Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2015, Qupperneq 18
Helgarblað 30. janúar–2. febrúar 201518 Fréttir
O
kkar stefna hentar börn-
um misvel og þess vegna
er svo mikilvægt að fólk
hafi val.“ Þetta segir Ás-
laug Hulda Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri Hjallastefnunn-
ar, í samtali við DV. Töluverð um-
ræða hefur orðið um Hjallastefn-
una eftir að Anna Ingólfsdóttir,
prófessor í tölvunarfræði við Há-
skólann í Reykjavík, skrifaði harð-
orða gagnrýni á stefnuna á Face-
book-síðu sinni um síðustu helgi.
Anna færði dóttur sína úr skóla
Hjallastefnunnar þegar í ljós kom
„að það var eitthvað stórkostlega
mikið að bæði í kennslu í skólan-
um og ekki síst samskiptum við for-
eldra,“ eins og Anna orðar það sjálf.
Fékk engar upplýsingar
Töluvert ósamræmi var milli niður-
staðna úr samræmdum prófum
og dómum úr þriðja bekk í Hjalla-
stefnunni hjá dóttur Önnu. Þegar
það varð ljóst fór Anna að kalla
eftir gögnum frá skólanum svo
hún gæti sjálf séð námslega stöðu
dóttur sinnar. „Ég er með fullt af
tölvusamskiptum við skólann þar
sem ég bað um upplýsingar um
barnið. Ég bað um að sjá námskrá,
námsgögn og allar þær upplýs-
ingar sem foreldrar þurfa að fá
til þess að sjá hvort barnið þeirra
fylgir áætlun,“ segir Anna í samtali
við DV. Þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir
segist Anna hins vegar ekki hafa
fengið nein gögn. „Það er alveg
sama hver ástæðan fyrir slæmum
námsárangri er, hvort sem það eru
námsörðugleikar eða handvömm
hjá skólanum, þá eiga foreldrar
alltaf heimtingu á að fá þessar upp-
lýsingar svo þeir geti gripið inn í. Ég
fékk þær ekki þarna þrátt fyrir að
hafa margbeðið um þær.“
Í kjölfarið flutti Anna dóttur
sína úr Hjallastefnuskólanum og
í hverfisskólann. Þar kom í ljós að
hún hafði farið á mis við stóran
hluta þess námsefnis sem aðal-
námskrá kveður á um. „Ég sit uppi
með barn sem þjáist af minnimátt-
arkennd fyrir að kunna ekki fag sem
skólanum var ætlað að kenna og
mér finnst það algjörlega skólan-
um að kenna. Þetta er skólastefna
sem stærir sig af því að efla sjálfs-
traust barna – sérstaklega stúlkna,“
segir Anna en hún sendi skóla-
stjóra Hjallastefnuskólans og Mar-
gréti Pálu Ólafsdóttur, stofnanda
Hjallastefnunnar, harðort bréf þar
sem hún hótaði að skrifa mennta-
málaráðuneytinu vegna málsins.
Hún var þá boðuð á fund verk-
efnastjóra grunnskóla Hjalla-
stefnunnar. „Þessi verkefnastjóri
viðurkenndi beinlínis fyrir mér að
kennslan í grunnskólum Hjalla-
stefnunnar væri í miklum ólestri og
fullyrti að ég væri ekki sú eina sem
hefði kvartað yfir ástandinu,“ skrif-
ar Anna.
Verkefnastjórinn sem Anna vís-
ar í er Sara Dögg Svanhildardóttir
en hún heldur utan um grunn-
skólamál Hjallamiðstöðvar. Sara
Dögg vildi ekki ræða málið við DV
þegar eftir því var leitað. Þá náðist
ekki í Margréti Pálu Ólafsdóttur,
fræðslustjóra Hjallastefnunnar, við
vinnslu fréttarinnar.
