Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2015, Side 44

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2015, Side 44
44 Lífsstíll Helgarblað 30. janúar–2. febrúar 2015 S æl, Ragga Ég er svolítið rugluð í ríminu núna. Ég er einstæð móð- ir, 49 ára með tvö börn. Eft- ir skilnað fyrir tveimur árum er ég nýlega byrjuð að leita fyrir mér í samskiptum við aðra menn. Ég er búin að hitta nokkra á stefnumót- um, en ekkert hefur endað í meiru en smá daðri. Nú er ég í erfiðri stöðu. Ég fór á djammið og lenti á spjalli við fal- legan „dreng“, sem sýndi mér mik- inn áhuga. Hann er 26 ára og hefur mikinn áhuga á að vera með eldri konu. Síðan þá höfum við spjallað heilmikið saman, bæði á netinu og í síma. Hann er yndislegur, vel vaxinn og gefandi karlmaður, en aldurs- munurinn hræðir mig. Við höfum sömu skoðanir á kynlífi, og lífinu yfirhöfuð, en það truflar mig að ég gæti verið móðir hans. Vinkonum mínum finnst þetta viðbjóðslegt og segja mig skrítna. Mig langar svo að upplifa stund- ir með honum og leyfa honum að leika við mig eins og hann vill. Eitthvað segir mér samt að það sé ekki rétt vegna aldursmunar- ins. Þetta yrði svo sem aldrei neitt meira en freistandi leikur fyrir mig, en hvar dregur maður mörkin? Bestu kveðjur, Anna Sæl, Anna Til að byrja með langar mig að biðja þig að snúa hlutunum við og hugsa aldursmuninn upp á nýtt. Ég er viss um að þú hefur oft heyrt um 49 ára karlmenn sem hafa átt 26 ára ást- konur eða kærustur. Kannski hef- ur þú hugsað „einn að yngja upp“ eða „hann er aldeilis hress“, en ég er nokkuð viss um að tilfinningar þínar hafi ekki rist mikið dýpra. Kynjamisrétti Í samfélagsgerð okkar er rík hefð fyrir því að sætta sig við talsverðan aldurs- mun þegar karlinn er eldri, en for- dómarnir eru skammt undan ef það er á hinn veginn. Í amerískum sjónvarps- þáttum eru konur sem kjósa að leggja lag sitt við yngri menn kallaðar fjalla- ljón (e. cougars), og iðulega sýndar í níðþröngum hlébarðabuxum og mjög efnislitlum og flegnum bolum. Ungu mennirnir eru kallaðir bjarnarhún- ar (e. cubs), og þrátt fyrir að vera buffaðir mjög, virðast þeir varnar- lausir gegn hinum sækjandi kvendýr- um. Orðræðan og staðalmyndirnar gefa til kynna að þessar konur séu að gera eitthvað siðferðilega rangt og nýti sér innbyggða greddu litlu loðbolt- anna, sem þeir auðvitað geta ekkert gert að. Ef þú aftur á móti leiðir hug- ann að ímyndinni sem umlykur eldri karlmenn með yngri konum, er ann- að upp á teningnum. Þeir birtast okk- ur sem fágaðir mentorar, ungir í anda, leiðandi og sterkir. Í stóra samhenginu er þetta auðvitað ekkert annað en samfélagsleg birtingarmynd kynja- misréttis – sem þarf að leiðrétta. Vinkvennavandamál En snúum okkur að „vandamálinu“ þínu. Reyndar mundi ég vilja kalla þetta vandamál vinkvenna þinna, því þær eru vælandi yfir þessu – ekki þú. Vissulega getur verið munur á þroska og fyrirætlunum hjá einstaklingum sem 23 ár skilja að, en þið eruð bæði fullorðin. Ef þig langar að vera með manninum hvet ég þig til að láta verða af því – þú ein getur tekið þá ákvörðun. Ég ráðlegg þér að vera skýr um fyrirætl- anir þínar frá upphafi, líkt og ég mundi ráða fólki á hvaða aldri sem er. Ef hann lætur sig dreyma um sameiginlegan fjárhag og hversdagsferðir í Bónus, en þú einblínir á nautnir holdsins, gæti ráðahagurinn verið slæmur. Að lokum vil ég vitna í orð Dans Savage, kynlífsráðgjafa í Seattle, um sambönd þar sem talsverður aldurs- munur kemur við sögu. Hann kall- ar þetta tjaldstæðisregluna: Ef þú átt í sambandi við yngri einstakling, skildu hann þá eftir í betra ástandi en þú fannst hann. Gangi þér vel og góða skemmtun, Ragga. n Eldri kona girnist mun yngri mann n Er 23 ára