinunni var sýnd-
ur síðustu helgi. Umsvifalaust byrj-
uðu japanskar athugasemdirnar á
Twitter og við Youtube-myndbönd
Steinunnar að hrúgast inn.
Kastað í djúpu laugina
J-pop og K-pop eru eins og nöfnin
gefa til kynna heiti yfir japanska og
kóreska popptónlist. Höfundarnir
eru yfirleitt ósýnilegir en flytj-
endurnir njóta mikilla vinsælda:
„Þessi tónlist er samin eftir ótrúlega
ströngum reglum um takt og lengd
og laglínur. Í Japan er ákveðin skil-
greind aðferð sem höfundar verða
að fara eftir ef lögin eiga að fá spilun.
Það var mjög skemmtilegt að kynn-
ast þessu og ég hafði ekki hugmynd
um hvernig ætti að búa til popptón-
list áður en ég fór út. Mér var eigin-
lega kastað út í djúpu laugina og ég
lærði ótrúlega mikið á þessu.“
Ný tónlist með nýjum aðferðum
Steinunn samdi nokkur lög í
ferðinni og vonast til að þau verði
gefin út „því þá fæ ég pening,“ segir
hún og hlær dátt. Hún segist nú
þegar hafa notað aðferðirnar sem
hún lærði til að semja eigin tón-
list, en hún vinnur að efni fyrir nýja
plötu sem kemur út innan skamms:
„Svo kynntist ég auðvitað fjölda
fólks sem ferðast um heiminn og
semur tónlist fyrir poppara. Það
fannst mér gaman og ég vona að
þau sambönd nýtist mér síðar.“ n
Óvænt athygli frá Japan
DJ Flugvél og Geimskip í japönsku sjónvarpi
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
Í japönsku sjónvarpi Viðtal við ferðalanginn Steinunni.
„Ég var búin að vera á
ferðalagi í 20 klukku-
tíma, var ógeðslega þreytt
og skítug og leið ömurlega.
Steinunn
Eldflaug Litrík
tónlistarkona.
MyND SiGtRyGGuR ARi
Þ
að er alltaf erfitt að vera í
burtu en þetta er áttunda
árið sem ég er ekki heima svo
ég er vön þessu,“ segir körfu-
boltakonan og landsliðsfyrirliðinn
Helena Sverrisdóttir sem býr í Pól-
landi þar sem hún er atvinnumann-
eskja í körfubolta.
Helena, sem er 26 ára, var í námi
í fjögur ár í Bandaríkjunum, keppti í
tvö ár í Slóvakíu og eitt ár í Ungverja-
landi. Hún hefur búið í Póllandi
frá byrjun september og líkar vel.
„Þessi bær er mjög lítill, bara um 20
þúsund íbúar. Hins vegar eru stór-
ir bæir allt í kring og ég er bara tvo
tíma að keyra til Berlínar. Við æfum
tvisvar á dag en annars er ég bara
hér heima að horfa á sjónvarpið eða
púsla. Það er alltaf hægt að finna sér
eitthvað að gera.“
Kærasti Helenu er körfubolta-
maðurinn Finnur Atli Magnússon
sem spilar með KR en þau hafa ver-
ið saman í tæpt ár. Hún segir það
kost að eiga kærasta sem sé einnig
í sportinu. „Hann skilur eflaust bet-
ur en aðrir það sem ég er að gera því
hann þekkir þennan heim,“ segir
hún en játar því að fjarlægðin á milli
þeirra geti tekið á. „Það er oft erfitt
að vera í fjarsambandi en við erum
dugleg að hittast. Hann kom í heim-
sókn október og svo fór ég heim um
jólin og svo hittumst við í London
um daginn. Svo kemur hann von-
andi í heimsókn í lok febrúar og ég
kem heim í sumar til að spila með
landsliðinu.“
Leikmenn í körfubolta eru gjarn-
an hærri en gengur og gerist og sjálf
er Helena 184 sentimetrar á hæð
sem hún segir ekki mikið í körfu-
boltaheiminum. „Á Íslandi þyki
ég hávaxin en í liðinu er ég bara í
meðalhæð. Finnur er 208 svo ég get
hæglega verið á hælum,“ segir hún
brosandi og játar því að börn þeirra
verði eflaust hávaxin. „Það er ekkert
ólíklegt. Ég hef allavega heyrt þó
nokkra brandara tengda því að ég
yrði að ná mér í körfuboltamann
svo við getum búið til framtíðar-
landsliðsfólk.“ n
indiana@dv.is
Fann ástina í körfunni
Helena Sverrisdóttir landsliðsfyrirliði æfir og keppir í Póllandi
Körfuboltapar Helena og Finnur hafa
verið saman í tæpt ár.
Atvinnumaður Helena er fyrirliði
íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta.
Hún býr í Póllandi.
Saknar kærastans Helena og Finnur eru
dugleg að heimsækja hvort annað.
Upptekin ný-
bökuð mamma
Það er í nógu að snúast hjá
textasmiðnum og listakonunni
Bergrúnu Íris Sævarsdóttur. Berg-
rún á textann í laginu Þú leitar
líka að mér sem hljómsveitin
Hinemoa flytur í Söngvakeppni
sjónvarpsins á laugardaginn.
Bergrún Íris er nýbökuð móðir
og mun því fylgjast með keppn-
inni heima í sófa í félagsskaps
litla nýfædda krílisins.
Að auki verður Bergrún á
Bessastöðum á föstudaginn
þegar Íslensku bókmennta-
verðlaunin verða afhent en hún
myndskreytti bókina Síðasti
galdrameistarinn eftir Ármann
Jakobsson.
Ofan á allt saman mun svo
hún svo halda nafnaveislu fyrir
erfingjann á sunnudaginn.
Frægir á skíðum
Útvarpsmaðurinn vöðvastælti
Ívar Guðmundsson nýtur þessa
dagana lífsins í ítölsku Ölpunum.
Ívar er staddur í Selva á Ítalíu
þar sem hann er á skíðum ásamt
fríðu föruneyti.
Á meðal þeirra sem renna sér
í brekkunum eru athafnamaður-
inn Guðvarður Gíslason, betur
þekktur sem Guffi, fyrrverandi
forstjóri 365 veldisins, Ari Edward
og hans kona, Gyða Dan Johan-
sen, og hjónakornin Bjarni Ár-
mannson og Helga Sverrisdóttir.