Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2015, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2015, Blaðsíða 26
Helgarblað 30. janúar–2. febrúar 201526 Umræða Lögreglustöðin grýtt og bílum hvolft M örgum finnst nóg um sprengingar, ærsl og læti á gamlárskvöld nú til dags. Þau ólæti eru þó ekkert í líkingu við það sem tíðk- aðist í höfuðstaðnum á fyrri hluta síðustu aldar. Snemma varð siður í Reykjavík eftir klukkan 21.00 á gamlárskvöld að fólk safnaðist saman í götum bæjarins til að kasta skot- eldum, kínverjum og púðursprengj- um. Árið 1924 keyrðu sprengingar í Austurstræti svo fram úr hófi að stór- ar rúður í búðargluggum sprungu. Sama kvöld kviknaði í húsi við Banka- stræti er sprengju var kastað þar inn um glugga og þá missti maður sjón á öðru auga er sprengju var fleygt að honum. Á gamlárskvöld 1925 hófst sá ljóti ósiður að hvolfa bifreiðum, en það kvöld voru fjórar aldraðar konur í bifreið á Bókhlöðustíg á leið til aftan- söngs í Dómkirkjunni er „óspektar- mönnum“ tókst að stöðva bifreiðina og velta henni út á hlið. Hugðust þeir því næst velta henni niður brekkuna. Lögreglu tókst að afstýra þessu með því að „berja óspektarmennina með kylfum“ eins og segir í frásögn Erlings Pálssonar yfirlögregluþjóns af þess- um atburði í Vísi. Óspektir voru með svipuðu sniði næstu árin, en á gamlárskvöld 1935 var óvenju mikið ölæði í bænum. Unglingar reyndu víða að kveikja bál úr kassarusli, en einnig var gerð til- raun til að bera eld að jólatré Hjálp- ræðishersins á Austurvelli. Fór svo að lögregla fjarlægði tréð. Unglingspilt- ar brugðu þá á það ráð að sækja grjót niður í fjöru og hófu að grýta lög- reglustöðina. Brotnuðu alls sex rúð- ur í húsinu. Árið eftir varð íkveikju- æði í bænum á gamlárskvöld og víða lá við stórtjóni. Þá var veist að lög- reglumanni með eggvopni og hann sviptur klæðum. Aðsúgur var gerður að fleiri lögreglumönnum og reynt að kveikja í búningum þeirra. Bareflum beitt og grjóti kastað Árið 1943 var lögreglu nóg boðið og efndi hinn 28 ára gamli lögreglu- stjóri, Agnar Kofoed-Hansen, til blaðamannafundar fyrir gamlársdag þar sem birt var skýrsla Erlings Páls- sonar yfirlögregluþjóns um skrílslæti á gamlárskvöldum fyrri ára. Agnar nefndi á fundinum að venjulega færu óspektirnar fram með þeim hætti að óróaseggir söfnuðust saman á götu- hornum og hæfu „óp og ergilæti“. Fólk safnaðist þá saman og héldi að eitthvað væri um að vera. „Síðan teymdu strákapésarnir allan múginn á eftir sér,“ eins og það var orðað. For- eldrum var ráðlagt að halda börnum sínum innandyra „ef hægt væri“ og fullorðið fólk sem vildi forðast rysk- ingar var hvatt til að vera ekki á ferli í miðbænum. Í skýrslu yfirlögregluþjóns voru ýmsir atburðir fyrri gamlárskvölda rifjaðir upp. Búðargluggar höfðu verið brotnir, kveikt í klæðum stúlku, bifreiðum með farþegum velt og brotnar í þeim rúður. Eitt sinn var bifreið borin úr Veltusundi niður á hafnarbakka og átti að kasta henni í sjóinn með bílstjóranum í, en lög- reglu tókst að afstýra því. Þá hafði lögregla lent í bardögum við flokka óspektarmanna, sem beitt höfðu bareflum og grjóti og hér er að- eins fátt eitt nefnt úr upptaln- ingu yfirlögregluþjónsins. Látlaus ófriður alla nóttina Meiri róstur urðu á gamlárs- kvöld 1946, en árin á undan. En frá klukkan 20.00 að kvöldi gamlársdags og fram til klukk- an 3.30 á nýársmorgun átti lögregla í látlausum ófriði við „götulýðinn“ eins og það var orðað í fréttum. Ólætin hófust snemma kvölds með því að mannfjöldi safnaðist saman í Austurstræti og Pósthússtræti. Urðu þar sprengingar og „alls konar ólæti“. Víða var kveikt í rusli og öðru sem logað gat og við hús Fiskifélagsins við Ingólfsstræti (nú Hótel Arnarhvoll) var kveikt mikið bál. Atlögur voru gerðar að jólatrénu á Austurvelli og víðar reynt að kveikja elda. Hús Búnaðarbankans í Austur- stræti var þá í byggingu og vinnu- pallar utan á húsinu. Nokkrir drengir klifruðu upp pallana og þrír lög- reglumenn á eftir. Einum drengj- anna tókst að komast alla leið upp á þak, en var þar handsamaður af lög- reglu, sem batt hann í kaðal og lét renna honum þannig niður með hlið hússins. Er hann var kominn til móts við