Bændablaðið - 28.05.2015, Page 14

Bændablaðið - 28.05.2015, Page 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 28. maí 2015 Rafmagn var tekið af bæjum á Þelamörk í Hörgárdal í fjórar klukkustundir á dögunum á meðan tré voru höggvin undan háspennulínunni sem færir íbúum sveitarinnar rafmagn. Hætta var orðin á að tré gætu sveiflast utan í línurnar eða fokið á þær í ofviðrum að því er fram kemur á vefsíðu Skógræktar ríkisins. Grisjun stendur nú yfir í skóginum á Vöglum á Þelamörk. Kristján Már Magnússon skógverktaki og starfsmaður hans, Óskar Einarsson, vinna að grisjuninni með grisjunarvél. Í samvinnu við RARIK sem á og rekur háspennulínuna var fundinn hentugur tími til að hreinsa undan línustæðinu og þurfti að skipuleggja vel vinnuna svo tíminn nýttist sem best.Verkið tókst vel. Háspennulínan orðin 60 ára Háspennulína þessi á Þelamörk er orðin sextíu ára gömul. Undanfarin ár hefur RARIK unnið að því að leggja línur sem þessa í jörð og er stefnt að því að þessi verði tekin niður og ný lögð í jörð á næstu fimm árum. Ekki var þó hægt að bíða svo lengi án þess að hreinsa frá línunni því bæði getur skapast hætta og skemmdir orðið ef trjágróður snertir eða fellur á háspennulínur. Þegar línan var lögð upp úr miðri síðustu öld voru einungis leifar birkiskógar í landi Vagla á Þelamörk. Síðan hefur verið ræktaður þar upp skógur með lerki, stafafuru, rauðgreni og fleiri tegundum. Þetta er mjög gróskumikill skógur og mikið um myndarleg tré sem hafa vaxið mjög vel síðustu áratugi. Undanfarin misseri hefur mikið verið grisjað á Vöglum, en mikið er þó enn eftir. Þegar háspennulínan verður tekin niður á línustæðið eftir að nýtast mjög vel til vegagerðar og verður góð leið til að fara um skóginn þegar vinna þarf í honum. /MÞÞ Fréttir Grisjað undan háspennulínum: Upplagður skógarvegur þegar línan hverfur Skógræktarmenn ræða við RARIK-menn að verki loknu. Myndir / Pétur Halldórsson. Með stórvirkri vél er ekki lengi gert að hreinsa frá háspennulínunni. Línustæðið verður fyrirtaks vegstæði fyrir skógræktarmenn að komast um skóginn þegar línan verður tekin niður. Tengi- og héraðsvegir í Húnavatnshreppi hafa ekki fengið eðlilegt viðhald undanfarin ár. Því er svo komið að þeir eru víða mjög slæmir, hættulegir og nánast ófærir til aksturs á venjulegum fólksbílum svo misserum skiptir. Þá er vetrarþjónusta, snjómokstur og hálkuvarnir í lágmarki. Þetta er bagalegt því íbúar í sveitarfélaginu þurfa að verða sér úti um nauðsynjar, sækja vinnu og nám um langan veg og eins er börnum daglega ekið til og frá skóla. Þetta kemur fram í greinargerð með ályktun sem samþykkt var á fjölmennum íbúafundi í Húnavatnshreppi. Skorað var á stjórnvöld að stórauka framlag til viðhalds vega og flýta því sem kostur er að á þá verði lagt bundið slitlag. Bættar samgöngur séu gífurlegt hagsmunamál fyrir íbúa sveitarfélagsins. Afkoma í landbúnaði sé góð Fram kemur í ályktun fundarins að hallað hafi undan fæti þegar kemur að atvinnu- og búsetuþróun undanfarin ár. Viðvarandi fólksfækkun hafi verið í sveitarfélaginu undanfarin ár og samdráttur í atvinnulífi, en landbúnaður er grunnatvinnuvegur í Húnavatnshreppi. Því sé lykilatriði að afkoma þeirra sem stunda landbúnað sé góð svo hægt sé að byggja upp í dreifbýli og að nýliðun eigi sér stað. Stjórnvaldsaðgerðir hafa margvísleg áhrif á afkomu þeirra sem stunda landbúnað og möguleika þeirra til framþróunar. „Átaks er þörf til að auðvelda nýliðun í bændastétt,“ segir í ályktuninni og að nú sé vart mögulegt fyrir ungt fólk að hefja búskap nema það geti gengið inn í bú foreldra sinna. „Aðgangur að lánsfjármagni hefur verið takmarkað undanfarin ár,“ segir enn fremur og að vextir séu háir og að þessi takmarkaði aðgangur að fjármagni hamli uppbyggingu og endurnýjun. Til að auka tekjuöflun er nefnt að auka mætti heimavinnslu á afurðum, nýtingu á auðlindum og fjarvinnu frá heimili. Aðstoð, ráðleggingar og fjármögnun eru lykilatriði til að þeir möguleikar sem víða eru fyrir hendi séu nýttir. Ferðaþjónusta er vaxtarbroddur í Húnavatnshreppi líkt og víða annars staðar. Mikilvægir þættir til eflingar í ferðaþjónustu eru samgöngur, fjarskiptamál og rafmagnskostnaður. Í hreppnum er víða húsnæði sem lítið sem ekkert er nýtt, en þeim mætti finna hlutverk og geta styrkir til nýsköpunar og aðgangur að sérfræðiþjónustu skipt sköpum. Fram kemur einnig að fyrirhugað sé að stækka Blönduvirkjun um 30mW og að tímabært sé að sú auðlind skili sér til héraðsins í formi atvinnuuppbyggingar. Engin atvinnuuppbygging hafi orðið í Austur-Húnavatnssýslu í tengslum við Blönduvirkjun, sem framleitt hefur rafmagn frá árinu 1990. Fjarskiptamál víða í ólestri Fjarskiptamál eru einnig til umræðu í álykun fundarins og segir að mikilvægt sé að íbúar Húnavatnshrepps standi jafnfætis öðrum íbúum landsins hvað fjarskiptaþjónustu varðar, enda sé það í fullu samræmi við markmið fjarskiptaáætlunar. Innan Húnavatnshrepps vanti mikið upp á að fjarskipti séu í lagi, þ.e. net- og farsímatengingar og móttökuskilyrði fyrir útvarp og sjónvarp eru víða óviðunandi. „Víða um sveitarfélagið er ekkert farsímasamband og á þó nokkrum heimilum eru mótttökuskilyrði fyrir sjónvarps- og útvarpssendingar afar ófullnægjandi, sama má segja um netsamband og tengingar við það,“ segir í ályktuninni. Mikilvægt sé að íbúar dreifbýlisins standi jafnfætis íbúum þéttbýlis þegar kemur að netþjónustu, enda sé þjónusta af því tagi stór þáttur í lífi fólks. /MÞÞ Lélegt viðhald á vegum í Húnavatnshreppi: Sumir ófærir til aksturs venjulegum fólksbílum – skorað á stjórnvöld að stórauka fjárframlag H 2 hö nn un e hf . Dalvegur 6-8 • 201 Kópavogur • Sími 535 3500 Draupnisgata 6 • 603 Akureyri • Sími 535 3526 www.kraftvelar.is • kraftvelar@kraftvelar.is Eigum á lager drifsköft og íhluti fyrir vinnuvélar AGRICULTURE

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.