Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2015, Blaðsíða 56
56 Menning Sjónvarp Helgarblað 30. janúar–2. febrúar 2015
Að vakna með Gissuri
Gissur Sigurðsson er þægilegur fjölmiðlamaður
V
ið sem erum fremur
morgunfúl þolum ekki of
mikil læti á morgnana.
Þegar við kveikjum á út-
varpinu – og hörmum um leið
að hafa ekki getað sofið lengur
– þá viljum við ekki háværa tón-
list og ekki fjölmiðlamenn og
viðmælendur sem eru að spr-
inga af æsingi. Gissur Sigurðsson
er einmitt fjölmiðlamaður sem
gott er að vakna með. Hann hef-
ur fallega og róandi rödd og þægi-
legan húmor og á gott með að
gera grín að sjálfum sér – sem er
ótvíræður en um leið sjaldgæfur
kostur. Gissur hefur skoðanir
og er óhræddur við að setja þær
fram. Hann er virðist lítt hrifinn
af pólitískum rétttrúnaði – enn
einn góður kostur. Ég þekki konur
sem hlusta andaktugar á Gissur
á hverjum morgni. Þeim finnst
hann yndislegur. Ég segi kannski
ekki að ég stökkvi að tækinu í
hvert sinn sem hann talar, en ég
legg sannarlega við hlustir.
Bogi Ágústsson er annar fjöl-
miðlamaður sem gott er að hlusta
á snemma morguns þegar hann
er fenginn til að ræða um erlend
málefni í morgunþætti á RÚV.
Bogi talar af yfirvegun og skyn-
semi um alls kyns málefni og leyfir
sér að hafa skoðanir. Eftirminni-
legt var þegar hann ræddi um
álitsgjafa Fox-sjónvarpsstöðvar-
innar sem hafði haldið því fram
að múslimar hefðu lagt undir sig
Birmingham og að þar væru sja-
íralög í gildi. Þegar Bogi talaði um
heimsku mannsins blótaði hann
fullhraustlega. Þá mislíkaði mér
því ég fékk kristilegt uppeldi og vil
ekki að fólk bölvi í fjölmiðlum. En
Bogi baðst samstundis afsökunar
og ég fyrirgaf honum fúslega af því
að hann er svo góður fjölmiðla-
maður. n kolbrun@dv.is
dv.is/blogg/skaklandid
Stefán Bergsson skrifar
Skáklandið
Þ
að hefur ekki alltaf verið
þannig að heimsmeistar-
ar á hverjum tíma sanni sig
með góðum mótaárangri.
Sagan sýnir í raun að þeir
hafa verið afar misjafnir eftir að þeir
hafa náð titlinum. Karpov var ansi
góður sem heimsmeistari, og náði
oft afar góðum mótaúrslitum. Carl-
sen ætlar greinilega ekki að verða
einn af þessum heimsmeisturum
sögunnar sem láta lítið til sín taka
milli heimsmeistaraeinvígja. Á Tata-
Steel ofurmótinu sem lauk nýlega í
Sjávar vík í Hollandi varð hann all ör-
uggur sigurvegari í a-flokki mótsins.
B-flokkur mótsins var afar vel skip-
aður. Þar sigraði Kínverjinn ungi Wei
Yi. Sá kappi kom til Íslands fyrir 2
árum og náði þá síðasta áfanga sín-
um að stórmeistaratitli. Hann er að-
eins fæddur árið 1999 og er af mörg-
um talinn sá sem geti raunverulega
ógnað veldi Carlsens á næstu
árum. Einvígi þeirra á millum um
heimsmeistaratitilinn kringum árið
2020 er t.d. ekki svo ósennilegt.
