Bændablaðið - 03.04.2014, Qupperneq 10

Bændablaðið - 03.04.2014, Qupperneq 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. apríl 2014 Á aðalfundi Landssambands kúabænda, sem fram fór dagana 28.-29. mars síðastliðin voru afgreiddar 22 ályktanir er varða málefni greinarinnar. Meðal þeirra voru ályktanir sem sneru að innflutning erfðaefnis holdanautgripa, um auknar rannsóknir og ráðgjöf og vinnu að nýjum búvörusamningi. Fjöldi ályktana sneri að mikilvægi þess að auka mjólkurframleiðslu á landinu til að staðið verði undir eftirspurn á markaði. Fundurinn hvatti meðal annars bændur til að leita sér faglegra leiðbeininga sem þeim stæðu til boða, meðal annars hjá Mjólkursamsölunni og Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML). Í samhengi við það voru forráðamenn RML hvattir til að seta aukinn kraft í verkefnið „Meiri mjólk“ enda væri aukin framleiðsla lykilatriði til að nýta þau tækifæri sem væru til staðar í greininni. Búa þarf til hvata til aukinnar framleiðslu Þá lagði fundurinn til að beingreiðslur í mjólkurframleiðslu skiptust þannig að greidd væru 40 prósent fyrir a-hlutann, 35 prósent fyrir b-hlutann og 25 prósent fyrir c-hlutann frá og með verðlagsárinu 2015. Rökstuðningurinn er sá að söluaukning mjólkurafurða undanfarna mánuði eigi sér engin fordæmi. Því sé afar mikilvægt að skipting beingreiðslna feli í sér hvata til aukinnar framleiðslu og jöfnunar á árstíðasveiflu í mjólkurframleiðslu. Mikilvægt sé að auka vægi c-greiðslna yfir sumarmánuði til að hvetja til aukinnar framleiðslu á þeim árstíma, en að jafnaði hefur innvigtað mjólkurmagn dregist saman yfir sumartímann. Vilja hefja vinnu við nýjan búvörusamning Þá lagði fundurinn áherslu á að hafinn yrði vinna við nýjan búvörusamning í mjólkurframleiðslu, með það að markmiði að efla samkeppnishæfni og treysta afkomu greinarinnar. Meðal þess sem eðlilegt fundurinn vill leggja til grundvallar við þá vinnu er að tryggt verði öruggt framboð nautgripaafurða fyrir íslenska neytendur á hagstæður verði, að skapaðar verði aðstæður til að nýta sóknarfæri á erlendum mörkuðum, að tryggja stöðu greinarinnar sem eins af undirstöðuatvinnuvegum þjóðarinnar og jákvæðri ímynd greinarinnar verði viðhaldið. Í þessari vinnu sé nauðsynlegt að fara yfir framkvæmd gildandi samnings, áhrif kvótakerfisins á greinina og stöðu verðlagningar og tollamál. Hófleg áhætta af innflutningi Fundurinn fól stjórn Lands- sambandsins einnig að vinna ákveðið að því að bændum standi til voða nýtt erfðaefni holdanautgripa sem fyrst. Niðurstöður áhættumats sem Matvælastofnun gerði að beiðni atvinnuvegaráðherra vegna hugsanlegs innflutnings á holdanautasæði og fósturvísum frá Noregi sýni að mikil tækifæri séu til að efla holdanautabúskap hér á landi með hóflegum kostnaði og hóflegri áhættu. Allar ályktanir fundarins má nálgast inni á síðu Landssambands kúabænda, naut.is. /fr Verð á mjólk til neytenda hefur hækkað mun minna en vísitala frá 2004. Samstarf stjórnvalda, launþegahreyfinga og afurðastöðva við verðlagningu mjólkur og mjólkurvara hefur því ótvírætt skilað tilætluðum árangri. Frá árinu 2004 hefur árlegur vinnslukostnaður lækkað um 2 milljarða króna. Þetta kom fram í setningarræðu Sigurðar Loftssonar formanns Landssambands kúabænda á aðalfundi