Jón á Bægisá - 01.11.2008, Blaðsíða 137
Hœversk uppástunga
og hafa af okkur fé í verði, máli og gæðum ef ákvörðun væri tekin um að
kaupa einungis heimaframleidda vöru, og sem enn hefur ekki tekist að
fá til að setja fram svo mikið sem eitt tilboð um réttmæt viðskipti, þótt
þeim hafi verið boðið upp á það oft og einlæglega.
30. Því endurtek ég: lát engan mann tala við mig um þessi ráð og önnur
þeim lík fyrr en hann hefur að minnsta kosti smávægilega von um að
einhvern tímann verði gerð hjartanleg og einlæg tilraun til að koma
þeim í framkvæmd.
31. Hvað sjálfan mig varðar, þá var ég orðinn langþreyttur af að setja fram
árangurslausar, gagnslausar,30 óraunsæjar hugmyndir, og að lokum var
ég orðinn vita vonlaus um að þær hlytu brautargengi. Þá kom þessi
áætlun sem betur fer upp í huga mér, og þar sem hún er að öllu leiti
nýjung, felur hún í sér eitthvað sem er traust og raunverulegt, ókeypis
og vandræðalítið í framkvæmd og sem felur ekki í sér neina hættu á
að styggja Englendinga. Astæðan er sú, að þessi tegund varnings þolir
ekki útflutning, og holdið er of viðkvæmt til að þola langa legu í salti.
Þó gæti ég ef til vill nefnt land sem mundi með glöðu geði háma í sig
alla þjóð okkar ósaltaða.
32. Þrátt fyrir þetta er fylgni mín við skoðanir mínar ekki svo ofsafengin að
ég hafni öllum hugmyndum skynsamra manna sem gætu reynst álíka
meinlausar, ódýrar, auðveldar og áhrifamiklar. En áður en eitthvað slíkt
sem biður upp á betri úrlausn verður sett fram á móti áætlun minni,
þá vil ég biðja höfundinn eða höfundanna vinsamlegast um að íhuga
yfirvegað tvö atriði. I fyrsta lagi hvernig, eins og ástandið er núna, ætla
þeir að finna fæði fyrir eitt hundrað þúsund gagnslausa munna og klæði
á eitt hundrað þúsund bök.32 Og í öðru lagi þá er hér í konungdæm-
inu um ein milljón aumingja, sem samanstendur af atvinnubetlurum
ásamt megninu af öllum bændum, smábændum og verkamönnum,
ásamt konum þeirra og börnum, sem eru svo gott sem betlarar; ef lífs-
viðurværi þeirra væri allt lagt í sameiginlegan sjóð, þá mundi skuld
þeirra nema tveimur milljónum sterlingspunda; og ég vil því biðja þá
stjórnmálamenn sem kann að mislíka tillaga mín og gerast ef til vill svo
djarfir að reyna að andmæla henni,33 um að spyrja fyrst foreldra þessara
mannvera hvort þeim þætti ekki, eins og ástandið er nú, að það hefði
verið þeim mikil gæfa að hafa verið seld til matar um eins árs aldurinn á
þann hátt sem ég hef lýst, og þannig forðast hið látlausa ólán sem hefur
dunið á þeim í formi kúgunar landeigenda, þess að þurfa að borga leigu
án þess að hafa peninga eða vinnu, skort á almennu viðurværi þar sem
á — Að geta sagt „shit fyrir framan dömu
135