Skákdagurinn var haldinn í vik-
unni á afmælisdegi Friðriks Ólafs-
sonar en kappinn sá er orðinn átt-
ræður. „Séntilmaður af gamla
skólanum“ er ein af mörgum lýsing-
um á Friðrik sem birst hafa í fjölmiðl-
um undanfarið. Það finnst mér lýsa
honum einna best. Hvarvetna hann
mætir geislar af honum ákveðin til-
gerðarlaus og náttúrulegur virðuleg-
ur blær, sem er afar fáum mönnum
svo eðlislægur. Dettur manni einna
helst í hug Vigdís Finnbogadóttir í
þessu samhengi. Rétt eins og Vig-
dís hefur Friðrik nú verið útnefnd-
ur heiðursborgari Reykjavíkur en
athöfnin fór fram í vikunni í Höfða.
Friðrik er afskaplega vel að þeim
titli kominn. Gunnar Björnsson til-
kynnti á samkomunni um nýstofnuð
Hvatningarverðlaun Friðriks Ólafs-
sonar sem eru ætluð að styrkja skák-
menn sem leggja sérstaklega mikið
á sig til þess að ná framförum og ár-
angri í skák. n
Carlsen og Friðrik
Sjónvarpsdagskrá
RÚV Stöð 2 SkjárEinn Stöð 2 Sport
Föstudagur 30. janúar
15.20 HM í handbolta karla
(4. liða úrslit) mBein
útsending frá Katar.
16.50 Reykjavíkurleikarnir
(Samantekt)
17.15 Vísindahorn Ævars
(Fróðleikur - Jarð-
skorpa)
17.20 Rétt viðbrögð í
skyndihjálp
17.30 Táknmálsfréttir
17.40 HM stofa
18.00 HM í handbolta karla
(4.liða úrslit)
19.30 Fréttir
19.55 Íþróttir
20.00 Veðurfréttir
20.10 HM-stofa mBein út-
sending úr myndveri þar
sem Þóra Arnórsdóttir
tekur á móti góðum
gestum og fer yfir leiki
dagsins á HM í hand-
bolta karla.
20.35 Hraðfréttir (15)
Fréttastofa Hraðfrétta
hefur öðlast sjálfstæði
og þeir Benedikt og
Fannar fá til sín góða
gesti sem kryfja með
þeim mál liðinnar
fréttaviku inn að beini.
21.00 Útsvar (Fljótsdalshér-
að - Árborg) Bein út-
sending frá spurninga-
keppni sveitarfélaga.
Umsjónarmenn eru
Sigmar Guðmundsson
og Þóra Arnórsdóttir.
Spurningahöfundur og
dómari er Stefán Páls-
son. Stjórn útsendingar:
Helgi Jóhannesson.
22.10 Dauðinn má bíða
6,1 (Die another Day)
James Bond er fenginn
til að rannsaka tengsl
hryðjuverkamanns
frá Norður-Kóreu og
demantajöfurs sem
fjármagnar þróun
alþjóðlegra geimvopna.
Aðalhlutverk: Pierce
Brosnan, Halle Berry og
Rosamund Pike. Atriði
í myndinni eru ekki við
hæfi ungra barna.
00.20 Einræðisherrann 6,4
(The Dictator) Sacha
Baron Cohen fer með
hlutverk einræðisherra
sem leggur líf sitt að
veði til að lýðræði nái
ekki fram að ganga.
Svartur húmor eins og
aðalleikarinn er þekktur
fyrir. Atriði í myndinni
eru ekki við hæfi barna.
01.40 Útvarpsfréttir í
dagskrárlok
Stöð 2 Sport 2
Bíóstöðin
Gullstöðin
Stöð 3
11:00 FA Cup 2014/2015
(Cambridge - Man. Utd.)