neðsta vinnupallinn skar einhver á kaðalinn og reyndi drengurinn að forða sér, en lögregla náði honum brátt. Mannfjöldinn æstist við þetta og réðst á lögreglumennina sem höfðu handsamað drenginn. Beitti lögregla kylfum á mannfjöldann og tókst að flytja drenginn á lögreglu- stöðina. Svæði fyrir framan lögreglu- stöðina hafði verið afmarkað með kaðli, en um miðnætti var skorið á kaðalinn og í kjölfarið ráðist með grjótkasti á stöðina og brotnuðu alls átta rúður í húsinu. Einnig var kraft- miklum sprengjum fleygt að stöð- inni. Víða var rusli kastað í bíla þessa nótt og gerð tilraun til að hvolfa nokkrum. Sömuleiðis var reynt að kveikja í bílum með því að setja sprengjur við bensíngeyminn. Lög- reglu tókst þó að afstýra þessu. Þegar klukkan var farin að ganga fjögur um nóttina urðu mikil átök fyrir aftan verslunina Vísi á Laugavegi, en þar hafði verið kveikt heilmikið bál. Margir menn komu á lögreglu- stöðina og lögðu fram kærur vegna áverka af völdum lögreglu þessa nótt, en í nokkur skipti var kylfum beitt. Kjallari lögreglustöðvarinn- ar var eins og gefur að skilja yfir- fullur þessa nótt „af drukknum óróa- seggjum“. „Skemmdarfísn og skrílsæði“ Ekki tók betra við að ári og þóttu orðin „skemmdarfísn [sic] og skrílsæði“, lýsa vel gamlárskvöldi 1947. Er talið að það kvöld hafi um eitt þúsund manns verið á ferli í mið- bænum. Það kvöld var sprengjum varpað á Hótel Borg og margar rúður sprungu í veitingasalnum. Bílum var hvolft að vanda og tilraunir gerðar til að stöðva umferð með því að bera rusl og tunnur út á götur. Sagt var að hópar manna hafi farið um með „öskrum og óhljóðum“ og jafnvel reynt að trufla guðþjónustu í Dóm- kirkjunni, auk þess sem rúða sprakk í kirkjunni er kínverja var kastað að henni. Þá var flugeldum skotið að mannfjölda og reynt að kveikja í skúr við olíuport Shell þar sem geymt var sprengiefni. Mikil mildi var að það tókst ekki. Þrír lögreglumenn slösuðust þetta kvöld, þar af var einn lam- inn í höfuðið með barefli og annar lenti í þvögu og var „keyrður undir af mannfjöldanum“ eins og það var orðað. Lögreglan sprautaði vatni til að dreifa fólki og þótti það gefast vel. Sigurjón Sigurðsson lög- reglustjóri sagði við blaðamenn af þessu tilefni að lögregla hefði þrátt fyrir mikil skrílslæti haft yfir- höndina og hygðist hann gera tillög- ur sem myndu miða að því að koma í veg fyrir ámóta ærsl á gamlárskvöld framvegis. Ró færist yfir Segja má að Sigurjóni lögreglustjóra hafi tekist að ná tökum á ástandinu og árið eftir var gamlárskvöld í Reykjavík „með kyrrara móti“ sam- kvæmt fréttum Vísis, en „aðeins“ voru um 30 til 40 handteknir. Helst bar til tíðinda að stór sprengja var sprengd í ljósstaur við Alþingishús- ið um klukkan 22.00, en líklega var þar um dýnamítsprengju að ræða. Brot úr staurnum þeyttust í allar átt- ir og brotnuðu rúður í Alþingishús- inu. Fólksbifreið átti leið hjá á sama andartaki og komu í hana fjögur göt og hlutu tveir farþegar hennar áverka. Fyrir gamlárskvöld þetta ár hafði lögreglustjóri bannað framleiðslu og sölu sprengiefna til að sporna við óspektum. Í staðinn reyndu menn víða að kveikja í rusli og öðru efni hér og þar í húsagörðum í miðbænum. Lögreglu tókst að mestu af afstýra slíkum brennum þetta kvöld og kom einnig í veg fyrir að bílum væri velt, eins og svo mjög hafði verið í tísku árin á undan. Þegar komið var fram á sjötta ára- tuginn varð enn rólegra á gamlárs- kvöld. Þess er getið í fréttum Vísis í ársbyrjun 1955 að gamlárskvöld hafi verið „mjög rólegt að þessu sinni og ölvun lítil á almannafæri“. Á næstu árum var ekki mikið um óspektir á gamlárskvöld og 1966 var þess getið í blaðagrein að nú væri liðin tíð „að börn og unglingar höfuðborgarinnar hópuðust saman í miðborginni og skemmtu sér við að skemma eignir borgaranna og gera aðsúg að lög- reglunni“. Síðan þá hefur þjóðin líka setið við sjónvarpstækin á gamlárs- kvöld, haldið á skipulegar brennur og sprengt flugelda við heimili sín. Ólæti gamlárskvölda seinni ára eru ekkert í líkingu við það sem áður þekktist. Sem betur fer. n Björn Jón Bragason bjornjon@dv.is Fréttir úr fortíð Mynd LögRegLan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.