sambandsins í síðustu viku. Vísaði hann með þessum orðum í skýrslu sem fyrirtækið Innform ehf. gerði fyrir Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði og skilaði í marsmánuði. Benti Sigurður á að þó einungis þetta væri nefnt hlyti það að teljast mikill árangur í mjólkurframleiðslu og –vinnslu hér á landi. Óvægin umræða um mjólkurframleiðsluna Sigurður setti þessar niður- stöður skýrslunnar í samhengi við óvægna umræðu í garð mjólkurframleiðslunnar á síðustu misserum. „Hafa þar geyst hvað mest um ritvelli sterklærðir hagspekingar og ýmsir umræðustjórnendur samfélagsins, dragandi of sterkar niðurstöður af oft á tíðum óþægilega grunnum forsendum þar sem verulega skortir á vandaða rannsóknarvinnu. Því er jafnan haldið fram að landbúnaðarkerfið sé úrelt og þauljöpluð er sú tugga að ofurtollar á innfluttar landbúnaðarvörur séu ein helsta ástæðan fyrir bágri afkomu almennings. Ekkert er þó fjarri sanni og við hljótum að krefjast þess að þeir aðilar sem ætlast til að vera teknir alvarlega framkvæmi slíka samanburði á sanngirnisnótum,“ sagði Sigurður. Sigurður bætti við að hvað sem samfélagsumræðu liði, óvæginni eða ekki, þyrftu kúabændur fyrst og fremst að horfa til framtíðar. Markaðsþróun og tækifæri þyrfti að nýta sem best því ef greinin sjálf sinnti þeim ekki myndu aðrir grípa gæsina. „Það hvílir á okkur mikil ábyrgð, nautgriparæktin stendur fyrir nálægt 45 prósent allrar landbúnaðarframleiðslu á Íslandi, veltir nálægt tveimur tugum milljarða króna á ári. Starfsgrein af þeirri stærðargráðu verður að eiga sér langtímamarkmið og sóknarvilja.“ Mikilvægt að íhuga orð sín í opinberri umræðu Fram kom í ræðu Sigurðar að innlögð mjólk á árinu 2013 var 122,9 milljónir lítra samanborið við 125,1 milljón lítra árið áður. Er þar um samdrátt upp á 1,7 prósent að ræða. Sá samdráttur hafi hins vegar ekki komið fram fyrr en um mitt síðasta ár og því hafi birgðastýringu verið háttað út frá þeim forsendum fyrri hluta ársins. Í lok sumar hafi staðan verið orðin þannig að í óefni hafi stefnt vegna gríðarlega mikillar sölu og þess samdráttar sem orðin var í framleiðslu. Var þá gripið til þess ráðs að lofa fullri greiðslu fyrir 3 milljónir lítra og síðar alla mjólk umfram greiðslumark. Þrátt fyrir að þær aðgerðir hafi skilað aukinni framleiðslu dugði það ekki til og nauðsynlegt reyndist að flytja inn smjör til að tryggja framboð á mjólkurvörum, svo sem frægt er orðið. Mikil umræða spratt upp um þá stöðu, ekki síst á meðal bænda sjálfra. Sigurður gagnrýndi hversu sterk orð ýmsir hefðu notað í þeirri umræðu því þó allir séu frjálsir skoðana sinni sé mikilvægt að íhuga orð sín og áhrif þeirra áður en þau séu látin falla í opinberri umræðu. Sala mjólkurafurða vex enn hratt Greiðslumark ársins í ár var ákveðið 125 milljónir lítra sem er aukning um 9 milljónir lítra frá fyrra ári. Var það gert til að mæta þessari miklu aukningu í sölu á mjólkurafurðum, til að bæta birgðastöðu og hvetja til aukinnar framleiðslu. Sigurður sagði fulla ástæðu til að ganga enn lengra til að auka framleiðsluhvata innan greinarinnar og nefndi í því sambandi breytingu á hlutföllum við skiptingu beingreiðslna. Ljóst væri að kúabændur þyrftu að halda verulega vel á spöðunum. Tölur um sölu mjólkurafurða frá því í lok febrúar sýndu að