Bændablaðið - 28.05.2015, Side 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 28. maí 2015
Hrútar fjallar um tvo
sauðfjárbændur á sjötugsaldri,
bræðurna Gumma og Kidda,
sem búa hlið við hlið í afskekktum
dal á Norðurlandi. Fjárstofn
þeirra bræðra þykir einn sá
besti á landinu og eru þeir
margverðlaunaðir fyrir hrútana
sína.
Leikstjóri myndarinnar er
Grímur Hákonarson og með
hlutverk bræðranna fara Sigurjón
Sigurjónsson og Theodór Júlíusson.
Meðal annarra leikenda eru,
Jörundur Ragnarsson, Gunnar
Jónsson, Charlotte Bøving, Sveinn
Ólafur Gunnarsson, Jon Benonysson
og Þorleifur Einarsson.
Þrátt fyrir að deila sama landi
og lífsviðurværi þá hafa bræðurnir
ekki talast við í fjóra áratugi. Þegar
riðuveiki kemur upp í dalnum grípur
um sig mikil örvænting á meðal
bændanna þar. Yfirvöld ákveða að
skera niður allt sauðfé til þess að
sporna við útbreiðslu sjúkdómsins.
Bræðurnir standa frammi fyrir því
að missa það sem er þeim kærast
og grípa til sinna ráða.
Myndin er bráðskemmtileg að
öllu leyti, vel gerð og leikurinn
frábær. Meira að segja sauðféð sem
fer með stór hlutverk í myndinni
leikur óaðfinnanlega.
Myndin vann til verðlauna í
Un Certain Regard-flokknum á
kvikmyndahátíðinni í Cannes fyrir
stuttu en flokkurinn er ætlaður
leikstjórum sem eru að senda frá
sér sína fyrstu eða aðra mynd. /VH
Hrútar í bíó:
Bráðskemmtileg, vel gerð
og leikurinn frábær
Leikurum og aðstandendum myndarinnar Hrútar var klappað lof í lófa á forsýningu að Laugum.
Myndir / Aðalsteinn Jóhannes Halldórsson.
Bændur og búalið í Mývatnssveit fjölmenntu á forsýninguna að Laugum.
Endurbætur á ferðamannastöðum:
Úthlutar 850 milljónum til verkefna
Ákveðið hefur verið að úthluta 850
milljónum króna til endurbóta á
ferðamannastöðum á landinu.
Ráðist verður í 104 verkefni á
51 stað, auk þess sem viðbótarfé
verður varið til aukinnar
landvörslu um allt land.
Mest verður framkvæmt í
Skaftafelli og á Þingvöllum,
við Geysi, í Dimmuborgum,
á miðhálendinu, við Gullfoss,
Dyrhólaey, Dynjanda, Stöng í
Þjórsárdal og Dettifoss. Verkefnin
eru af ýmsum toga en megináhersla
er lögð á framkvæmdir vegna
göngustíga, útsýnispalla, bílastæða
og salernisaðstöðu.
Fyrirliggjandi framkvæmda-
áætlun fyrir þetta ár var unnin
í samstarfi forsætisráðherra,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra og
umhverfis- og auðlindaráðherra.
Kallað var eftir tillögum þeirra
stofnana sem hafa umsjón með
umræddum svæðum og í kjölfarið
var verkefnum forgangsraðað í
samræmi við faglegt mat á því
hver þörfin væri. Fjármagnið
mun renna til Framkvæmdasjóðs
ferðamannastaða sem mun annast
umsýslu og eftirlit með verkefnum
sumarsins.
Fjármögnun verkefnanna er háð
samþykki Alþingis, en óskað verður
eftir fjárheimildum í tillögum til
fjáraukalaga 2015. /VH
Dettifoss. Mynd / HKr.