Jón á Bægisá - 01.12.2006, Page 78

Jón á Bægisá - 01.12.2006, Page 78
Thomas Brasch Áfram. Næsti þáttur. Þessum þætti er ólokið, sögðu þær. Getur þú flutt texta með hljóðfæraleik þínum? Eða getur þú einungis flutt áheyrendum tóna án innihalds? Þetta er flauta, sagði Marsýas. Apollon hefur betur í annað sinn. Þriðji þáttur. Hljóðfæraleikurinn sjálfur. Apollon lék næstum heila klukkustund. Svo virtist sem Marsýas svæfi standandi. Augu hans voru opin og beindust að Apolloni, en þau voru sem dauð. Eg spila ekki, sagði hann þegar Apollon hafði lagt lýruna í grasið. Eigum við að taka okkur smáhlé? spurði Apollon. Mér er alveg sama, sagði Marsýas. Hvað á það að þýða: Mér er alveg sama? sögðu þær. Þú komst hingað til að keppa við Apollon. Hvernig eigum við að skera úr um hvor ykkar er meiri listamaður ef við heyrum ekkert annað en tal þitt? Komdu kerlingunum burt, sagði Marsýas. Þær eiga að dæma um okkur, sagði Apollon. Æ, sagði Marsýas, þær eiga að hunskast til síns heima og hengja skrælnuð brjóstin í kalt vatn. Og þetta vill heita listamaður, æptu þær. Talsháttur og tungutak eins og hjá fjósamanni. Hann er ekki þess verður að heita keppinautur þinn, Apollon. Marsýas snerist á hæli og horfði á þær. Svipur hans var svo afmyndaður af hatri að húðin varð rauðflekkótt. Eitt orð enn, æpti hann, og ég lem úldnar geiflurnar á ykkur inn úr trýninu. Durgur, sögðu þær og sneru við honum baki. Sjáðu þessa ruddalegu rassa, æpti Marsýas. Viltu í alvöru að eitthvað þessu líkt ákveði þetta, maður? Þú hefur kannski rétt fyrir þér, sagði Apoll- on, en hver annar kemur til greina? og varð strax bestur að blása. Kinnarnar á Louis Armstrong: And I think to myself, what a wonderful world. Nú hélt Marsýas að hann væri jafn hinum hvíta Apolloni sem býr í Delfúm í húsi með súlum og veit allt. Guð véfréttarinnar. Hljóðfæri II: Lýra, kíþara, Apollons gefúr lýríkinni nafn, innilegri og persónulegri. Þetta er strengjahljóðfæri líkt hörpu, notað m.a. til undirleiks við söguljóðaflutning. Lýruleikarinn kveður eða syngur, flautuleikarinn blæs. Lýran er hljóðfæri mælskunnar og yfirstéttanna, flautan raddleysis og fátæktar, smalanna og þrælanna. Keppnin getur aðeins farið á einn veg. Dómararnir eru hlutdrægir og mæla flautuna á mælikvarða lýrunnar. Söngur Apollons er grískur hymni að forminu til. Það sést á lokaorðunum: Auf wiedersehen, ihr Helden. Brasch hefúr lært eitthvað í klassík. En guðinn og lýran eru ekki á eitt sátt. Hann vill syngja söguljóð, kanónískar bókmenntir, en hún, 76 fas/ á, Jfflœyáá - Tímarit þýðenda nr. 10 / 2006
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Jón á Bægisá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.