Bændablaðið - 03.04.2014, Side 43

Bændablaðið - 03.04.2014, Side 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 3. apríl 2014 Lesendabás Þjóðin vill halda sínum landbúnaði Ég hef hugsað mér að skrifa nokkrar greinar um landbúnað og velta fyrir mér búrekstri séðum með augum viðskiptafræðings. Ég hef starfað í landbúnaði en mín reynsla er mestmegnis í bönkum, við fjármögnun og endurskipulagningu fyrirtækja, og síðar í fyrirtækjarekstri. Í öllum rekstri geta menn misst sjónar á því sem skiptir máli og á það ekki síður við um bændur en aðra. Rekstur búa er ekkert annað en fyrirtækjarekstur. Skilin milli heimilis og vinnu verða lítil þegar maður býr á vinnustaðnum og er þannig hætta á að maður verði samdauna vinnustaðnum og gangi til verka af vana án þess að vera gagnrýninn á eigin verk og leita betri leiða. Fyrirtæki sem ná árangri eru í grunninn mjög lík. Þau hafa sérþekkingu, markaðsstöðu þannig að önnur fyrirtæki eiga erfitt með að ná sömu stöðu og eru með stjórnendur sem hafa mikinn vilja til að auka þekkingu sína og eru opnir fyrir breytingum. Með því að vera sífellt tilbúin að breyta ná fyrirtækin alltaf að vera á undan samkeppnisaðilum. Bændur eru reyndar ekki í beinni samkeppni hver við annan, en bændur þurfa sífellt að huga að hagræðingu á búum sínum. Fólk er vanafast í eðli sínu og því dettum við alltaf í þann gír að gera hlutina eins og það er vant. Sá eiginleiki að bæta við þekkingu og læra og leita nýrra leiða er hugsunarháttur sem fólk í rekstri þarf að temja sér. Við þurfum að tileinka okkur að skoða nýjar leiðir og meta hvort þær geti hjálpað okkur að ná betri árangri. Hvernig ná fyrirtæki árangri? Eitt af fyrstu merkjum þess að fyrirtæki séu að gefa eftir er stöðnun í þróun þeirra. Þau hætta að vilja stækka eða þróast, enginn vilji er til að breyta, hlutirnir gerðir af vana án þess að velta fyrir sér hvort hægt sé að gera betur. Ég starfaði í banka og þurfti oft að aðstoða félög sem áttu í erfiðleikum. Oft mátti lesa úr ársreikningum þeirra að gjaldþrotið átti sér langan aðdraganda, oftast nær 3-5 ár. Stjórnendur orðnir staðnaðir, vildu ekki skilja að rekstrarumhverfið var að breytast. Þetta vandamál er til staðar hjá bændum eins og öðrum rekstraraðilum. Þessi hætta er mun meiri í landbúnaði af því að bændur hafa færri snertifleti við viðskiptavini sína en flestar aðrar stéttir. Þeir sem kaupa afurðir bænda eru afurðastöðvar. Þær þurfa að aðlaga framleiðslu bænda að markaðinum. Bóndinn þarf ekki að hugsa um þjónustu eða markaðssetningu en vissulega eru það gæðin sem skipta hann miklu máli. Fyrirtæki sem hafa marga snertifleti við viðskiptavini eiga frekar möguleika á að breyta verði og aðlaga sig að breyttum aðstæðum. Bændur geta þetta ekki. Bændur geta bara reynt að hafa stjórn á kostnaði við búið og afköstum þess. Bændur finna seint fyrir breytingum á neytendamarkaði, þar sem afurðastöðvarnar eru á milli þeirra og neytenda. Því berast boð um breytingar seint. Gott dæmi um þetta er aukningin á kvótanum síðastliðið haust. Hefðu bændur haft beint samband við markaðinn hefðu sennilega fleiri tekið sig til en gerðu og framleitt meira en kvótinn bauð upp á, í von um að fá fullt verð fyrir „umframframleiðsluna“. Að fá fullt afurðastöðvaverð er afar gott verð