Bændablaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 44

Bændablaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2015 „Bændur eru alls konar. Ungir, gamlir, konur, karlar. Þeir nýta landið ekki eingöngu til búskapar, heldur hefur nýsköpun í landbún- aði sótt fram síðustu ár, þar á meðal hefur stétt ferðaþjónustubænda stækkað,“ sagði Jóhanna María Sigmundsdóttir, alþingismaður og bóndi, á Umhverfisráðstefnu sem haldin var á Grand hóteli fyrir nokkru. Sagði hún að í dag væri ekkert til sem héti „ómenntaður bóndi“. Bændur hafi grunnskólapróf, stúd- entspróf, oft iðnmenntun og eða búfræðipróf. Þá væru bændur einnig að sækja símenntunarnámskeið hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins, Bændasamtökum Íslands og fleiri stofnunum. Bændur og landgræðsla Benti Jóhanna á tengingar bóndans við hin ýmsu svið þjóðfélagsins eins og við uppgræðslu lands. „Samstarf bænda í landgræðslu og ferðamennsku snýst mikið um gagnkvæmt traust og skilning. Þeir sem starfa við landgræðslu verða að sýna bændum skilning á þeirra starfi og öfugt, alveg eins og bændur verða að sýna þeim sem nýta landið í ferða- þjónustu skilning og öfugt. Því allir þessir þættir geta vel spilað saman. Réttverkandi samspil er ávinning- ur bónda, rétt nýting landsins sem hann hugsar um og hefur atvinnu af að nýta. Verkefnið Bændur græða landið hefur verið í gangi frá 1990. Vel flestir þátttakendur verkefnisins eru sauðfjárbændur enda eiga þeir mesta nýtingu á afréttum og beitarlandi – vilja skila til baka. Mikil umræða um beitarþunga, beitarstýringu og ofbeit síðustu misseri. Árið 2000 var gerð viðhorfs- könnun hjá þátttakendum og sýndi hún að enginn var óánægður með verkefnið, svörun könnunarinnar var yfir 95% þeirra sem haft var sam- band við úr nærri 300 manna hóp. Landgræðsla er kennd á Hvann- eyri, búfræðingar þurfa að taka áfanga í landgræðslu, í Sauðfjárskólanum er komið inn á fóðuröflun, beitarstjórn- un, skipulagða beit vor og haust, sumarbeit á afréttum og heima- löndum. Hvati er til að hafa einnig Nautgripaskóla og Hrossaskóla þar sem inn á þetta væri komið. Landgræðslufélög eru um allt land ásamt skógræktarfélögum sem spila stóran þátt í landgræðslu bænda (Skógarbændur). Þó að þetta verkefni, Bændur græða landið, hafi byrjað fyrir 25 árum þá hafa íslenskir bændur stundað uppgræðslu lengur en það. Þeir hafa heft sandfok, stöðvað rof, jarðvegseyðingu, dreift heyi og skít á bert land þar sem þeir hafa náð að græða upp, enda fellur til mikið magn af lífrænum úrgangi á hverju býli. En ætli fólk flokki þetta sem upp- og landgræðslu þegar að hún er óskipulögð? Til dæmis ef heyi og skít er hent á þann bera blett sem næst er vinnusvæði eða búsetu þar sem vinnuhagræðing er að leiðarljósi.“ Grunnur að sjálfbærum landbúnaði Jóhanna varpaði upp þeirri spurn- ingu hvers vegna bændur ættu að græða upp land og svaraði henni jafn harðan. „Bændur hafa lífsviðurværi sitt af íslenskri náttúru, það er þeirra hagur að landið sé vel þétt, gróðri vaxið og undirbúið undir hvaða nýtingu sem er, beit eða aðra uppbyggingu.“ „Við fengum jörðina að láni frá börnunum okkar“ Þá benti hún á að umhverfis- sjónarmið væru líka hluti af hag bænda. Þá væri uppgræðsla góð fyrir landkynningu, íslenska náttúru og til að viðhalda lífríki og ákveðinni plöntuflóru. Með landvinningum og beitar- stýringu væru bændur að fá meira land til umráða, meira land til að rækta tún og meira land til að beita. Það léttir um leið þunga af því landi sem fyrir er. Endurheimti landgæði og legði grunn að sjálfbærum land- búnaði og betra ástandi lands til næstu kynslóðar. „Við fengum ekki jörðina að gjöf frá foreldrum okkar, við fengum hana að láni frá börnun- um okkar.“ Sagði Jóhanna að oft vildu bænd- ur gera enn betur í landgræðslumál- um, en á stórum búum væru oft fáir við störf og því væri einfaldlega ekki tími aflögu til að sinna slíkum verkefnum. „Það er margt fleira sem þarf til að ná árangri við að græða upp land heldur en að fá fræ og leiðbein- ingar, stundum vantar líka fjármagn til viðhalds eða lagningu girðinga til að stjórna ágangi búfénaðar á svæðið. Árið 2014 voru um 500 virkir þátttakendur (sveiflast milli ára) og unnið var með um 5.000 hektara svæði. Með verkefninu hefur skilning- ur bænda á landnotkun og land- græðslu aukist og það eflir menn til frekari þátttöku að sjá árangur verkefnisins. Landið sem áður var ónýtanlegt er orðið flott til útivistar og kræsi- legra fyrir uppbyggingu.“ Nefndi Jóhanna nokkur dæmi þar sem uppgræðsla og skógrækt hafa breytt aðstæðum. