Bændablaðið - 13.05.2015, Blaðsíða 25
25Bændablaðið | Miðvikudagur 13. maí 2015
Áreiðanleiki í fyrirrúmi
ár á Íslandi
KUBOTA M8560 er einstaklega lipur og þægileg tækjavél sem hentar vel í snatt
og snúninga. Hún er lágbyggð og auðvelta að ganga um hana. Gott útsýni í
tækjavinnuna. Sparneytin vél sem er ríkulega búin.
KUBOTA M8560
Meðal staðalbúnaðar má nefna: Vökvaútskjótanlegan lyftukrók 2 tvöföld vökvaúrtök Loftpúða-
fjöðrun í sæti Loftkæling Kúplingsfrír vendigír Brettakantar út fyrir afturdekk Tveggja hraða
aflúrtak (540/1000) 4 vinnukastarar (2 að framan og 2 að aftan) 86 l/mín vökvakerfi Hámarkshraði
við lágan snúningshraða (eco gír).
KUBOTA M8560 með KUBOTA LA1354 ámoksturstækjum og skóflu
kostar einungis kr. 7.990.000 án vsk.
KUBOTA dráttarvélar eru annálaðar fyrir sparneytni og lágan rekstrarkostnað.
ÞÓR HF
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Vefsíða:
www.thor.is
Dropi
Náttúrulegt kaldunnið þorskalýsi
Dropi er nýtt íslenskt þorskalýsi, ríkt af omega-3 fitusýrum og 100%
náttúrulegum A og D vítamínum. Fyrsta flokks íslensk náttúruafurð.
sex bú í yfirbyggðu skýli sem snýr
á móti suður og þegar mest er fær
hann um 75 kíló af hunangi á ári.
„Að rækta býflugur hér á landi
er ekki ólíkt því að rækta epli
að því leyti að við erum alveg á
jaðrinum á að slíkt sé hægt vegna
veðráttunnar. Þrátt fyrir það er
um 120 manns að prófa sig áfram
og rækta býflugur að staðaldri og
áhuginn er gríðarlegur. Ég er búinn
að vera í þessu í 12 eða 14 ár og
árangurinn misjafn milli ára.“
Þorsteinn segir að flugurnar í
búunum hans hafi byrjað að fara út
skömmu fyrir síðustu mánaðamót
þegar sólin var sterkust. „Fyrsta
flug býflugna á vorin er kallað
hreinsunarflug vegna þess að þær
gera ekki þarfir sínar inni í búinu
heldur safna úrganginum inni í sér
yfir veturinn. Flugurnar geta því
verið ansi stressaðar fyrst á vorin
þangað til þær komast út þar sem
búin myndu skemmast ef þær
gerðu stykkin sín inni í þeim. Eftir
hreinsunarflugið róast flugurnar
mikið og slaka á eins og skiljanlegt
er.“
Að sögn Þorsteins lifa þernurnar
stutt. „Við flytjum inn flugur á
hverju ári frá Álandseyjum þar sem
er að finna hreinan og sjúkdómafrían
stofn. Drottningarnar makast á
flugi í sól og hita þannig að það er
stundum á mörkunum að frjóvgun
takist hér sum ár.
Býflugnaræktarfélagið er að
gera tilraun með að framleiða
nýj bú á Íslandi og hefur samið
við tvo býflugnaræktendur
um framkvæmdina. Þetta eru
Egill Sigurgeirsson og Þorbjörn
Andersen sem eru báðir mjög hæfir
ræktendur.
Uppskeran af hunangi fer
alveg eftir árferði og ég ákvað í
fyrrasumar, sem var blautt og
leiðinlegt, að framleiða ekki hunang
og dekra frekar við flugurnar og
láta þeim líða vel. Skilyrðin voru
slæm og ef maður leggur of mikið
á flugurnar getur búið hrunið en við
góð skilyrði getur bú eins og ég er
með, með milli 10 og 30 þúsund
flugum, gefið um 20 kíló hvert.“
/VH
Eggjabúið Hvammur framleiðir um 75 tonn á ári.
Þorsteinn í „leikskólanum“ sem er
kalt gróðurhús þar sem hann er að
prófa sig áfram með mismunandi yrki
af eplum og vínberjaplöntum.