Bændablaðið - 28.05.2015, Qupperneq 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 28. maí 2015
Kynntu þér spennandi náttúrufræðitengt nám
í háskóla lífs og lands
HÁSKÓLANÁM BS
Umsóknafrestur er til 5. júní
-
HÁSKÓLANÁM MS
Veggspjald af íslensku
landnámshænunni
Litaveggspjöld af íslensku búfé hafa notið
mikilla vinsælda í gegnum árin. Þau eru
fáanleg hjá BÍ og í bókaverslunum víða um
land. Nú er landnámshænan komin í hóp með
geitum, hrossum, sauðfé, kúm og íslenska
fjárhundinum.
Tvær stærðir eru í boði, A3 og stór
veggspjöld í stærðinni 61 x 87 cm.
Minni gerðin kostar 900 kr.
og sú stærri 1.500 kr.
www.bondi.is
Tekið er við pöntunum
í netfangið jl@bondi.is
eða í síma 563-0300.
Bændablaðið
á bbl.is og líka á Facebook
Bækur
Út er komin hjá Vestfirska
forlaginu 4. bókin í bókaflokknum
Hornstrandir og Jökulfirðir. Í
Hornstrandabókum
forlagsins er svo til
eingöngu gamalt vín
á nýjum belgjum.
Yfirleitt eru þetta
frásagnir sem flestir
eru búnir að gleyma,
en geta nú gengið
að á einum stað.
Ýmislegt í þeim
kemur á óvart, einkum
þeim sem yngri
eru. Fjölbreyttar,
áhugaverðar og
spennuþrungnar
frásagnir sem jafnast
á sinn hátt fyllilega
við glæpasögur
nútímans. Bókin er 132 bls. og skal
hér stiklað á stóru um efni hennar.
Guðrún Guðvarðardóttir skrifar
um hvaða stað henni þótti vænst um.
Þá er viðtal við hana úr Þjóðviljanum
sem Sigurdór Sigurdórsson skrifaði:
Hef sett mér það mark að ganga alla
Vestfirði. Kjartan Ólafsson minnist
Guðrúnar, sem
hann kallaði
Vestfjarðakonuna.
Fjallað er
um byggingu
Hornbjargsvita,
en hann var reistur
1930 við erfið
skilyrði. Skrá er
yfir alla vitaverði
sem þar störfuðu.
B i r t e r
hugljúf frásögn
eftir Ragnheiði
Jónsdóttur í Kjós í
Jökulfjörðum sem
hún skrifaði um
hann Bleik sinn.
Viðtal við Jóhann
Pétursson vitavörð er eftir Vilborgu
Harðardóttur:
Hef aldrei þekkt að vera einmana
á Horni. Svo eru frásagnir Gunnars
Friðrikssonar og Vilmundar
Jónssonar af Guðmundi Pálmasyni
„vitaverði við erfiðasta vita landsins“.
Birtur er 4. og síðasti hluti
frásagnar Gísla Konráðssonar af
þeim félögum Halli á Horni, Snorra
presti og Hallvarði Hallssyni. Þá er
Ferðasaga frá Vestfjörðum 1886–
1887: Hornstrandir seinni hluti eftir
Þorvald Thoroddsen, sem mun vera
ein merkilegasta frásögn sem skrifuð
hefur verið um Hornstrandir. Örlygur
Hálfdanarson bókaútgefandi minnist
Þórleifs Bjarnasonar, námsstjóra og
rithöfundar.
Kjartan T. Ólafsson, sem er einn
allra elsti núlifandi Hornstrendingur
og ern vel, skrifar viðamikla frásögn
sem hann nefnir Æskuminningar og
atvinnusögu úr Aðalvík.
Loks skal nefna frásögn
Alexanders Einarssonar sem hann
skrifar um æviferil föður síns,
Einars Bæringssonar, hreppstjóra
á Dynjanda í Grunnavíkurhreppi í
Jökulfjörðum.
Ný bók að vestan:
Hornstrandir og Jökulfirðir
– Ýmsar frásagnir af horfnu mannlífi – 4. bók
Bókaútgáfan Hólar hefur gefið út
bókina Kveikjur eftir séra Bolla
Pétur Bollason, fyrrum prest í
Seljakirkju og nú sóknarprest í
Laufási.
Innihald bókarinnar eru 40
smásögur og í þeim er tæpt á
þjóðfélagsmálum á borð við fátækt,
einelti, ofbeldi í ýmsum myndum,
einsemd og siðferðisbrestum,
siðferði legum álita-
málum, tilvistar- og
tilgangsspurningum,
sorginni, gleðinni,
k æ r l e i k a n u m ,
samskiptum fólks og
endalokunum.
Það er öllum hollt
að lesa þessa bók og
velta fyrir sér efni hennar. Hún hentar
jafnt unglingum
sem hinum eldri
og sögurnar
mega vel nýtast
sem ísbrjótar
fyrir samtal og
sameiginlegar
vangaveltur.
Ljósmyndir prýða bókina og
eru þær eftir Völund Jónsson.
Kveikjur
– eftir séra Bolla Pétur Bollason