Bændablaðið - 28.05.2015, Page 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 28. maí 2015
Sokki á leið í sumarhaga
Laugardaginn 30. maí verður
haldinn alvöru sveitadagur í
Grímsnes- og Grafningshreppi.
Kallast hann „Borg í sveit“ og
er haldinn af íbúum og fyrirtækjum
í sveitarfélaginu. Þann dag munu
fyrirtæki, bændur og einstaklingar
taka höndum saman, hafa opið
hjá sér og bjóða gesti og gangandi
velkomna í heimsókn. Dagskrá
dagsins má sjá á www.gogg.is.
/MHH
Grindavíkurbær hefur
undirritað samning við Inkasso
innheimtufyrirtæki, sem mun
framvegis sjá um alla innheimtu
fyrir sveitarfélagið.
„Markmið Grindavíkurbæjar
með samningnum við Inkasso er
að lækka kostnað greiðenda vegna
vanskilainnheimtu samhliða því að
tryggja góðan innheimtuárangur.
Einnig að milliinnheimtukostnaður
lækki verulega. Það er afar
mikilvægt fyrir Grindavíkurbæ og
þar með allt samfélagið í heild að
innheimta skatta og gjalda sé sem
skilvísust. Það er hagur allra,“ segir
Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri
Grindavíkurbæjar.
Markmið Inkasso eru að bjóða upp
á nýjar leiðir í innheimtuþjónustu og
meiri sveigjanleika og lægri kostnað
fyrir sveitarfélög og fyrirtæki.
„Grindavíkurbær er gríðarlega
öflugt sveitarfélag og hefur á
seinustu árum markvisst byggt upp
góða þjónustu fyrir bæjarbúa og
þar er að finna öflugt atvinnulíf í
sjávarútvegi, verslun og þjónustu.
Það er okkur sönn ánægja að starfa
með sveitarfélaginu með það að
markmiði að veita íbúum þess betri
þjónustu og lækka kostnað,“ segir
Georg Andersen, framkvæmdastjóri
Inkasso. /VH
Grindavíkurbær:
Inkasso sér um
innheimtuna
Það er vor í lofti í Þingeyjarsýslu,
en margir voru orðnir langþreyttir
á veðrinu sem setti strik í
reikninginn á dögunum.
Nú hafa allir fyllst bjartsýni
á ný og búfénaðurinn verður
frelsinu feginn þegar hann
kemst á nýgræðinginn. Fyrstu
innistöðuskepnur sem önduðu að
sér vorloftinu á Laxamýri S-Þing
var geldféð og var það fúst til þess
að hoppa upp á vagninn til þess að
komast í sumarhagann á bökkum
Laxár.
Hulda Ósk Jónsdóttir á
Laxamýri, knattspyrnukona og
framhaldsskólanemi, hefur mikinn
áhuga á kindum. Hér er hún með
vini sínum, sem er forystusauðurinn
Sokki sem er fimm vetra. Hann er
léttur á fæti og liðugur, stekkur á
milli spila og jafnvel upp í garða
þegar færi gefst. Hann kann vel að
meta vinskapinn og munu verða
fagnaðarfundir þegar þau hittast í
haganum í sumar til þess að spjalla
saman, þegar Hulda Ósk kemur heim
á milli knattspyrnuleikja. /MÞÞ
Borg í sveit
– alvöru sveitadagur
Fréttir
Vesturverk ehf. áformar að
reisa 55 MW virkjun í Hvalá
í Ófeigsfirði í Árneshreppi á
Ströndum.
Vinna við mat á umhverfisáhrifum
framkvæmdarinnar verður unnin af
Verkís.
Til stendur að gera þrjú
miðlunarlón á Ófeigsfjarðarheiði,
í Hvalá, Rjúkandaá og
Eyvindarfjarðará. Aðrennslislagnir
verða leiddar í stöðvarhús sem byggt
verður neðanjarðar. /VH
Virkjun í Ófeigsfirði:
Drög að matsáætlun
Mynd / Atli Vigfússon
Jón Þórisson, sviðsstjóri fjár-
mála- og stjórnsýslusviðs, Róbert
Ragnarsson, bæjarstjóri Grinda-
víkurbæjar, Georg Andersen, fram-
kvæmdastjóri Inkasso og Jóhann
Opið hús hjá kanínubúinu á Syðri-Kárstöðum
Birgit Kositzke, eigandi kanínu-
búsins að Syðri-Kárstöðum,
verður með opið hús hjá sér á
laugardag, 30. maí, frá kl. 13 til 16.
Þangað eru allir velkomnir að
kynna sér þá nýjung í búskaparháttum
hér á landi sem ræktun holdakanína
til manneldis er. Boðið verður upp
á veitingar og jafnvel tónlist með
vorlegu ívafi.
Birgit segir að góður gangur
sé í ræktuninni og raunar gangi
búskapurinn betur en hún átti von
á. Fyrsta slátrun var upp úr miðjum
janúar á þessu ári og hefur að
jafnaði verið slátrað einu sinni í
mánuði það sem af er ári. Slátrað er
hjá Sláturhúsinu á Hvammstanga.
Eskja í Reykjavík hefur umboð fyrir
kanínukjöt frá Syðri-Kárstöðum og
geta þeir sem áhuga hafa á að bragða
ferskt kanínukjöt haft samband við
fyrirtækið.
Fleiri sölustaðir bætast í hópinn
Innan tíðar verður hægt að
nálgast niðurhlutað kanínukjöt
hjá Matarbúrinu í Reykjavík, en
til stendur að færa starfsemi þess
að Grandagarði 29. Kolabraut,
veitingahús í Hörpu, mun einnig bjóða
upp á kanínukjöt á matseðli sínum
og gestum á nýjum veitingastað,
Sjávarborg á Hvammstanga, hefur
staðið til boða að velja sér kanínukjöt
þegar þeir snæða þar.
Þannig eru að bætast við staðir þar
sem slíkt kjöt er í boði og segir Birgit
það ánægjulegt. Viðtökur hafi verið
góðar það sem af er. Kjötið fáist nú
á fleiri stöðum en áður og æ fleiri
hafi áhuga fyrir að prófa. Eftir því
sem unnendum kanínukjöts fjölgi
megi búast við að það magn sem fer
á markað muni aukast.
/MÞÞ
Bændablaðið
Kemur næst út
11. júní