Jón á Bægisá - 01.11.2008, Side 137

Jón á Bægisá - 01.11.2008, Side 137
Hœversk uppástunga og hafa af okkur fé í verði, máli og gæðum ef ákvörðun væri tekin um að kaupa einungis heimaframleidda vöru, og sem enn hefur ekki tekist að fá til að setja fram svo mikið sem eitt tilboð um réttmæt viðskipti, þótt þeim hafi verið boðið upp á það oft og einlæglega. 30. Því endurtek ég: lát engan mann tala við mig um þessi ráð og önnur þeim lík fyrr en hann hefur að minnsta kosti smávægilega von um að einhvern tímann verði gerð hjartanleg og einlæg tilraun til að koma þeim í framkvæmd. 31. Hvað sjálfan mig varðar, þá var ég orðinn langþreyttur af að setja fram árangurslausar, gagnslausar,30 óraunsæjar hugmyndir, og að lokum var ég orðinn vita vonlaus um að þær hlytu brautargengi. Þá kom þessi áætlun sem betur fer upp í huga mér, og þar sem hún er að öllu leiti nýjung, felur hún í sér eitthvað sem er traust og raunverulegt, ókeypis og vandræðalítið í framkvæmd og sem felur ekki í sér neina hættu á að styggja Englendinga. Astæðan er sú, að þessi tegund varnings þolir ekki útflutning, og holdið er of viðkvæmt til að þola langa legu í salti. Þó gæti ég ef til vill nefnt land sem mundi með glöðu geði háma í sig alla þjóð okkar ósaltaða. 32. Þrátt fyrir þetta er fylgni mín við skoðanir mínar ekki svo ofsafengin að ég hafni öllum hugmyndum skynsamra manna sem gætu reynst álíka meinlausar, ódýrar, auðveldar og áhrifamiklar. En áður en eitthvað slíkt sem biður upp á betri úrlausn verður sett fram á móti áætlun minni, þá vil ég biðja höfundinn eða höfundanna vinsamlegast um að íhuga yfirvegað tvö atriði. I fyrsta lagi hvernig, eins og ástandið er núna, ætla þeir að finna fæði fyrir eitt hundrað þúsund gagnslausa munna og klæði á eitt hundrað þúsund bök.32 Og í öðru lagi þá er hér í konungdæm- inu um ein milljón aumingja, sem samanstendur af atvinnubetlurum ásamt megninu af öllum bændum, smábændum og verkamönnum, ásamt konum þeirra og börnum, sem eru svo gott sem betlarar; ef lífs- viðurværi þeirra væri allt lagt í sameiginlegan sjóð, þá mundi skuld þeirra nema tveimur milljónum sterlingspunda; og ég vil því biðja þá stjórnmálamenn sem kann að mislíka tillaga mín og gerast ef til vill svo djarfir að reyna að andmæla henni,33 um að spyrja fyrst foreldra þessara mannvera hvort þeim þætti ekki, eins og ástandið er nú, að það hefði verið þeim mikil gæfa að hafa verið seld til matar um eins árs aldurinn á þann hátt sem ég hef lýst, og þannig forðast hið látlausa ólán sem hefur dunið á þeim í formi kúgunar landeigenda, þess að þurfa að borga leigu án þess að hafa peninga eða vinnu, skort á almennu viðurværi þar sem á — Að geta sagt „shit fyrir framan dömu 135
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Jón á Bægisá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.