Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2015, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2015, Qupperneq 40
40 Skrýtið Sakamál Helgarblað 30. janúar–2. febrúar 2015 BlóðBað um miðja nótt n Ástin getur ruglað fólk í ríminu n Fjölskylda Erin fór ekki varhluta af því V issulega getur verið allur gangur á því hvernig for- eldrum líkar við kærasta eða kærustu barna sinna og hvað varðaði Terry og Penny Caffey þá fannst þeim Charlie Wilk- inson, 19 ára kærasti 16 ára dóttur þeirra, Erin, helst til lélegur pappír. Terry og Penny fóru ekki í launkofa með skoðun sína og þá von að neist- inn milli Erin og Charlie dæi sjálf- krafa út innan tíðar, en málalyktir urðu með öðrum hætti en nokkurn hafði órað fyrir. Í fleiri mánuði reyndu Terry og Penny að umbera ástarsam- band dóttur sinnar og einbeita sér að eigin hugðarefnum; kirkjunni og tón- list. Átta ára bróðir Erin, Tyler, lék á gítar og Matthew, 13 ára bróðir henn- ar, lék á munnhörpu. Penny var org- anisti í kirkjunni og sjálf hafði Erin verið í kórnum allt þar til hún kynnt- ist Charlie. Allt þetta breyttist fimm mánuðum eftir að samband Erin og Charlie hófst. Blóðbað um nótt Tveimur tímum eftir miðnætti 1. mars 2008 ruddust tveir ungir menn inn á heimili Caffey-fjölskyldunnar í Alba í Texas og gengu berserksgang. Þegar upp var staðið voru Penny, Tyler og Matthew liðin lík og Terry á milli heims og helju. Ódæðismennirnir báru síðan eld að innanstokksmunum og yfirgáfu húsið. Terry, sem hafði ver- ið skotinn mörgum skotum, tókst ein- hvern veginn að dragnast út úr hús- inu áður en það varð alelda. En ekki voru öll kurl komin til grafar því inn- an tíðar kom í ljós að Erin hafði verið viðriðin glæpinn. Síðar sagði Terry að hann hefði frá upphafi haft efasemdir um Charlie og undir lok febrúar hefðu grunsemdir hans verið staðfestar: „Við sáum ýmislegt á MySpace-síðu Charlie. […] tilvísanir í drykkju og kyn- líf – við sögðum við Erin að við hefð- um ekki alið hana upp til að enda í þannig hlutum og að hann væri ekki góður kostur fyrir hana.“ Skammbyssur og samúræjasverð Tveimur dögum síðar, upp úr mið- nætti, var bifreið ekið upp að húsi Caffey-fjölskyldunnar. Var þar mættur Charlie Wilkinson og hafði sér til full- tingis tvo vini; Allen Waid, 20 ára, og kærustu hans, Bobbi Gale Johnson, 18 ára. Erin Caffey hljóp út íklædd náttfötum og settist inn í bílinn, en Charlie og Allen fóru inn í húsið. Terry vaknaði við einhvern hávaða: „Þeir ruddust inn í svefnherbergið og hófu skothríð. Þeir skutu mig nokkrum sinnum. Ekki einasta voru þeir með byssur heldur samúræjasverð að auki. Eftir að þeir skutu Penny skutu þeir mig fjórum skotum; þremur í bakið og einu í fótlegginn. […] Síðan tók annar þeirra sverðið og stakk Penny í háls- inn.“ Terry var, þegar þarna var kom- ið sögu, á mörkum meðvitundar en hugsaði um börnin sem sváfu á efri hæðinni. Sveðjunni beitt ótæpilega „Ég reyndi að standa á fætur,“ sagði Terry, „ og ég heyrði að Matthew hróp- aði. Hann sagði: „Nei, Charlie. Ekki. Af hverju ertu að gera þetta?