Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2015, Síða 38
Helgarblað 30. janúar–2. febrúar 201538 Neytendur
10 góðar fartölvur
n Þarft þú að kaupa nýja tölvu? n Þetta eru vélarnar sem þú ættir að skoða betur
Þ
að getur reynst þrautin
þyngri að velja sér nýja far
tölvu þegar kemur að því að
endurnýja tækjakost heim
ilisins. Það kannast margir
við að kaupa sér dýra tölvu og upp
götva síðan innan tíðar að hún hent
ar kannski ekki þörfum viðkomandi.
Það getur verið erfitt að taka þessa
ákvörðun á stundinni fyrir framan
tölvurekkann í næstu raftækjaversl
un. Kannski er hún of stór og þung
þegar kemur að því að ferðast með
hana í vinnu eða skóla, skjárinn of
lítill, of stór eða slakur eða rafhlöðu
endingin langt undir væntingum.
Til að auðvelda neytendum
að taka upplýsta ákvörðun hefur
Business Insider tekið saman lista
yfir tíu bestu fartölvurnar fyrir árið
2015. Þar hefur markaðurinn verið
kembdur og farið í gegnum umfjöll
un og gagnrýni tölvusérfræðinga.
Til að heimfæra niðurstöðurnar á
Ísland gerði DV óformlega verð
athugun á nokkrum þeirra í völdum
raftækjaverslunum hér á landi. Þar
sem ekki fundust verðupplýsingar
fyrir allar tölvurnar á heimasíðum
helstu verslana og umboðsaðila þá
er til glöggvunar látið fylgja uppgef
ið verð í Bandaríkjadölum.
Hér eru niðurstöðurnar, í engri
sérstakri röð. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is Dell Inspiron
17 5000
Inspiron 17 (5748), úr
5000línunni er með
skörpum skjá, skilar
áreiðanlegum afköst
um og hefur að geyma
endingargóða rafhlöðu. Þá er
hún á tiltölulega viðráðanlegu
verði. Álumgjörðin gefur henni rík
mannlegt útlit svo hún lítur út eins
og ein af dýru tölvunum. Ákjósanleg fyrir þá sem vilja nota
Windows og fá öflugri tölvu en HP Stream fyrir minni pening.
Verð frá: 177.990 í Advania
Acer Chromebook 13
Eina Chromebooktölvan í sínum verðflokki
sem kemur með 1080 pixla HDskjá. Skjárinn
er frábær og rafhlaðan er endingargóð, allt
að 11 klukkustundum á einni
hleðslu. Kostar um
300 dali í Bandaríkj
unum sem gera um
40 þúsund krónur ís
lenskar.
Toshiba
Chromebook 2
Nýja Toshiba Chromebooktölvan
þykir ein besta nýja fartölvan sem þú
færð og hún er ódýr. Forverinn sló í
gegn hjá námsmönnum enda verðið
afar viðráðanlegt, í kringum 70 þús
und krónur hér heima. Skjárinn á
Chromebook 2 er sagður gullfalleg
ur, rafhlöðuendingin frábær og tölvan
þægileg í notkun. Hún er sterkbyggð
og þolir vel ferðalög. Mælt er með
þessari fyrir þá sem nota tölvuna mest
í léttri vinnslu og til að vafra um netið.
Í Bandaríkjunum fæst hún á verði frá
250 dölum (33 þúsund kr.).
HP Stream
Þessi er fyrir þá sem vilja
mikið fyrir lítið en sætta
sig við aðeins minna. Fá
anleg fyrir allt niður í 200
dali (26 þúsund kr.) í Bandaríkj
unum. Þykir ágæt í létta vinnslu, lyklaborðið
er þægilegt, góð rafhlöðuending og svo létt að
þú finnur ekki fyrir henni. Hljóð og mynd er þó
ekki eins og bestur verður á kosið.
MacBook Pro Retina
Ef þú vilt eignast Applefartölvu með betri skjá þá er
MacBook Pro með Retinaskjá eitthvað fyrir þig. Það
munar reyndar rúmum 60 þúsund krónum á ódýr
ustu 13" MacBook Air og ódýrustu
MacBook Pro sömu stærðar. En fyr
ir peninginn færðu öflugri örgjörva,
betri grafík, umtalsvert skarpari skjá
upplausn og fleiri tengimöguleika.
Þar á meðal HDMItengi.
Verð frá: 227.147 kr. í Elko
Asus ROG G751JT
Þessi tölva er algjört skrímsli segja
sérfræðingar og krýndi vefsíð
an The Wirecutter hana
sem bestu leikjafar
tölvuna. Hún hef
ur að geyma öfl
ugan vélbúnað,
er afar vönduð
og ræður við að
spila þyngstu
tölvuleiki,
grafíklega
séð, á
hæstu
stillingu.
Asustölvan er með gullfallegan skjá
með mikilli upplausn og þægilegt
lyklaborð.
Verð frá: 319.990 kr.
í Tölvulistanum
Dell XPS 13
Þessi nýja 13" fartölva frá Dell býður upp
3200x1800 pixla snertiskjá sem þykir afar til
komumikill. Betri nýting næst á skjáinn með
svokölluðu „Infinity display“ þar sem skjábrún
irnar uppi og til hliðar eru aðeins um 5 mm. Þetta
er í raun 13" tölva í 11" umgjörð. Mælt er með
þessari tölvu fyrir þá sem vilja ólmir halda í Windows
stýrikerfið en njóta sömu smæðar og þyngdar og MacBook Air býður upp
á. Dell fullyrðir að notendur nái 12 tíma rafhlöðuendingu á einni hleðslu
en prófanir PC Mag sýndu tæpar 8 stundir. Í Bandaríkjunum fæst þessi
tölva á verði frá 799 dölum (106 þúsund kr.) og upp úr.
MacBook Air
MacBook Air frá Apple er enn ein
besta fartölva á markaðnum. Hún er
ekki bara örþunn og fislétt heldur er
hún lygilega afkastamikil og státar af
afar endingargóðri rafhlöðu. Í um
fjöllun PC Mag kemur fram að við
prófanir hafi náðst tíu klukkustunda
rafhlöðuending við notkun. Hún er
fáanleg í tveimur stærðum, 11 og 13
tommum. Mælt er með stærri útgáf
unni ef þú ætlar að nota hana til
að vinna á.
Eitt til að hafa í huga. Fast
lega er búist við að Apple gefi
út nýja MacBook Air innan
nokkurra mánaða. Kannski er
ráð að doka við og sjá til.
Verð frá: 148.995 kr. í Elko
Lenovo Yoga 3 Pro
Þetta er ein þynnsta og léttasta
tölvan frá Lenovo hingað til.
Skjárinn er mikið verkfræði
undur. QHD IPSfjölsnertiskjár sem
hægt er að snúa 360 gráður. Helsti
óskosturinn er sagður slök raf
hlöðuending.
Verð frá: 259.900 kr. í Tölvutek
Lenovo Thinkpad X240
Þessi tölva þykir eilítið í þyngri kantinum en er full
komin ef þú notar hana sem færanlega borðtölvu.
Skjárinn er 12,5", þetta er afkastamikil
og öflug tölva sem býður upp á margvís
lega möguleika á uppsetningu. Er með
tveimur rafhlöðum sem auka endingu.
Skjáupplausnin er vonbrigði miðað
við verð.
Verð frá: 296.315
kr. í Nýherja