Bændablaðið - 28.05.2015, Page 15
15Bændablaðið | Fimmtudagur 28. maí 2015
Styrkjum til atvinnumála
kvenna var úthlutað nýverið
við athöfn í Bláa lóninu, en alls
hlutu 33 verkefni styrk og nam
heildarupphæðin 35 milljónum
króna. Fjöldi umsókna barst eða
239 í allt og komu þær hvaðanæva
að af landinu.
Styrkjum til atvinnumála
kvenna hefur verið úthlutað frá
árinu 1991, en það var þáverandi
félagsmálaráðherra, Jóhanna
Sigurðardóttir, sem hafði frumkvæði
að styrkveitingunum. Þeir eru
ætlaðir konum sem vinna að góðum
viðskiptahugmyndum og verkefnum.
Skilyrði styrkveitinga eru þau að
verkefnin séu í eigu kvenna og feli
í sér nýnæmi eða nýsköpun. Ekki er
nauðsynlegt að vera með starfandi
fyrirtæki til að sækja um styrk og
því er heimilt að sækja um vegna
verkefna á byrjunarstigi en einnig
geta þær konur sótt um styrk sem
eru að þróa nýjungar í starfandi
fyrirtækjum.
Stuðlað að fjölbreytni í atvinnulífi
Unnt er að sækja um styrki til
gerðar viðskiptaáætlunar, vegna
markaðssetningar, vöruþróunar,
hönnunar og vegna launakostnaðar en
ekki eru veittir styrkir til framkvæmda
eða vegna stofnkostnaðar.
Með styrkjum sem þessum er
tvímælalaust stuðlað að aukinni
fjölbreytni í atvinnulífinu. Fjölmörg
ný fyrirtæki hafa litið dagsins ljós
sem skapa störf, samfélaginu til
hagsbóta. Einnig er styrkveiting
sem þessi mikil hvatning fyrir þær
sem er ekki síður mikilvæg þegar á
hólminn er komið segir á vefsíðu um
atvinnumál kvenna.
Hæstu styrki hlutu eftirfarandi
verkefni:
Elísabet Axelsdóttir, Borgarfirði,
kr. 3.000.000 vegna verkefnisins
„Þróun og smíði á gagnagrunni vegna
efnamælinga“. Verkefnið snýst um
að setja upp rannsóknarstofu til
efna- og örverugreininga á fóðri og
jarðvegi og selja niðurstöðurnar til
aðila í landbúnaði og öðrum sem
þörf hafa fyrir hana, en nú er enginn
aðili í landinu sem sinnir þessari
þjónustu.
Eyrún Huld Ásvaldsdóttir,
Akureyri, kr. 2.350.000 vegna
verkefnisins „Krummusæti,
auka sæti til að festa á hnakk“.
Krummusæti er auka sæti sem
festist á hnakk framan við knapa
og er ætlað 1–7 ára börnum. Með
sætinu er öryggi barna á hestbaki
betur tryggt og knapinn með lausar
hendur til að stjórna hestinum.
Hildur Þóra Magnúsdóttir,
Skagafirði, kr. 2.300.000 vegna
verkefnisins „Pure Thyroid-
þurrkun og nýting skjaldkirtla úr
sláturdýrum“. Inntaka á þurrkuðum
skjaldkirtli úr hreinum dýraafurðum
virkar vel á vanvirkan skjaldkirtil
en hráefnið er afgangsafurð sem
fellur til við slátrun. Varan sem
um ræðir eru hylki sem innihalda
þurrkaða skjaldkirtla úr íslenskum
sláturdýrum.
Ankra, Reykjavík, kr. 2.200.000
vegna verkefnisins „Þróun á
íslenskum collagen hylkjum við
liðverkjum“. Ankra ehf mun
þróa og markaðssetja náttúruleg
fæðubótarefni úr íslensku
fiskicollageni. Collagen er eitt aðal
uppbyggingarprótein líkamans.
Rannsóknir hafa sýnt fram á að með
inntöku á Collagen próteini er hægt
að minnka verki í liðum og draga
verulega úr hrukkumyndun. /MÞÞ
Girðingarefni og
rúlluplast í úrvali
Allt í girðingarvinnuna
Rúlluplast, stæðuplast , net og garn
Þræðir og borðar Jarðleiðslur
Þráðspólur
Rafgirðingarspennar
Staurar, net, gaddavír og þanvír
Megaplast Power
Yfirplast
10m x 50m
12m x 50m
14m x 50m
16m x 50m
Undirplast
12m x 50m
14m x 50m
16m x 50m
Megastretch fimm laga hágæðaplast
Grænt 75 cm kr. 10.850 án vsk.
Hvítt 75 cm kr. 10.850 án vsk.
Svart 75 cm kr. 10.650 án vsk.
Unterland Extra plus gæðaplast
Grænt 75 cm kr. 10.650 án vsk.
Hvítt 50 cm kr. 8.650 án vsk.
Total Cover rúllunet 3.600 metrar
Kr. 22.900 án vsk.
Visscher Holland bindigarn
Bindigarn fyrir rúllur VITO 250
Stórbaggagarn VITO 130
Sala og ráðgjöf
S. 540 1100
Lynghálsi, Reykjavík
Lónsbakka, Akureyri
Efstubraut, Blönduósi
Borgarbraut, Borgarnesi
www.lifland.is
lifland@lifland.is
Leitið tilboða hjá sölumönnum okkar
Frír flutningur ef pantað er fyrir 1. júní.
Bætt gerjun og betri
verkun með Advance
íblöndunarefni fyrir
heyfenginn
Fullþurrkað gæðarúlluhey til sölu.
Heimakstur á höfuðborgarsvæðinu.
Hægt að fá mikið magn á góðu verði.
Pantanir í síma 8924811
Styrkjum til atvinnumála kvenna úthlutað:
Alls hlutu 33 verkefni styrk að
upphæð 35 milljónir króna
Bændablaðið
Kemur næst út
11. júní