Bændablaðið - 28.05.2015, Qupperneq 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 28. maí 2015
Magnús Ásgeir Elíasson, bóndi á Stóru- Ásgeirsá í Víðidal:
Gefur út hljómdisk mitt í sauðburðinum
– setti ásamt konu og börnum á fót húsdýragarð í fyrra sem er að opna aftur þessa dagana
Magnús Ásgeir Elíasson, bóndi
og söngvari á Stóru-Ásgeirsá í
Víðidal í Vestur-Húnavatnssýslu,
hefur sent frá sér hljómdiskinn
„Legg af stað“.
Magnús segir að það hafi tekið
langan tíma að koma þessum
hljómdiski á koppinn.
„Guðni Ágústsson er með mér í
einu lagi og Mezzoforte-strákarnir
eru að spila með mér á diskinum
og Grétar Örvarsson er líka með.
Hann hefur skemmtilegan talanda
sem gaman er að nýta.
Ég hef haft gaman af músík frá
barnsaldri og var í tónlistarskólanum
í grunnskóla en missti svo aðeins
áhugann á unglingsárunum þegar
hvolpavitið kom. Þá var maður
svolítið að hlaupa á eftir hinu kyninu
en það rjátlaðist fljótt af mér.
Samdi fyrsta lagið 16 ára
Fyrsta lagið samdi ég 16 ára gamall
og heitir það Kremkex. Svo var alltaf
draumur að sauma saman nokkur lög
og taka upp og byrjaði þetta á því að
Karl B. Örvarsson var í kaffi hjá mér
í spjalli og var gítarinn við hlið mér.
Ég spilaði nokkur frumsamin lög
fyrir hann sem honum fannst góð og
hann kom mér í samband við bróður
sinn, Grétar Örvarsson, og tókum
við þau upp í demo-upptökum.
Fannst Grétari þetta vera góð lög
og var því skutlast í Studio Paradís í
Reykjavík. Var síðan tekið upp með
ekki ómerkara bandi en Mezzoforte.
Annast þeir hljóðfæraleik á diskinum
ásamt Grétari Örvars sem sá um
útsetningar og leik á hljómborð.
Þarna er Friðrik Karlsson á gítar,
Jóhann Ásmundsson á bassa,
Sigurgeir Sigmundsson á stálgítar
og Sigfús Óttarsson á trommur.
Um raddir sáu Kristinn Rúnar
Víglundsson, Karl B. Örvarsson
og Grétar Örvarsson. Þá hjálpaði
Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir mér
með textana.
Diskurinn heitir „Legg af stað...“
og Hófasprettur heitir eitt lagið og er
það um íslenska hestinn og fallega
landið okkar. Þetta er stuðlag og mér
fannst að Guðni Ágústsson yrði að
vera með í því lagi og mæla um
íslenska hestinn. Var haft samband
við Guðna og hann þurfti ekki að
hugsa sig mikið um, var alveg til
í þetta.“
– Hyggur þú á frekari útgáfu?
„Já, ég er að hugsa um að setja
saman nýjan disk í haust. Ég á þegar
15 ný lög til að moða úr.“
Dóttirin í gæðamatinu
– Er ekkert annað að gera í sveitinni?
„Það var ekkert annað að gera
hér í veðurleiðindunum í vetur en að
horfa hér yfir Víðidalsána og semja
lög. Þegar maður var orðinn leiður á
að ríða í hringi inni í reiðskemmunni
í þrjá eða fjóra daga, þá varð maður
að finna eitthvað annað. Í febrúar tók
ég því þá ákvörðun að semja eitt lag
á dag. Ég settist með litlu stelpuna
mína, Sigríði Emmu, hér inni í stofu
og hugsaði með mér, að ef hún færi
að dansa við tónana frá mér, þá tæki
ég það upp á símann til að nota síðar.
Fjölskyldan á túninu við Stóru-Ásgeirsá. Talið frá vinstri; Arnaldur Finnbogi, Shirly Ann (frænka), Erla Rán, Sigríður Emma, húsfreyjan Rannveig Aðalbjörg Hjartardóttir og standandi er Magnús
Ásgeir Elíasson með merina Eldingu frá Stóru-Ásgeirsá. Myndir / HKr.
Magnús Ásgeir Elíasson, tónlistarmaður og bóndi, með diskinn góða ásamt Guðna Ágústssyni, fyrrverandi land-
búnaðarráðherra, sem kveður um íslenska hestinn í einu laginu og hampar hér lambakjöti frá Stóru- Ásgeirsá.