Bændablaðið - 03.04.2014, Page 23

Bændablaðið - 03.04.2014, Page 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 3. apríl 2014 koma að framleiðslu matvæla hér á landi með einum eða öðrum hætti. Halldór J. Ragnarsson kosinn nýr formaður MFK Meistarafélags kjötiðnaðar-manna hélt líka aðalfund sinn fyrir helgina, en MFK var stofnað upp úr Meistaradeild Félags íslenskra kjötiðnaðarmanna árið 1980. Var endað með glæsilegri árshátíð á Hilton Hóteli á laugardagskvöldið. Á aðalfundinum varð sú breyting helst að Kjartan Bragason sem tók við sem sjöundi formaður félagsins á aðalfundi 2010, gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu sem formaður. Hann mun þó áfram sitja í stjórn félagsins. Í hans stað var Halldór Jökull Ragnarsson kosinn formaður en hann var áður gjaldkeri félagsins. Áfram í stjórninni eru þeir Oddur Árnason, Magnús Friðbertsson. Þá voru þeir Þorsteinn Þórhallsson og Hreiðar Örn Zoega Stefánsson kjörnir varamenn stjórnar. /HKr. Halldór Jökull Ragnarsson er nýr formaður MFK. Hann tekur við embætinu af Kjartani Bragasyni sem verður þó áfram í stjórn félagsins. Steinar Þórarinsson hjá Sláturfélagi Suðurlands hlaut bestu verðlaun fyrir afurð úr alifuglakjöti, sem var lifrarkæfa með jarðarberjahlaupi. Hér er hann ásamt ráðherra. Dómarar að störfum í húsakynnum Hótel- og Matvælaskólans í kjallara Menntaskólans í Kópavogi. Hér heldur Þorsteinn Þórhallsson á athyglisverðri vöru sem barst í keppnina, en það er þurrkað nautakjöt. Hauksson, Kristján G. Kristjánsson, Örlygur Ásgeirsson, Eðvald Sveinn Valgarðsson, Thorvald Imsland og Magnús Friðbergsson. Auk sex félaga bænda og nokkurra fyrirtækja fékk landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytið þakkarskjal fyrir veittan stuðning við keppnina.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.