Bændablaðið - 28.05.2015, Síða 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 28. maí 2015
Margar áhugasamar fréttir af
undrum náttúrunnar komast
sjaldan eða aldrei í fjölmiðla.
Daglegt þras um fjármál,
stjórnmál og önnur óáhugaverð
mál njóta þar meiri vinsælda.
Ein af þeim spurningum sem
undirritaður hefur varpað fram á
ritstjórnarfundi Bændablaðsins
er af hverju það rigndi stundum
froskum en aldrei halakörtum?
Heimurinn er fullur af undrum,
fólk lyftist upp af jörðinni og
flýgur, undarleg ljós sjást á
himnum og fregnir um fljúgandi
furðuhluti eru nánast daglegar úti í
heimi. Allt án haldbærra skýringa.
Árið 1874 fæddist drengur
sem fékk nafnið Charles Hoy
Fort. Hann átti síðar eftir að verða
ókrýndur konungur rómantískrar
náttúrufræði og safna sögum um
furðufyrirbæri náttúrunnar og gefa
út á bók. Áhugi Fort á furðusögum
er af svipuðum meiði og
þjóðsagnasöfnun Jóns Árnasonar
og Sigfúsar Sigfússonar.
Fort hafði í sjálfu sér engan
áhuga á því sem í dag er kallað
yfirnáttúruleg fyrirbæri eða
dulsálarfræði. Hann taldi að
öll fyrirbæri væru náttúruleg
og að þau ætti að skýra. Hann
var óvæginn í gagnrýni sinni á
„svokallaða vísindamenn“ eins
og Fort kallaði marga menntaða
samtímamenn sína. Fort taldi
þá sniðganga allt sem þeir gætu
ekki skýrt út frá eigin reynslu
og ekki hafa hugmyndaflug
til að líta á heiminn nema frá
einu sjónarhorni, múlbundna af
þröngsýni og fordómum.
Sjálfur sagðist Fort trúa öllu og
engu, allt væri breytingum háð og
ekkert væri eins og það sýndist.
Fort safnaði ótrúlegum
fjölda furðusagna enda sat hann
á bókasöfnum í New York og
London í tuttugu og sjö ár og
leitaði fanga. Hann hefur til
dæmis eftir dagblaðinu New
York World 25. mars 1883 að
dóttir Jesse Miller í Greenville
hafi nokkrum sinnum lyfst upp
af stofugólfinu heima hjá sér og
„flogið“ út í garð. Um svipað leyti
greinir tímaritið Cosmos frá því
að mikið af fiskum hafi fallið af
himni í Norfork í Virginíu-ríki.
Nature segir frá því að árið 1880
hafi hópur fólks í Þýskalandi séð
upplýstar verur svífa á himninum.
Fort trúði því staðfastlega
að verur frá öðrum heimum
heimsæktu jörðina annað kastið
og hann hefur það eftir Scientific
American að í júlí 1882 hafi
fjöldi manna í Líbanon séð
einkennilegan hlut á himni.
Þegar hluturinn hvarf komu tvö
þríhyrningslaga loftför í staðinn
og flugu lágt yfir jörðinni.
Ein furðulegasta sagan í
safni hans segir frá hundi sem
talaði mannamál en leystist
síðan upp í grænan reyk. Fort
gerir enga athugasemd við að
hundurinn skuli tala en hann
setur spurningarmerki við að
hann hafi leyst upp í grænum
reyk.
Gagnrýnendur Forts segja að
hann hafi verið bjánalega trúgjarn
og sjaldnast dregið sannleiksgildi
sagnanna sem hann safnaði í efa
og lagt sig fram um að koma
slæmu orði á vísindi og notið þess
að niðurlægja vísindamenn sem
hann kallaði hina nýju prestastétt.
Í dag trúa margir Íslendingar
á álfa, drauga og skrímsli svo
eitthvað sé nefnt. Eru þetta
yfirnáttúruleg fyrirbæri eða
einfaldlega náttúrundur eins og
meyfæðing Maríu og ýmissa
kvenkynshákarla sem fæða
afkvæmi án frjóvgunar karldýra.
. /VH
Hundur leysist upp
í grænum reyk
Félagar í Hestamannafélaginu Létti
endurbyggja rétt á Kaupangsbökkum
STEKKUR
Vaskir félagar úr Hestamanna-
félaginu Létti á Akureyri hafa frá
því í fyrrahaust unnið ötullega
að því að endurbyggja rétt á jörð
sinni Kaupangsbökkum.
Réttin bætir mjög aðstöðu fyrir
bæði hross og menn sem þarna
fara um, en Kaupangsbakkar er sá
áfangastaður á norðanverðu landinu
sem hvað flestir hestamenn staldra
við á. Þaðan liggur leið fram í jörð
meðfram bökkum Eyjafjarðarár
sem og einnig leið austur yfir
Bíldsárskarð og yfir Vaðlaheiði.
Sigfús Helgason, félagi í
Létti, segir að hugmyndin um að
endurbæta réttina hafi kviknað
fyrir alvöru síðastliðið haust þegar
hestamenn komu úr ferðalagi úr
Þingeyjarsýslu og enduðu líkt og
áður á Kaupangsbökkum.
„Það má segja að frá því
hugmyndin fór á flug á haustdögum
2014 hafi mikið verið reiknað,
teiknað, mokað, smíðað, borað og
skrúfað,“ segir Sigfús. Allmargir
Léttisfélagar hafa lagt hönd á plóg
og unnið að kappi á liðnum vetri.
Næsta skref að bæta aðstöðu
innandyra
„Það var löngu tímabært að hefja
endurbætur á þeim mannvirkjum
sem þarna standa,“ segir Sigfús. Nú í
vor og á komandi sumri er fyrirhugað
að setja það á veggi sem enn standa
eftir af þeim gömlu húsum sem enn
standa og koma þar upp aðstöðu
innandyra, svo hestamenn geti yljað
sér á heitum kaffisopa.
„Með þessum framkvæmdum
erum við núlifandi hestamenn í Létti
að halda á lofti og heiðra minningu
þeirra félaga okkar sem hófu verkið,
þakka um leið fyrir okkur og skila
jörðinni sem okkur þykir svo
vænt um til ungu kynslóðarinnar í
félaginu.“
Þrískipt rétt um 550 fm að stærð
Sigfús segir að þær framkvæmdir
sem staðið hafa yfir og haldið verður
áfram við muni koma þeim sem leið
eiga um bakka Eyjafjarðarár vel.
Réttin er þrískipt, tveir aðskildir
dilkar sem hvor um sig er 150
fm að stærð og um 250 fm hólf
vestan hennar, eða samtals um 550
fm. Notaðir eru rafmagnsstaurar
og 12 mm vír þræddur í gegn, en
sams konar efni var notað í rétt
sem stendur austan við Fosshól.
Hestamannafélagið Léttir hafði
forgöngu um þá myndarlegu
framkvæmd.
Mikil framkvæmdagleði hjá
Léttismönnum
Á næstu dögum verður enn ein
réttin, svipuð þeirri og stendur á
Kaupangsbökkum, byggð upp í
Hlíðarholtshverfi, hesthúsahverfi
á Akureyri.
„Það er hverju orði sannara að
það er mikill framkvæmdahugur
og kraftur í Léttisfélögum og þær
framkvæmdir sem við höfum
standið fyrir bæta alla aðstöðu fyrir
hestamenn hér um slóðir til mikilla
muna,“ segir Sigfús Helgason.
/MÞÞ
Myndir / Sigfús Helgason.
-