Ekki hafin yfir gagnrýni
Áslaug Hulda segir erfitt að tjá
sig um það sem fram fer á tveggja
manna fundi en það muni enginn
hjá Hjallastefnunni halda því fram
að skólarnir séu hafnir yfir gagn-
rýni. „Á hverjum degi erum við að
reyna að gera betur og það á við
um Hjallastefnuna sem og allt ann-
að skólastarf. Menntun er í stöð-
ugri þróun og allir reyna að gera sitt
besta. Þegar einhver fer að halda
því fram að ekkert megi fara betur,
þá held ég að við séum komin á
vondan stað. Það sem við höfum
reynt að halda á lofti er að einstak-
lingar eru ólíkir og þurfa ólíka og
fjölbreytta valkosti.“
Er þá ekki rétt að það hafi borist
fjöldi kvartana vegna kennslu í
grunnskólum Hjallastefnunnar? „Ég
get ekki tekið undir það. Auð vitað
hafa foreldrar gert athugasemdir
við skólastarfið og við leggjum mjög
mikla áherslu á náið samstarf við
foreldra. Við erum í daglegum sam-
skiptum við fjölskyldurnar um hvað
við erum að gera og hvað megi bet-
ur fara. Auðvitað er fólk misánægt,“
svarar Áslaug Hulda.
Árangurinn talar sínu máli
„Við erum búin að funda með
þessari móður, fara yfir málið og
útskýra hvernig þetta lá. Líklega eru
þarna einhverjir þættir sem hafa
ekki farið nógu vel hjá okkur en við
erum alltaf að reyna að gera okkar
besta. Auðvitað er leiðinlegt að fjöl-
skylda fari ósátt frá okkur,“ segir Ás-
laug Hulda.
Hún segir árangur Hjallastefn-
unnar hins vegar tala sínu máli.
Niðurstöður samræmdra prófa
þess árgangs sem umrætt barn
var í hafi til að mynda verið vel
yfir meðaltali annarra grunnskóla
í Reykjavíkurborg. Þá sé brott-
fall lítið, ánægja mælist mikil og
eftirspurnin sé sömuleiðis mikil.
Að auki hafi Reykjavíkurborg í fyrra
gert úttekt á öllum grunnskólum
borgarinnar þar sem Barnaskóli
Hjalla stefnunnar í Reykjavík hafi
komið einstaklega vel út. „Þetta
er til dæmis eini skólinn í höfuð-
borginni þar sem mælist ekkert
einelti,“ segir Áslaug Hulda. n
Nokkrar
staðreyndir um
Hjallastefnuna:
n Hjallastefnan var stofnuð árið
2000 af Margréti Pálu Ólafsdóttur.
n Skólastarfið er kynjaskipt með það
að markmiði að gera báðum kynjum
ávallt jafnhátt undir höfði og mæta
ólíkum þörfum stúlkna og drengja.
n Hjallastefnan rekur í dag 17 skóla í
tíu sveitarfélögum.
n Skólarnir innheimta flestir skóla-
gjöld, en fá einnig framlög frá sveitar-
félögunum. Almennt gildir að sveitar-
félög skuli greiða að lágmarki 70–75%
af rekstrarkostnaði einkaskóla.
n Hjallastefnan ehf. stendur afskap-
lega vel. Samkvæmt ársreikningi árið
2013 skilaði félagið rúmlega 58 millj-
óna króna hagnaði. Eignir félagsins
nema tæpum 645 milljónum króna og
þá er eigið fé Hjallastefnunnar rúmar
355 milljónir króna.
n Hjallastefnan styrkti Sjálfstæð-
isflokkinn um 90 þúsund krónur árið
2013. Samkvæmt upplýsingum frá
Ríkisendurskoðun er Sjálfstæðisflokk-
urinn eini stjórnmálaflokkurinn sem
Hjallastefnan styrkti það ár.
n Fer hörðum orðum um Hjallastefnuna n Framkvæmdastjóri segir stefnuna ekki henta öllum
„Þetta er skólastefna sem
stærir sig af því að efla sjálfs-
traust barna – sérstaklega stúlkna
Áslaug Karen Jóhannsdóttir
aslaug@dv.is
Gagnrýnir skólann
harðlega Anna Ingólfsdóttir
segir eitthvað stórkostlega
mikið að, bæði í kennslu og í
samskiptum við foreldra.
Hentar börnum misvel Áslaug Hulda
Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Hjallastefn-
unnar, segir einstaklinga ólíka og þurfa ólíka
og fjölbreytta valkosti. Mynd Garðabær
„AlgjörlegA
skólAnum Að kennA“
Verulega
ósátt Anna
Ingólfs-
dóttir sendi
skólastjóra
Hjallastefnu-
skólans og
Margréti Pálu
Ólafsdóttur
harðort bréf
vegna málsins.
Mynd SiGtryGGur ari