Bændablaðið - 28.05.2015, Síða 19

Bændablaðið - 28.05.2015, Síða 19
19Bændablaðið | Fimmtudagur 28. maí 2015 VELKOMIN Í SVEITINA Ferðaþjónusta bænda býður upp á fjölbreytta gistingu hjá um 180 ferðaþjónustuaðilum um allt land – sveitahótel, gistihús, sumarhús, heimagisting, svefnpokapláss og tjaldsvæði. Mikið úrval afþreyingar og áhersla lögð á mat heima úr héraði. Nánari upplýsingar á www.sveit.is Nældu þér í eintak af bæklingnum Upp í sveit hjá N1, upplýsingamiðstöðvum um land allt eða á skrifstofunni okkar í Síðumúla 2. Nýr bæklingur! K Ä R C H E R S Ö L U M E N N HD 6/16-4 M HD 6/16-4 MX HD 10/25-4 S Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 Næsta blað kemur út 11. júní Til Sölu Hálfþekjandi fúgavörn í 11,5 líters fötum, liturinn er palesander Verð 8,015 kr. fatan. Frekari upplýsingar gefur Vilhjálmur í síma 862 9994 Jón Guðmundsson leiðbeindi afar áhugasömum hóp á námskeiði um ágræðslu. Mynd / Kristinn H. Þorsteinsson. Garðyrkjufélag Íslands: Bjuggu til sín eigin eplatré Ávaxtaklúbbur Garðyrkjufélags Íslands hélt um síðastliðna helgi ágræðslunámskeið sem kennir handtökin við að búa til sín eigin eplatré. Hver þátttakandi fékk verklega kennslu sem endaði með því að þau bjuggu til þrjú ný eplatré hvert sem þau taka með sér heim í garðinn sinn. Jón „Epli“ Guðmundsson frá Akranesi leiðbeindi afar áhugasömum hóp sem hafði mikið gagn og gaman af námskeiðinu. Áhugi fyrir ræktun ávaxtatrjáa og annarra aldinplantna hefur vaxið mikið á undanförnum árum og hefur þekking og aukinn árangur ýtt þar undir. Garðyrkjufélag Íslands hefur verið í fremstu röð að afla og miðla þekkingu um ræktun aldinplantna hér á landi. Dýrmæt þekking og reynsla er til staðar sem eflt hefur og þróað nýja hugsun í þessari ræktun. Mörg námskeið hafa verið haldin víða um land þar sem Carl Jóhann Gränz og Kristinn H. Þorsteinsson leiðbeina um ræktun og umhirðu aldintrjáa. /VH

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.