Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2015, Qupperneq 41
Helgarblað 30. janúar–2. febrúar 2015 Skrýtið 41
Mögnuð Mannvirki
seM aldrei voru byggð
n Stórhuga hugmyndir sem slegnar voru út af teikniborðinu n Business Insider tók saman
Sovéthöllin Sovét-
menn lögðu fram metnaðarfulla áætlun
árið 1931 um byggingu nýs þinghúss sem
átti að standa í Moskvu. Efnt var til
hönnunarsamkeppni sem arkitektinn Boris
Iofan vann, en markmið hans var að byggja
gríðarstórt mannvirki eins og meðfylgjandi
mynd sýnir. Hafist var handa við byggingu
Sovéthallarinnar, eins og byggingin átti að
heita, árið 1937 og gerðu áætlanir ráð fyrir
að byggingin yrði sú stærsta að flatarmáli
í heiminum. Þegar síðari heimsstyrjöldin
skall á varð hluti byggingarinnar fyrir
skemmdum og var ákveðið að halda
byggingunni ekki áfram.
Ofurpýramídinn
í Tókýó Margar stórhuga
byggingahugmyndir hafa komið upp á
yfirborðið á undanförnum árum og áratug-
um en ein sú athyglisverðasta er bygging,
í laginu eins og pýramídi, sem japanskir
draumóramenn vildu byggja. Byggingin sem
um ræðir átti að fljóta í Tókýóflóa í Japan
og samkvæmt teikningum átti hún að vera
fjórtán sinnum stærri en pýramídinn í Giza
í Egyptalandi. Áætlanir gerðu ráð fyrir að í
byggingunni myndu rúmast hvorki fleiri né
færri en 750 þúsund manns. EKkert varð
úr verkefninu, einfaldlega vegna þess að
þau byggingarefni sem þarf í bygginguna
eru ekki til og eru enn í þróun. Enginn skyldi
þó útiloka að ofurpýramídinn rísi einhvern
tímann á næstu 100 árum eða svo.
Tatlins-turninn í
Pétursborg Rússinn Vladimír Tatlin
hannaði Tatlins-turninn árið 1919 og var markmið þessa
arkitekts að gera stærri og mun merkilegri byggingu
en Eiffelturninn í París. Raunar átti Eiffelturninn að
blikna í samanburðinum enda átti byggingin að vera
400 metra há. Samkvæmt teikningum Vladimírs átti
byggingin að samanstanda af járni, gleri og stáli en
auk þess vildi hann að hægt yrði að snúa byggingunni
einu sinni á ári. Ekki er farið nánar út í þá útfærslu
hér. Bygginguna átti meðal annars að nota undir ráð-
stefnur, fyrirlestra og ýmiss konar fundi. Ekkert varð úr
áætlununum enda framkvæmdin rándýr og byggingin
auk þess ópraktísk miðað við stærð.
Rússlandsturninn Yfirvöld í Rússlandi hugðust byggja risastóra byggingu áður en efnahagsniðursveiflan árið
2008 setti þær áætlanir úr skorðum. Hafist var handa við bygginguna, The Russia Tower á engilsaxnesku, eða Rússlandsturninn, á því
herrans ári 2007 og átti framkvæmdum að ljúka árið 2012. Turninn átti að vera 118 hæðir og í byggingunni áttu að geta rúmast 30 þúsund
manns. Sem fyrr segir setti efnahagsniðursveiflan árið 2008 strik í reikninginn. Árið 2009 var formlega ákveðið að hætta við bygginguna
þó að framkvæmdir væru hafnar.
The Illinois í Chicago Því fer fjarri að Spírallinn í Chicago
sé fyrsta stóra byggingin sem slegin er út af teikniborðinu í borg vindanna, eins og Chicago
er stundum kölluð. Árið 1956 teiknaði arkitektinn Frank Lloyd Wright byggingu sem átti að
vera hvorki meira né minna en ein míla á hæð, 1.600 metrar, fjórum sinnum hærri en Empire
State-byggingin sem á þeim tíma var hæsta bygging heims. Burj Khalifa, núverandi hæsta
bygging heims, hefði bliknað í samanburðinum en hún er um 800 metra há. Ekkert varð af
byggingunni enda reyndist allt of dýrt að ráðast í svo risavaxið verkefni.
Spírallinn í
Chicago Ekki eru mjög mörg
ár síðan borgaryfirvöld í Chicago hugðust
byggja eina hæstu byggingu heims en hún
átti að vera um 600 metra há. Byggingin
hlaut vinnuheitið, Spire, eða Spírallinn á
íslensku. Ekkert varð af áformunum en
þau fóru út um þúfur þegar efnahags-
niðursveiflan gekk yfir heimsbyggðina
árið 2008. Þá hjálpaði ekki til að sá sem
hannaði bygginguna, Garrett Kelleher,
flæktist í dómsmál við Anglo Irish-bank-
ann. Að lokum fór svo að ákveðið var að slá
byggingu Spíralsins út af teikniborðinu fyrir
fullt og allt.