Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2015, Blaðsíða 15
Helgarblað 30. janúar–2. febrúar 2015 Fréttir 15
mánuði í viðbót áður en hún gafst
upp og flúði sjálf eigið heimili.
Hafði hótað að
senda myndböndin
Föstudaginn fyrir jól fékk Julie
símtal frá lögreglu þar sem henni
var tilkynnt að maðurinn yrði
loksins fjarlægður af heimilinu.
Hún segist hins vegar hafa beðið
lögregluna um að bíða þar til eft-
ir jól. „Á þessum tímapunkti hafði
ég greinilega enn einhverja sam-
úð með honum, því mér fannst
hræðilegt að henda honum út
um jólin. Eftir á að hyggja velti ég
fyrir mér hvort það hafi verið mis-
tök, því eftir jól var einhverra hluta
vegna ekki hægt að henda honum
út,“ segir Julie.
Stuttu eftir jól fór Julie í viðtal
til lögreglu því þá hafði maðurinn
byrjað að hóta því að senda nektar-
myndböndin til vinnufélaga henn-
ar. „Ég hafði samstundis samband
við mannauðsstjóra fyrirtækisins
og bað hann um að loka á tölvu-
póstfangið hans. Laugardaginn
eftir þetta sendi hann annan
tölvupóst, frá öðru tölvupóstfangi
sem hann hafði búið til, þar sem
hann hótaði aftur að senda vinnu-
félögum mínum myndböndin. Ég
reyndi að láta loka á nýja tölvu-
póstfangið líka en þar sem þetta
var um helgi var það ekki hægt.
Þegar ég vaknaði á mánudeginum
hafði hann sent myndböndin til
vinnufélaga minna og skjáskot úr
myndböndunum til vina minna á
Facebook,“ segir Julie.
Sýndi iðrun
Sama dag og maðurinn sendi
vinnufélögum Julie kynlífsmynd-
böndin átti hún fund með lög-
reglunni vegna beiðni hennar um
nálgunarbann og útburð. Hún
lagði fram þessi nýju gögn og var
fullvissuð um að málið færi fyrir
héraðsdóm von bráðar.
„Stuttu síðar var hann kall-
aður í viðtal, örugglega í kring-
um eittleytið, og að því loknu var
ákveðið að fara ekki með mál-
ið fyrir héraðsdóm. Mér var sagt
að dómari myndi aldrei fallast á
nálgunarbann,“ segir Julie og varð
skiljanlega mjög brugðið við þessa
niðurstöðu. „Hann var víst mjög
afsakandi í viðtalinu og viður-
kenndi að hafa sent myndböndin.
Hins vegar stóð hann fastur á því
að hafa ekki beitt mig ofbeldi.
Hann sagðist hafa sent mynd-
böndin því hann væri reiður út í
mig og þetta hafi átt að vera hefnd
fyrir að ljúga upp á hann í fjölmiðl-
um. Lögfræðingurinn minn sagði
að í málum sem þessum væri tek-
ið til greina hversu mikla iðrun
menn sýndu. Hann baðst sem sagt
afsökunar á því að hafa, nokkrum
klukkutímum fyrr, sent kynlífs-
myndbönd af mér til samstarfsfé-
laga minna.“
Eftir að viðtali mannsins hjá lög-
reglunni lauk þennan umrædda
mánudag hringdi lögfræðingur
Julie í hana og var, að sögn Julie,
afar hissa á að málið hefði farið í
þennan farveg. Fyrr um morgun-
inn hefði Julie verið fullvissuð um
að málið færi fyrir héraðsdóm.
„Um leið og hann gekk út af lög-
reglustöðinni sendi hann vinkonu
minni hins vegar SMS. Hann sagð-
ist hafa verið í tveggja tíma við-
tali á lögreglustöðinni og að eftir
hálftíma hefðu lögregluþjónarnir
verið komnir á hans band. Hann
sagði sannleikann alltaf vinna og
hló. Hann iðraðist ekki meira en
þetta.“
Andlega ofbeldið verra
Julie hringdi í lögfræðing sinn um
leið og hún frétti af skilaboðun-
um. Í kjölfarið ákvað ákæruvaldið
að fara með málið fyrir héraðs-
dóm og fara fram á nálgunarbann.
