Bændablaðið - 13.05.2015, Blaðsíða 50
50 Bændablaðið | Miðvikudagur 13. maí 2015
Vélabásinn
liklegur@internet.is
Hjörtur L. Jónsson
Fjórhjóladrifinn Mazda CX5:
Öflugur og fjölhæfur jepplingur
Fyrir skömmu frumsýndi
Brimborg nýjan og breyttan
fjórhjóladrifinn Mazda CX-5
AWD. Ég kíkti á bílinn og eftir
að hafa skoðað hann vandlega í
sýningarsal fékk ég bílinn lánaðan
til prufuaksturs.
Mazda CX-5 er hægt að fá með
tveim mismunandi kraftmiklum
bensínvélum og dísilvélum, sex
gíra beinskiptingu eða sex þrepa
sjálfskiptingu.
Fjórar mismunandi vélar í boði
Eins og áður segir eru í boði fjórar
mismunandi vélar í Mazda CX-5,
tvær bensínvélar, 2,0 lítra vél sem
skilar 160 hestöflum eða 2,5 lítra
vél sem skilar 192 hestöflum.
Dísilvélarnar eru líka tvær, 2,2 lítra
turbo sem er 150 hestöfl og önnur
eins vél sem tekið er meira út úr og
skilar 175 hestöflum.
Grunnverðin á Mazda CX-5 er
frá 5.490.000 og upp í 7.090.000
(fer eftir útbúnaði). Mjög mikið
af aukabúnaði sem hjá mörgum
öðrum framleiðendum hefur þurft
að borga fyrir er staðalbúnaður í
Mazda CX-5, en eins og í flestum
nýjum bílum er hægt að fá ýmsan
aukabúnað í bílinn.
Bíllinn sem ég prófaði var
sjálfskiptur dísilbíll með 150 hestafla
vél og er uppgefin eyðsla á honum
5,5 lítrar á hundraðið. Eftir tæplega
400 km akstur á meðalhraðanum 75
var mín eyðsla 6,4 lítrar á hundraðið
(persónulega var ég mjög sáttur að
vera ekki nema 0,9 lítrum fyrir ofan
uppgefna eyðslu).
Vindmótsstaðan skiptir máli
Það var fallegt veður þann 1.
maí þegar ég prófaði bílinn
en hugmyndin var að fara
Hvalfjarðarhring en eftir því
sem kílómetrarnir rúlluðu inn á
kílómetrateljarann fannst mér alltaf
bíllinn verða þægilegri og þægilegri
í akstri. Töluverður vindur var að
N-A og fékk ég þá hugmynd að
upplagt væri að renna í Staðarskála
og til baka til að finna hvernig
bíllinn væri í langkeyrslu.
Ég varð ekki fyrir vonbrigðum
og fannst mjög gott að keyra bílinn
í langkeyrslu. Á leiðinni norður á
móti vindinum var bíllinn að eyða
6,6 lítrum á hundraðið. Á leiðinni
til baka á sömu leið var ég að eyða
5,7 lítrum miðað við 100 km akstur
(mælt frá Hvalfirði í Staðarskála og
svo öfugt til baka).
Lítið veghljóð og góður
drifbúnaður
Á malarvegi fannst mér lítið
steinahljóð undir bílnum (þrátt
fyrir gróf heilsársdekk). Stór dekkin
tóku vel smáholurnar og í stærri
holum virkar fjöðrunin afar vel.
Fjórhjóladrifið nefnist AWD (All
wheel drive) og samanstendur af
27 skynjurum sem meta ástand vegs
og veggrips. Þetta er einfaldlega
að virka mjög vel á malarvegum
og kom virkni drifbúnaðarins mér
verulega á óvart.
Ókostur að vera ekki með
varadekk
Að öllu leyti fannst mér gott að
keyra bílinn, mikið rými bæði í
framsætum og fyrir farþega aftur
í. Hins vegar fannst mér óþægilegt
að setjast í ökumannssætið þar sem
stuðningspúðarnir í sætinu eru svo
háir yfir að fara, en að sitja í sætinu
þegar maður er á annað borð sestur
er þægilegt með þessa háu púða
beggja vegna.
Plássið í aftursætunum er það
mikið að það voru tæplega tveir
hnefar í ökumannssætið þegar ég
mældi sitjandi í aftursætinu.
Stillingarnar fyrir útvarpið er
fyrir aftan gírstöngina og eftir að
ég vandist því líkaði mér þessi
staðsetning vel.
Farangursrýmið er mjög gott
og undir hlerunum eru nokkur lítil
hólf fyrir dót.
Eini ókosturinn sem ég sá við
bílinn er að í honum er ekkert
varadekk (eitthvað sem ég gæti
ekki hugsað mér að vera án).