12:40 FA Cup 2014/2015
(Rochdale - Stoke)
14:20 Meistaradeildin í
hestaíþróttum 2015
(Fjórgangur)
17:20 League Cup (
Chelsea - Liverpool)
19:00 League Cup Highlights
19:30 La Liga Report
20:00 HM í handbolta 2015
(Ísland - Danmörk)
21:20 HM í handbolta 2015
(Þýskaland - Egypta-
land)
22:40 World's Strongest
Man 2014
23:10 NBA (NBA Special - The
Bad Boys)
00:55 La Liga Report
11:45 Football League Show
12:15 Premier League
2014/2015 (Burnley -
Crystal Palace)
13:55 Messan
15:10 Premier League World
15:40 Premier League
(West Ham - Hull)
17:25 Premier League
2014/2015 (Totten-
ham - Sunderland)
19:10 Match Pack
19:40 Enska 1. deildin (Bo-
urnemouth - Watford)
21:45 Messan
22:25 Enska úrvalsdeildin
- upphitun
22:55 Match Pack
23:25 Enska 1. deildin (Bo-
urnemouth - Watford)
18:05 Strákarnir
18:35 Friends (23:25)
19:00 Mom (14:22)
19:25 Modern Family
19:50 Two and a Half
Men (23:23)
20:15 Pressa (5:6)
21:00 The Following (1:15)
21:45 Prime Suspect 2 (2:2)
23:30 It's Always Sunny In
Philadelphia (9:13)
23:55 The Secret Circle (1:22)
00:40 Fringe (17:22)
01:25 Pressa (5:6)
02:10 The Following (1:15)
02:55 Prime Suspect 2 (2:2)
04:45 It's Always Sunny In
Philadelphia (9:13)
05:10 Tónlistarmyndbönd
frá Bravó
09:45 Gandhi
12:50 Straight A's
14:20 Last Chance Harvey
15:50 Gandhi
18:55 Straight A's
20:25 Last Chance Harvey
22:00 Prisoners
00:30 Hello Ladies: The
Movie
01:50 Snitch
03:45 Prisoners
19:00 Raising Hope (4:0)
19:20 The Carrie Diaries (5:13)
20:05 Community 3 (21:22)
20:30 American Idol (8:37)
21:15 True Blood (7:10)
22:10 Constantine (10:13)
22:55 Longmire (6:10)
23:40 Raising Hope (4:0)
00:00 The Carrie Diaries (5:13)
00:45 Community 3 (21:22)
01:05 American Idol (8:37)
01:50 True Blood (7:10)
02:45 Constantine (10:13)
06:00 Pepsi MAX tónlist
08:00 Everybody Loves
Raymond (9:26)
08:20 Dr. Phil
09:00 The Talk
09:45 Pepsi MAX tónlist
14:10 Cheers (11:22)
14:35 The Biggest Loser -
Ísland (2:11)
15:45 King & Maxwell (4:10)
16:30 Beauty and the
Beast (8:22)
17:10 Agents of
S.H.I.E.L.D. (8:22)
17:50 Dr. Phil
18:30 The Tonight Show-
Spjallþáttasnillingurinn
Jimmy Fallon hefur
tekið við keflinu af Jay
Leno og stýrir nú hinum
geysivinsælu Tonight
show þar sem hann hef-
ur slegið öll áhorfsmet.
Leikarinn Channing
Tatum leikur nú í
framhaldsmynd Magic
Mike XXL og kynnir nýja
mynd sína hjá Jimmy í
kvöld. Breski leikarinn
Eddie Redmayne kynnir
einnig mynd sína, The
Theory of Everything,
þar sem hann leikur eðl-
isfræðinginn Stephen
Hawking.
19:10 The Talk
19:50 Generation Cryo (5:6)
Raunveruleikaþættir
um 17 ára gamla stúlku,
Breeanna, sem nýlega
hefur komist að því
að hún er getin með
aðstoð sæðisgjafa. Hún
heldur í ferð að leita af
15 hálfsystkinum sínum
sem eru öll feðruð með
sama sæðisgjafanum.