Hinn 15. janúar staðfesti héraðs-
dómur ákvörðun lögreglustjórans
á höfuðborgarsvæðinu um nálg-
unarbann en sem kunnugt er
felldi Hæstiréttur nálgunarbannið
úr gildi þann 22. janúar síðast-
liðinn. Ákvörðun Hæstaréttar er,
sem áður segir, byggð á þeirri stað-
reynd að nokkur tími er liðinn frá
því maðurinn beitti Julie síðast lík-
amlegu ofbeldi. Ekki er tekið tillit
til þess að fyrr í mánuðinum hafi
hann sent kynlífsmyndbönd af
Julie til samstarfsfélaga hennar og
áreitt hana stöðugt með hótunum
og skilaboðum.
„Ég var gjörsamlega eyðilögð,”
segir Julie um ákvörðun Hæsta-
réttar. Í hennar huga hefur andlega
ofbeldið alltaf vegið þyngra en lík-
amlega ofbeldið. Þá segist hún líta
á sendingu kynlífsmyndbandanna
sem kynferðislegt ofbeldi. „Ég hef
passað mig á því að fara aðeins
með staðreyndir, bæði hjá lögreglu
og í fjölmiðlum. Staðreyndir sem
ég get fært sönnur fyrir. Ég er ekki
að kvarta yfir einstaka rifrildi eða
ósætti sem öll pör ganga í gegn-
um. Þess vegna skil ég ekki þessa
niðurstöðu.“
Vildi ekki verða þekkt andlit
Stuttu eftir að Julie flutti út af
heimilinu kærði hún manninn
fyrir líkamlegt ofbeldi. Hún hefur
nú einnig kært hann fyrir að senda
kynlífsmyndböndin. Málin eru
enn til rannsóknar hjá lögreglu og
því óvíst hvort hann verður ákærð-
ur eða dæmdur fyrir brotin. „Ef
Hæstiréttur felldi nálgunarbannið
úr gildi vegna þess hve langur tími
er liðinn frá því ofbeldið átti sér
stað, hvað mun þá gerast þegar
kæran verður loksins tekin til
meðferðar og enn lengri tími verð-
ur liðinn?“ spyr Julie og hefur aug-
ljóslega litla trú á íslensku réttar-
kerfi.
„Það kom mér ekki á óvart
þegar mér var sagt að Hæstiréttur
hefði fellt nálgunarbannið úr
gildi. Ég er orðin svo vön þessari
framkomu í réttarkerfinu. Ég var
gjörsamlega eyðilögð og grét í
nokkrar klukkustundir. Innst inni
vissi ég að þetta myndi gerast. Síð-
ar um kvöldið ákvað ég að komið
væri að næstu lotu. Ég ákvað að
stíga fram og sýna andlit mitt. Ég
veit ekki hvernig fólk sér almennt
fyrir sér konu sem hefur orðið fyr-
ir ofbeldi. Hún getur verið góð-
ur samfélagsþegn, vel menntuð,
vel máli farin og góð móðir. Fólk
verður að gera sér grein fyrir því að
þetta getur hent hvern sem er.“
Julie viðurkennir að það hafi
vissulega verið erfið ákvörðun að
stíga fram undir nafni og mynd.
Hún hafi ekki viljað verða þekkt
andlit. Meðan á þessu viðtali stóð,
sem tekið var á kaffihúsi í Reykja-
vík, kom maður upp að Julie og
sagðist þekkja hana úr fréttun-
um. Hann sagðist styðja hana og
bað hana að halda áfram að vera
sterka. Julie tjáir blaðamanni að
þetta sé ekki í fyrsta skipti sem
þetta hefur gerst í vikunni.