Fínn jepplingur með marga kosti
Hátt er undir Mazda CX-5 AWD
og ætti hann því að henta vel í
snjó, á djúpum vegslóðum og
á lausu yfirborði vegna AWD
fjórhjóladrifsins. Dráttargetan er
2000 kg ef það sem dregið er er
útbúið bremsum. Mazda CX-5 er
útbúin blindpunktsaðvörunarkerfi
sem virkar þannig að ef verið er að
skipta um akrein og fyrir óaðgæslu
veit maður ekki af bíl eða mótorhjóli
á svæðinu sem spegillinn nær ekki
skynjar útbúnaðurinn hættu og
lætur vita. Upphitaðir hliðarspeglar
(kemur sér vel á veturna í snjókomu).
Verðið á bílnum er mjög hagstætt
miðað við útbúnaðinn og kraftinn.
Nánari upplýsingar um Mazda CX-5
má finna á vefsíðunni www.mazda.is.
Helstu mál og upplýsingar
Umferðarlög og reglur sem fáir vita af og sjaldan er farið eftir
Töluvert hefur verið ritað í
fjölmiðlum um breytingar sem áttu
sér stað í umferðarlögum þann
1. apríl síðastliðinn. Það getur
verið ágætis skemmtun að lesa
sumt í lögunum, en fyrir mér eru
sum lögin óttalegt bull, en ágætis
skemmtun að lesa.
Umferðarlög og lögreglu-
samþykktir eru reglulega endur-
skoðaðar og það eru ekki mörg ár
síðan að tekið var út úr lögum að
bílstjórar ættu að flauta fyrir horn.
Fyrir um 30 árum var það enn inni
í lögreglusamþykkt Reykjavíkur að
ekki mætti fara neðar en Bankastræti
með geit nema að hún væri í bandi.
Lög og reglur er eitthvað til að taka
mið af, en í sumum löndum eru
umferðarlögin svo mikið bull að
það hálfa væri nóg, til dæmis eru til
lög um að mótorhjólamaður má ekki
hafa kvenmann aftan á hjólinu nema
að hún sé gift honum.
Fáir vita það að ef verið er að draga
bíl á öðrum bíl og tengingin er spotti
(dráttartaug), þá má aldrei aka á meiri
hraða en 30 km á klukkustund. Sé
notuð stöng á milli ökutækja (eins og
bilaðir strætisvagnar hér í Reykjavík
eru dregnir með) má draga á 50 km
hraða. Á skiltum sem eru við marga
þjóðvegi er sýnt að sá sem dregur
eftirvagn megi keyra á hámark 80
km hraða, en þetta á aðeins við
um ef eftirvagninn er skráður og
með bremsubúnaði. Sé kerran eða
aftanívagninn óskráður má ekki aka
hraðar á vegum en á 60 km hraða.
Þetta virðast ekki margir vita, en
þessi lög eða ólög sem bjóða upp
á marga lestarstjóra. Sem betur fer
er undantekning ef lögregla er að
skipta sér af hröðum akstri manna
sem eru á of mikilli ferð með óskráða
kerru í eftirdragi. Margir hafa túlkað
lögin þannig að þegar ungir ökumenn
eru á reynsluökuskírteini (fyrstu tvö
árin) megi ekki aka með kerru aftan
í bílnum. Þetta er ekki rétt, en það
eina sem þarf að huga að er að bíllinn,
kerran og farmurinn á henni nái ekki
3.500 kg samanlagt.
Gamla bílprófið sem tekið var
fyrir 1994 í samanburði við
nútíma bílpróf
Bílpróf sem tekið er í dag af 17 ára
ungling gefur viðkomandi réttindi
að keyra á flestum bílum sem
skráðir eru fyrir undir 8 manns og
nær ekki meiri þyngd en 3.500 kg
(þyngdin er reiknuð með burðarþoli
bifreiðarinnar), töluvert hefur verið
um að menn reikni ekki burðarþolið
inn í dæmið og haldi að það sé
eigin þyngd bílsins sem átt er við
(samanber margir amerískir pallbílar
eru of stórir og þungir fyrir nýja
prófið). Gamla prófið veitir rétt til
að aka bíl sem má hlaða að 5 tonnum
og farþegafjöldi sé ekki yfir 16
farþegar (hvorki nýja prófið né það
gamla leyfir gjaldtöku við akstur).
Gamla prófið veitir handhafa þess
heimild til að keyra sem dæmi 50
tonna trukk svo framarlega að hann
sé ekki skráður fyrir meiri farm
(hleðslu) en 5 tonn.
Mazda CX-5 AWD. Myndir / HLJ
Þyngd 1.537 kg
Hæð 1.670 mm
Breidd 1.840 mm
Lengd 4.555 mm