Bændablaðið - 28.05.2015, Qupperneq 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 28. maí 2015
Helstu nytjaplöntur heimsins
Dúrra – fæða framtíðarinnar
Af korntegundum er dúrra í
fimmta sæti yfir mest nytjuðu
plöntu í heimi. Dúrra er hluti af
fæðu milljóna manna í 30 löndum
á hverjum degi. Miklar vonir
eru bundnar við aukna ræktun
plöntunnar og því haldið fram að
hún verði meginfæða stórs hluta
mannkyns áður en langt um líður.
Áætluð heimsframleiðsla á dúrru,
ræktunarárið 2014 til 2015, eru rétt
rúm 64 milljón tonn sem er 4 milljón
tonnum meira en 2013 til 2014 en
tæpum 14 milljón tonnum minna en
árið 1985 þegar heimsframleiðslan
náði hámarki um 88 milljón tonn.
Mest er ársframleiðslan í Banda-
ríkjunum, 11 milljón tonn, 7,3 milljón
tonn í Mexíkó, í Afríkuríkjunum
Nígeríu og Súdan um 6,3 milljón
tonn í hvoru landi. Því næst koma
Indland með 5 milljón tonn og
Argentína sem framleiðir um 4
milljón tonn af dúrru á ári.
Bandaríkin eru langstærsti
útflytjandi dúrru í heiminum með
um 70% markaðshlutdeild. Í öðru
sæti og ekki einu sinni hálfdrættingur
er Argentína með rúm 24%.
Innflutningur Kínverja á dúrru hefur
margfaldast á síðustu fimm árum og
er Kína það land í heiminum sem
flytur inn mest af dúrru, 8,5 milljón
tonn. Áætluð framleiðsla í Kína er
um 2,7 milljón tonn. Japan er í öðru
sæti hvað innflutning varðar og flytur
inn um eina milljón tonn á ári.
Ræktun á dúrru hefur tvöfaldast
á síðustu fimmtíu árum. Meðal
uppskera í heiminum af dúrru
á hektara er 1,4 tonn, 4,5 tonn í
Bandaríkjunum og mest hefur hún
verið í Jórdaníu, 12,7 tonn.
Korn 21. aldarinnar
Dúrra er hluti af daglegri fæðu
milljóna manna í 30 löndum og
miklar vonir eru bundnar við
ræktun plöntunnar í framtíðinni
og hefur hún verið kölluð korn 21.
aldarinnar. Rannsóknir á dúrru og
skipulagðar kynbætur hafa verið
litlar til þessa en benda samt til að
sem ræktunarplanta geti hún gefið
mun meiri uppskeru en í dag. Yrki
og staðbrigði skipta hundruðum og
í þeim leynist urmull erfðaefna sem
gera kynbætur vænlegan kost, ekki
síst til að auka ræktun plöntunnar
á svæðum þar sem matarskortur er
viðvarandi.
Hraðvaxta grastegund
Dúrra, eða súdangras eins og
plantan kallast á íslensku, er
hraðvaxta grastegund og þar með
einkímblöðungur. Einær, þrátt fyrir
að sum yrki séu fjölær. Getur vaxið
í fjögurra metra hæð en oftast eru
lágvaxnari yrki valin til ræktunar.
Yfirleitt einstofna. Stofninn er
þurr í þurrkatíð en í raka verður
hann safaríkur og er safinn sætur
á bragðið og oft skorinn og soginn
vegna sætunnar. Sé stofninn skorinn
við rót spretta einn eða fleiri stofnar
úr rótarhálsinum.
Þar sem jarðvegur leyfir teygir
trefjarót plöntunnar vel á þriðja metra
niður í jarðveginn í leit að vatni og
skýrir það þol hennar við þurrki.
Mest er rótarkerfið í efsta metra
jarðvegsins þar sem það breiðir vel
úr sér. Blöðin löng, sverðlaga og
með vaxhúð sem hindrar útgufun,
7 til 24 eru á hverri plöntu eftir því
um hvaða yrki er að ræða. Ung blöð
eru upprétt en fara að hanga eftir því
sem þau eldast, í þurrkatíð verpast
blöðin saman eftir endilöngu og
draga þannig út vökvatapi. Blómin
tvíkynja og mynda ax, frjóvgast með
vind og sjálffrjókun algeng. Fræin
með hýði og þrír til fjórir millimetrar
að þvermáli. Hýðið mismunandi á
litinn, ljósgul yfir í dökkbrún, eftir
yrkjum en kjarni fræjanna er hvítur.
Dökk fræ eru bitrari á bragðið en
ljós og stafar það af meira magni af
tanníni í dökkum fræjum en ljósum.
Dúrru er gróflega skipt í beiskt
og sætt korn eftir magni tanníns í
fræjunum og er það síðarnefnda
algengara í ræktun.
Nafn plöntunnar á latínu er
Sorghum bicolor, kjúklingakorn,
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Mest er framleitt af dúrru í Bandaríkjunum, 11 milljón tonn, 7,3 milljón tonn í Mexíkó, í Afríkuríkjunum Nígeríu og Súdan um 6,3 milljón tonn í hvoru landi.
grastegund.