Getur ekki niðurlægt mig meir
Julie segist sárust yfir því að hon-
um hafi verið leyft að leika fórn-
arlambið. Það sé hún sem sé
brotaþoli í þessu máli. Þrátt fyr-
ir að líkamlega ofbeldið hafi hætt
þegar hún ákvað að flýja heim-
ilið, þá hefur andlega ofbeldið
haldið áfram. Julie segist alltaf
vera að gera sér betur grein fyr-
ir því hversu alvarlegt andlega of-
beldið var þessi þrjú ár sem sam-
bandið stóð yfir. „Á endanum var
ég orðin vön þessu ástandi, and-
legu ofbeldi á hverjum einasta
degi. Þetta er sama tilfinning og ég
finn nú gagnvart réttarkerfinu. Ég
er orðin vön sársaukanum.“
Julie segir ekkert sem maður-
inn geti gert úr þessu sem muni
valda henni meiri sársauka en
hann hefur þegar gert. Aðspurð
hvort hún sé ekki hrædd um að
hann setji myndböndin á netið
svarar Julie: „Á þessari stundu er
mér eiginlega alveg sama. Ég ein
veit hvað ég hef gengið í gegnum
og það er ekkert meira sem hann
getur gert mér. Hann getur ekki
niðurlægt mig meira. Ef hann set-
ur myndböndin á netið núna yrði
það verst fyrir hann sjálfan. Það
yrði bara enn ein sönnunin fyrir
því að hann er í eðli sínu ofbeldis-
fullur maður. Ég hef ekkert að ótt-
ast.“
Aldrei snúist um hefnd
Enn býr maðurinn í íbúð Julie
á meðan hún dvelur í Kvenna-
athvarfinu. Síðast þegar DV ræddi
við Julie hafði hún látið gera leigu-
samning í von um að geta þannig
hent honum út. „Lögreglan bað
mig um að fara aðra leið. Vildu að
hann yrði rekinn út vegna ofbeld-
isins og á grundvelli austurrísku
leiðarinnar,“ segir Julie, en eins og
áður segir gekk þessi áætlun ekki
eftir. „Nú ætla ég að fara þessa leið
aftur. Ég ætla að leigja íbúðina út
fyrir alvöru og leigja sjálf annars
staðar. Ég er þegar byrjuð að leita
mér að íbúð. Það er það eina sem
ég get gert.“
Julie segist ekki vita hvað fram-
tíðin ber í skauti sér fyrir hana.
Rannsókn lögreglu vegna ofbeld-
isins stendur enn yfir og bind-
ur hún vonir við að henni muni
lykta með ákæru. Á meðan muni
hún halda áfram að berjast fyrir
börnunum sínum. „Fyrir mér hef-
ur þetta aldrei snúist um hefnd,“
segir hún. „Ég er að gera allt sem
í mínu valdi stendur til þess að
vernda börnin mín og eitt af því
er að komast á heimilið mitt að
nýju. Ég þarf einnig að halda starf-
inu mínu, en það er eitt af því sem
hann er að reyna að taka af mér.
Við búum ekki lengur saman en
hann heldur áfram að kvelja mig.
Ég hef ekki hugmynd um hvort,
eða hvenær, hann mun hætta.“
Aðspurð hvenær maðurinn
hafi síðast áreitt hana svarar Julie:
„Í gærkvöldi.“ n
n Maðurinn sendi kynlífsmyndbönd af Juliane n Vildi hefna fyrir umfjöllun
n Var eyðilögð þegar Hæstiréttur felldi nálgunarbannið úr gildi
„Á endanum var ég orðin
vön þessu ástandi, and
legu ofbeldi á hverjum einasta
degi. Þetta er sama tilfinning
og ég finn nú gagnvart réttar
kerfinu.
Bókamarkaður
2015
Árlegur bókamarkaður
Félags íslenskra bókaútgefenda
verður 27. febrúar til 15. mars
næstkomandi.
Útgefendum sem vilja bjóða
bækur sínar á markaðinum
er bent á að hafa samband við
Félag íslenskra bókaútgefenda
sem fyrst, eða eigi síðar en
6. febrúar n.k., í síma 511 8020
eða á netfangið fibut@fibut.is