“ Þegar ég heyrði hann segja nafnið þá vissi ég hver var í húsinu og til hvers. Svo heyrði ég skothvelli. […] Síðar var mér sagt að Matthew hefði verið skotinn, en þeir hefðu skipst á að stinga Tyler sem hafði reynt að fela sig inni í skáp.“ Terry missti meðvitund og þegar hann kom til sín á ný voru Charlie og Allen á bak og burt og eldar loguðu í húsinu. Eldtungurnar hröktu Terry inn í svefn- herbergi hjónanna þar sem hann fann Penny látna. „Hún var dáin. Mér tókst að lokum að klöngrast út um baðher- bergisgluggann og skreiðast frá hús- inu.“ „Hvar blæðir honum ekki?“ Það tók Terry um tvo klukkutíma að skreiðast tæpa 300 metra í gegn- um skóglendi að húsi nágranna síns, Tommys Gaston. Þegar Tommy hringdi í Neyðarlínuna var hann spurður hvar blæddi úr Terry og svar- aði: „Hvar blæðir honum ekki?“ Það er kraftaverk að hann sé hér yfirhöf- uð.“ Þremur klukkustundum síðar voru Charlie og Allen klófestir og sett- ir í gæsluvarðhald. Erin, sem upp- haflega lá ekki undir grun, fannst í felum í hjólhýsi eldri bróður Allens. En þess var skammt að bíða að lög- reglan beindi sjónum sínum að Erin því Allen upplýsti við yfirheyrslur að honum hefði verið lofuð tvö þúsunda dala þóknun ef hann hjálpaði við að „greiða úr málunum“. Svipað var upp á teningnum hjá Charlie og Bobbi sem sögðu líkt og Allen að morðin hefðu verið hugmynd Erin. Erin var síðar handtekin er hún var á leið í heimsókn til föður síns á sjúkrahúsið og voru fjórmenningarnir kærðir fyrir morð að yfirlögðu ráði. Íhugaði sjálfsvíg Þegar Terry hafði náð sér dvaldi hann hjá systur sinni um skeið enda allt sem áður hafði auðgað tilveru hans að engu orðið. Eftir að hafa glímt við þunglyndi svo mánuðum skipti fékk hann nóg: „Ég skipulagði sjálfsvíg.“ Erin hafði, að Terrys sögn, sagt honum að hún hefði haft vitneskju um morðáformin og að henni hefði verið haldið nauðugri viljugri í bíl Charlies á meðan hann og Allen myrtu fjölskylduna. Hún sagði að „kærasti hennar reyndi að klína morðunum á hana og segði að hún hefði skipulagt allt saman.“ Terry lagði ekki trúnað á útskýringar Erin enda ekki um auðugan garð að gresja hvað varðaði eitthvað sem studdi frásögn hennar. Í október 2008 voru Charlie og Allen dæmdir til lífstíðarfangelsis án möguleika á reynslulausn. Þremur mánuðum síðar játuðu Erin og Bobbi sig sekar um morð. Bobbi fékk tvöfald- an 40 ára dóm og getur sótt um reynslu- lausn eftir 25 ára afplánun. Erin fékk hins vegar tvo samhangandi lífstíðar- dóma og 25 ár að auki en getur sótt um reynslulausn eftir 40 ára afplánun. n „Eftir að þeir skutu Penny skutu þeir mig fjórum skotum; þremur í bakið og einu í fótlegginn. Síðan tók annar þeirra sverðið og stakk Penny í hálsinn. „Síðar var mér sagt að Matthew hefði verið skotinn, en þeir hefðu skipst á að stinga Tyler sem hafði reynt að fela sig inni í skáp. Á góðri stundu Erin í faðmi fjölskyldunnar. mynd úr fjölSkylduSafni Erin Caffey Gekk æði langt vegna ástarsambands. mynd dr. pHil Samsek Bobbi Gail Johnson hlaut dóm fyrir aðild sína. allen Wade Var að sögn heitið 2.000 dala umbun fyrir morðin. Charlie Wilkinson Beitti samúræjasverði á 7 ára bróður Erin. „Hvar blæðir honum ekki?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.