sala færi enn hratt vaxandi en að sama skapi færi innvigtun mjólkur einnig vaxandi. Hins vegar hafi fituhlutfall mjólkur farð lækkandi og því væri framleiðsla á fitugrunni svipuð milli ára. Þörf á 20 prósenta aukningu Framleiðsla á mjólk þarf að vaxa um 20 milljónir lítra fram til ársins 2020 gangi mannfjöldaspár og spár um aukningu komu ferðamanna til landsins eftir auk þess sem aukning í sölu á fituhluta mjólkur verði í sama takti og undanfarin tíu ár. Árið 2020 mun, gangi spár eftir, þurfa að minnsta kosti 145 milljóna lítra framleiðslu til að fullnægja innanlandsþörf. Það er aukning um 20 prósent frá yfirstandandi ári. Í þessum áætlunum er ekki gert ráð fyrir skipulagðri framleiðslu til útflutnings heldur einungis að flutt verði út það sem fellur til af próteinhluta mjólkur umfram innanlandsþarfir. „Þetta er ögrandi og spennandi staða og æði ólík þeim harða samdrætti sem blasti við forsvarsmönnum Landssambands kúabænda í árdaga samtakanna. En í grunninn stöndum við þó frammi fyrir sama viðfangsefni, sem er hvernig auka má hagkvæmni íslenskrar mjólkurframleiðslu, til hagsbóta fyrir bændur og neytendur. Það er okkur lífsnauðsyn,“ sagði Sigurður í ræðu sinni. /fr Fréttir Auðlind-Náttúrusjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum fyrir árið 2014 Auglýst er eftir umsóknum um styrki til endurheimtar votlendis. Hámarksfjárhæð styrkja fyrir hvert verkefni er kr. 500.000. Upphæð styrks getur numið allt að 50% hluta kostnaðar. Rannsóknarverkefni eru almennt ekki styrkt. Umsóknareyðublöð eru á www.audlind.org. Upplýsingar má fá hjá raga@nett.is. Umsóknarfrestur er til og með 28. apríl 2014. Umsóknir skal senda á: Auðlind Náttúrusjóð, pósthólf 1358, 121 Reykjavík Fjöldi ályktana aðalfundar Landssambands kúabænda sneri að mikilvægi þess að auka mjólkurframleiðslu á landinu til að staðið yrði undir eftirspurn á markaði. Mynd / HKr. Egill Sigurðsson, stjórnar- formaður Auðhumlu svf., lýsti því yfir á aðalfundi Landssambands kúabænda síðasta föstudag að félagið muni greiða fullt afurðastöðvaverð fyrir alla innvegna mjólk árið 2015. Er um mikið fagnaðarefni fyrir kúabændur að ræða enda var orðum Egils fagnað á fundinum. Má setja yfirlýsingu Egils í samhengi við að í ræðu Sigurður Inga Jóhannssonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fyrr á fundinum velti ráðherrann upp hvort kvóti í mjólk væri ekki orðinn hamlandi fyrir framleiðsluaukningu og taldi hann eðlilegt að taka núverandi kerfi til endurskoðunar þegar núverandi búnaðarsamningar rynnu út. Á uppboðsmarkaði með greiðslumark í mjólk sem fór fram nú 1. apríl síðastliðinn var sáralítil eftirspurn eftir kvóta en aðeins tvö gild tilboð um kaup bárust. Kemur það ekki á óvart miðað við þá stöðu sem uppi er, ekki síst í ljósi þess að greitt verði fullt verð fyrir alla innvegna mjólk. /fr Fullt afurðastöðvaverð fyrir alla mjólk Egill Sigurðsson. Mynd / HKr. Auka þarf mjólkurframleiðslu um 20 milljónir lítra fram til ársins 2020: Mjólkurverð hækkað mun minna en vísitala síðast áratug ‒ „Ögrandi og spennandi staða,“ segir formaður Landssambands kúabænda Vinna á ákveðið að innflutningi erfðaefnis holdanautgripa Sigurður Loftsson, formaður Landssambands kúabænda. Mynd / HKr.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.