Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2015, Síða 25
Fréttir Erlent 25Helgarblað 30. janúar–2. febrúar 2015
Betra blóðflæði
betri heilsa
Fæst í Apótekum
og heilsubúðum
Vegna stóraukinnar sölu hefur Neogenis lab
lækkað verðið svo um munar
lækkað
verð
Nitric Oxide
1. dós superbeets
= 30 flöskur af 500 ml rauðrófusafa
Rauðrófu kristall
100% náttúrulegt ofurfæði
Einstök virkni og gæði - þú finnur muninn
N
án
ar
i
u
p
p
lý
si
n
g
ar
w
w
w
.S
UP
ER
BE
ET
S.
is
U
m
bo
ð:
v
ite
x
eh
f
70 ár frá frelsun
Auschwitz
Minningarathöfn var haldin á þriðjudag
um voðaverkin í útrýmingarbúðunum
Á
þriðjudag var þess minnst
að 70 ár væru liðin frá því
að fangarnir í Auschwitz,
útrýmingarbúðum nas-
ista, voru frelsaðir. Talið
er að um 1,3 milljónir manna hafi
verið drepnar í búðunum en þegar
fangarnir voru frelsaðir, þann 27.
janúar 1945, voru þar um sjö þús-
und manns, um 90 prósent þeirra
voru gyðingar. Minningarathöfn
var haldin í Auschwitz á þriðjudag
og voru þar viðstaddir 300 einstak-
lingar sem eiga það sameiginlegt
að hafa verið fangar í Auschwitz.
Hér gefur að líta myndir frá ljós-
myndurum Reuters frá athöfn-
inni. n
Merktur Úkraínumaðurinn Igor Malicki var einn
þeirra sem komust lífs af úr útrýmingarbúðum
nasista í Auschwitz. Líkt og aðrir fangar var hann
merktur númeri og sýnir hann hér ljósmyndara
Reuters ummerkin sem enn má sjá greinilega þó
að 70 ár séu liðin frá frelsun fanganna í búðunum.
Kveikt á kertum Hér sést hópur barna leggja kerti á hvíldarstaði þeirra sem voru drepnir í
útrýmingarbúðunum. Flestir þeirra sem voru drepnir voru gyðingar en einnig voru Rómafólk
og sovéskir stríðsfangar meðal fórnarlamba nasista í útrýmingarbúðunum í Auschwitz.
Erfið stund Kanadamaðurinn Mordechai Ronen, sem heldur hér um höfuð sér, átti erfitt
með að hemja tilfinningar sínar þegar hann heimsótti Auschwitz á dögunum. Hann var einn
þeirra þrjú hundruð fanga sem lifðu af og voru samankomnir á minningarathöfninni. Fyrir
aftan hann stendur Ronald S. Lauder, forseti alþjóðasamtaka gyðinga.
Þekkt andlit Margt þekkt fólk lét sjá sig á minningarathöfninni. Meðal þeirra var
bandaríski leikstjórinn Steven Spielberg. Spielberg, sem er gyðingur, gerði meðal annars
hina eftirminnilegu Óskarsverðlaunamynd Schindler's List árið 1993. Helförin var einmitt
viðfangsefni myndarinnar en hún sagði frá Oscari Schindler sem bjargaði 1.100 gyðingum frá
því að verða sendir til Auschwitz.