aldursmunur í lagi? n Vinkonurnar yfir sig hneykslaðar Cougartown Ameríska þáttaserían þar sem Courtney Cox Arquette lék hlutverk fjallaljónsins. „Hann er yndisleg- ur, vel vaxinn og gefandi karlmaður, en aldursmunurinn hræð- ir mig. Við höfum sömu skoðanir á kynlífi, og lífinu yfirhöfuð, en það trufl- ar mig að ég gæti verið móðir hans. Ragnheiður Eiríksdóttir ragga@dv.is V ið höldum áfram að fræðast um áhugaverð- ar kynlífsstellingar sem stellingafræðingur Kyn- lífspressunnar er búinn að prófa, af einskærri óeigingirni: „Í þessari stellingu er lykil- atriði að hafa kodda, sæng eða eitthvað annað upprúllað und- ir maganum. Ef ekki er hugað að þessu geta mjaðmabeinin kramist óþægilega. Þessi stelling er fín ef karlmaðurinn er með langt typpi, því hún lengir innganginn, ef svo má að orði komast. Það er meira hold sem örvar og nuddar liminn. Fyrir mig er þessi stelling frekar heftandi, ég get hvorki hreyft mig né horft í augu hans, en ef ég er í undirgefnu skapi virkar hún vel. Í þannig aðstæðum vil ég að að mér sé þrengt. Kannski má líkja stell- ingunnni við fjötra, án þess að bönd eða ólar séu til staðar.“ Kynlífspressan bendir á að stellingin virkar að sjálfsögðu líka fyrir tvo karlmenn sem njótast. n Stelling vikunnar Hraðahindrunin Um stellinga- sérfræðinginn Hún er gagnkynhneigð kona sem á einn eiginmann, einn kærasta og einn elskhuga. Þeir vita allir hver af öðrum og hafa hist. Hún er mikil nautnagyðja, líkaminn er mjúkur og brosið blítt. Kynlíf stundar hún að jafnaði þrisvar í viku með ástmönnum sínum. Líkt og fjötrar Góð stelling ef karlmaðurinn er með langt typpi. Hugleiðingar konu sem vill drottna í kynlífi Þar til nýlega hafði ég aldrei kannað möguleikann á drottn- un í kynlífi án samviskubits. Ég hélt að þá þyrfti ég að fara í karl- mannlegt kvenhlutverk sem myndi ekki hæfa mér. Hægt og rólega fór ég að skilja að það að drottna er ekki að bara að sýna karlmannlega frekju – heldur snýst það um öryggi og sjálfs- traust og næmi fyrir þörfum og væntingum leikfélagans. Dáist að mér Uppskriftin er þess vegna einhvern veginn svona: Karlmað- ur sem þráir að láta sterka konu segja sér fyrir verkum og stjórna sér. Hann heillar mig og dáist að mér fyrir útlit mitt og hegðun. Hann kann að meta hvernig ég ber mig í eggjandi klæðnaði og hlýðir að auki þeim óskum sem ég legg fram á þokkafullan, ögrandi og skemmtilegan hátt. Fyrir mér eru þetta formerkin fyrir farsælt samband drottnandi konu og undirgefins manns (D/u-samband). Dónalegir karlmenn Það hafði lengi truflað mig hversu margir karlkyns drottnar- ar eru grófir og dónalegir gagnvart kvenkyns, undirgefnum leik- félögum sínum. Ég áttaði mig svo á að þessir grófu einstak- lingar gefa alls ekki góða mynd af því hvernig D/u-samband getur litið út. Að mínu mati ætti sú drottnandi að leggja rækt og orku í að komast að því hvað hinn undirgefni vill í raun og veru og hvetja viðkomandi til að prófa nýja hluti og upplifa fantasíur á öruggan hátt. Þannig samband finnst mér fallegt – eins og að vera með kynferðislegan og and- legan einkaþjálfara. En það krefst mikils trausts og virðingar. Mýkt, húmor og hlýja Ég þarf að kanna betur hvar mörk- in liggja. Mig grunar að ég velji mjúka leiki en ekki harða, í það minnsta á þessu stigi. Ég er tilbúin að skipa og láta dást að mér, en langar ekki að niðurlægja eða meiða. Það er í lagi að leikfélaginn komi með óskir um klæðnað eða það sem er gert, en endanlega er það ég sem ræð. Ég vil halda í húmor og hlýju í leiknum. Allt þetta verð ÉG að vera viss um áður en ég set mig í aðstæður með undirgefn- um karlmanni. Aston Kutcher og Demi Moore Á meðan allt lék í lyndi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.