Jón á Bægisá - 01.12.2006, Side 27

Jón á Bægisá - 01.12.2006, Side 27
„Glöð skulum bœði við brott síðan halda brennandi ífaðmlögum loftvegu kalda... “ í háskóla í Vín. Lagði hann einkum stund á þýzka [sic] fræði og á grísku og latnesku. En er hann hafði lokið háskólanámi, fekst hann við ritstörf og varð skjótt nafnkunnur maður. Hann varð bókavörður í bókasafni innanríkisráðuneytisins 1886, eftir ráðstöfun Taaffe greifa forsætisráðherra, og formaður þess 1891. Arið 1894 var honum falið að flytja og raða að nýju hinu mikla bókasafni forsætisráðuneytisins og sjá því fyrir húsbúnaði; var það eftir fyrirmælum Windisch-Grátz fúrsta, sem þá var forsætisráðherra. Hlaut hann fyrir Franz-Jósephs krossinn og var síðan fengin yfirumsjón þessa safns. - Badeni-ráðuneytið ákvað síðar að minka þetta safn og var enn framkvæmdin falin Poestion. En hann gerði samsteypu úr báðum söfnunum, og er síðan bókasafn innanríkisráðuneytisins svo stórt, að ekki eru nema tvö stærri söfn í Vínarborg. Er það nú yfir 100000 bindi. Árið 1896 varð hann yfirbókavörður í VII. stéttarröð, 1901 varð hann „regierungsrat" en 1909 „Staatsbibliotheks-Direktor I. Klasse“ og 1913 „Hofrath“. Eru þetta talin mikil virðingarmerki þar í landi. [...] Birkibeinar senda honum þann afmælisárnað, að honum auðnist að njóta Iengi ennþá mikillar starfsgleði.“ Höfúndarverk Poestions telur liðlega fjörutíu bókatitla. Um tveir þriðju hlutar þess eru þýðingar. Þar á meðal er Piltur og stúlka eftir Jón Thoroddsen sem á sínum tíma náði töluverðri útbreiðslu á þýsku málsvæði. Bókin var gefin út f]órum sinnum á árunum 1883-1902 hjá Reclam forlaginu í Leipzig. Svo má telja til höfundana H.C. Andersen, Henrik Ibsen og Alexander Kielland svo einhverjir séu nefndir. Einnig liggur eftir hann svo mikið magn blaða- og tímaritsgreina að ekki verður tölu á komið. Mjög margar greinanna fjalla um efni tengd íslandi. Poestion var líkt og Konrad Maurer duglegur við að taka upp hanskann fyrir Islendinga þegar vikið var að landinu á óréttmætan hátt. Má segja að þessir menn hafi reynt allt til að koma í veg fyrir fordóma og ranghugmyndir um Island og íslenska menningu hvort sem er í bókum sínum eða í bókadómum um verk annarra sem rangt greindu frá Islandi. Fyrir það hlutu þeir ekki síst lof á Islandi meðan þeir lifðu. Það er athyglisvert að Poestion sótti Island fyrst heim sumarið 1906 en þá hafði hann þegar ritað sín helstu verk. Sökum þessa þurfti hann oft að heyra gagnrýnisraddir. Hallgrímur Melsted víkur að þessu í fréttablaðinu Reykjavík þann 4. febrúar 1905. I lok gagnrýni um bókina Die Nordische Atlanth eftir Jaques Jáger sem „er, þegar öllu er á botninn hvolft [...] með þeim vitlausustu, sem ritaðar hafa verið um fsland“ kemst hann svo að orði: „Nú veit hver Islendingur, að Poestion er allra núlifandi útlendinga kunnugastur Islandi og ísl. bókmentum, en af því að hann er ekki auðugur maður, hefír hann aldrei getað ferðast hingað til lands; um þetta bregður nú Jáger honum meðal annars og telur þar ómæt öll hans orð. Ætti þessi ritdeila enn að vera oss hvöt til þess að styrkja Poestion til þeirrar farar.“ á Jffiœýítúiá - í DAG HEYRA SÖNGGYÐJURNAR TIL ÞÍN 25
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Jón á Bægisá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.