fyrir þann sem búinn er að fylla kvótann vegna þess að fasti kostnaðurinn breytist ekkert þó framleitt sé meira. Ég mun síðar fjalla um framleiðslukostnað og kostnaðarútreikninga. Að mínu mati ættu afurðastöðvar í mjólkuriðnaði að birta áætlun um mjólkurkaup tvö ár fram í tímann. Bændur geta þá gert betri áætlanir um framleiðslu og miðað framleiðsluna betur við sinn kostnað. Afurðastöðvarnar tapa líka ef framleiðslan er ekki næg. Áhætta afurðastöðva af því að festa magn hráefniskaupa af bændum til tveggja ára er því ekki mikil miðað við þá hagræðingu sem skapast af auknu rekstraröryggi bæði afurðastöðva og bænda. Undanfarinn áratug hafa bændur getað gengið út frá því að kvóti muni sífellt hækka í verði og þannig hægt að réttlæta kvótakaup með eignaaukningu. Skýr merki eru um að þetta sé að breytast. Landbúnaðarráðherra hefur talað um að nú sé kominn tími til að breyta landbúnaðarkerfinu, verð á kvóta er orðið svo hátt að það tekur orðið 7 ár að greiða niður kvótakaupin með tekjum af beingreiðslum. Þar að auki virðist eftirspurn eftir mjólk vaxa það hratt að það stefnir í að bændur fái fullt afurðastöðvaverð án beingreiðslna. Ávinningur af kvótakaupum er einungis beingreiðslur. Hér áður gátu bændur með kvótakaupum fengið fullt afurðastöðvarverð sem þeir fengu ella ekki. Hverju þurfa bændur að breyta? Bændur þurfa almennt að bæta sig í að meta rekstur búa sinna. Mín tilfinning er að tölfræði bænda um eiginn rekstur sé ekki góð. Bændur fylgjast vel með hvað meðalkýrin gefur af sér og hvað kemur mikið kjöt af hverjum grip. Sömuleiðis er fylgst vel með gæðum. En þeir velta minna fyrir sér hvað er kostað til við að búa til hvern mjólkurlítra, hvað kostar hver heyrúlla/fóðureining og líka hvað mikið verður eftir í hagnað eftir árið og hvað er borgað mikið í skatta. Skattgreiðslur er góður mælikvarði á heilbrigði rekstrar, því að ef greiddir eru skattar þá er hagnaður. En enginn þessara mælikvarða er fullkominn því aðstæður hjá bændum eru svo misjafnar að ekki er hægt að nota einn algildan mælikvarða. Að undanförnu hef ég verið að skoða búrekstur og meta arðsemi búa til að finna leiðir til að hagræða í rekstri búa. Einnig er ég að skoða hvað sé betur hægt að gera í reksti og aðstoða bændur í fjárfestingum. Þessar greinar sem birtast í Bændablaðinu á næstunni eru hluti af því að kynna það sem ég er að gera og um leið að stuðla að umræðu um búrekstur eins og um væri að ræða fyrirtækjarekstur. Með betri greiningu á kostnaði í rekstri og að nýta upplýsingar úr bókhaldi er hægt að ná betri árangri í öllum rekstri. Þessar greinar munu einnig fara inn á bloggsíðuna http://burekstur. blog.is/ þar sem ég hvet ykkur til að tjá ykkur um þessar hugrenningar mínar. Jón Þór Helgason Jón Þór Helgason Gylfafl öt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200 • www.velfang.is • velfang@velfang.is FR U M - w w w .f ru m .is Kverneland -því hvert korn telur Ryðfrír dreifi búnaður Auðstilltur og nákvæmur Kverneland Accord áburðardreifarar Tveggja skífu 1400 lítra Sjálfstæð vökvaopnun á hvorri skífu Jaðardreifi búnaður einfaldur í notkun Íslenskar leiðbeiningar Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 Hafa áhrif um land allt!

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.