20:35 Pirates of the
Caribbean: On
Stranger Tides 6,7
Þegar Jack Sparrow hittir
fagra konu úr fortíðinni
veit hann ekki hvort
hann sé nú búinn að
finna ástina í lífi sínu eða
hvort hún sé aðeins mis-
kunnarlaus bragðarefur
sem er að nota hann til
að finna hinn goðsagna-
kennda æskubrunn.
22:55 No Country for Old
Men 8,1 Skemmtileg
kvikmynd eftir hina
óborganlegu Cohen
bræður sem m.a. fékk
fjögur óskarsverðlaun.
Allt ætlar um koll að
keyra þegar fíkniefna-
viðskipti fara úr böndun-
um og stórhættulegur
hausaveiðari er sendur á
vettvang.
00:55 Betrayal (12:13)
01:45 Ironside (5:9)
02:30 The Tonight Show
03:20 Pepsi MAX tónlist
07:00 Barnatími Stöðvar 2
08:05 The Wonder Years
08:30 Drop Dead Diva (8:13)
09:15 Bold and the Beautiful
09:35 Doctors (114:175)
10:15 Last Man
Standing (14:18)
10:40 White Collar (16:16)
11:25 Heimsókn
11:45 Junior Masterchef
Australia (15:22)
12:35 Nágrannar
13:00 Wall Street
15:10 The Choice (5:6)
16:00 Kalli kanína
16:20 Batman
16:45 How I Met Your
Mother (20:24)
17:10 Bold and the Beautiful
17:32 Nágrannar
17:57 Simpson-fjölskyldan
18:23 Veður
18:30 Fréttir Stöðvar 2
18:47 Íþróttir
18:54 Ísland í dag.
19:11 Veður
19:20 Simpsons (12:22)
19:45 Spurninga-
bomban (1:11)
20:30 NCIS: New
Orleans (10:22)
21:15 Louie (2:13)
21:40 I, Frankenstein Banda-
rískur spennutryllir frá
2014 með Aaron Eckhart
og Bill Nighy í aðalhlut-
verkum. Myndin fjallar
um Adam sem Victor
Frankenstein skapaði
og er nú enn á ferli 200
árum síðar. Eftir árás
djöfla undir stjórn hins
illa Naberius er honum
bjargað af verum sem
erkiengillinn Mikael
sendi. Þetta markar
upphaf aldalangrar bar-
áttu Adams við djöfla
Naberiusar sem ætla sér
að sigra heiminn.
23:15 Tucker and Dale
vs.Evil 7,6 Hrollvekj-
andi mynd með
gamansömu ívafi um þá
félaga Tucker og Dale
sem fara í bústaðarferð
með það í huga að slaka
vel á en lenda þess í
stað fyrir því að verða
fyrir árás ógnvekjandi
háskólakrakka.
00:45 G.I.Joe Retaliation 5,8
Hörkuspennandi mynd
frá 2013 með Bruce
Willis, Dwayne Johnson
og Channing Tatum í
aðalhlutverkum.
02:35 Wall Street Fjár-
málaheimurinn á Wall
Street er einstakur.
Mögnuð spenna
einkennir andrúmsloftið
enda stórar fjárhæðir
sem geta skipt um
eigendur á einum degi og
stundum oft á dag. Hinn
slyngi Gekko starfar í
þessari veröld og aðferð-
ir hans eru oft ótrúlegar.
Græðgin er alls ráðandi
og siðferðið ekki alltaf í
hávegum haft.
04:40 NCIS: New
Orleans (10:22)
05:25 Simpson
-fjölskyldan (12:22)
05:50 Fréttir og Ísland í dag
Bogi Ágústsson Bogi baðst samstund-
is afsökunar og ég fyrirgaf honum fúslega.
MYND STEFÁN KARLSSON
Gissur
Sigurðsson
Ég þekki konur
sem hlusta
andaktugar
á Gissur á
hverjum
morgni. Þeim
finnst hann
yndislegur.
„Séntilmaður af gamla skólanum“
Friðrik Ólafsson heiðursborgari Reykjavíkur.