Jón á Bægisá - 01.12.2005, Page 20
Sænska söngkonnan Jenny Lind var í Kaupmannahöfn haustið
1845 á söngferðalagi og hélt þar upp á 25. afmælisdaginn. H.C.
Andersen heillaðist af fegurð hennar og yndisþokka en þrátt
fyrir nána vináttu endurgalt hún aldrei ást hans.
fátækari nokkrum fátæklingi, illa klæddur lörfum af öðrum, í húsnæði sem
var fyrir neðan allar hellur, orðið fyrir hverjum vonbrigðunum á fætur
öðrum, oftlega verið svangur svo dæmi voru þess að hann sæti í
Rósenborgargarði naslandi þurrar brauðskorpur. Kannski einmitt þarsem
nú stendur styttan af honum - sú rétta! - við endann á ‘Dömustígnum’.
Og þar viljum við líka leggja blóm okkar ril skáldsins, með dýpstu aðdáun,
um leið og við sendum hlýjar hugsanir til hans, sem hóf ævina í fátældegri
kytru í Óðinsvéum og endaði hana sem stórriddari af Dannebrog, hylltur
af gervallri heimsbyggðinni fyrir allt það fagra sem hann hafði fært henni
með snilligáfu sinni.
Er þetta kannski ekki ótrúlegast af öllu?
SigurðurA. Magnússon íslenskaði
18
á. /Jffí/gtíá — Tímarit þýðenda nr. 9 / 2005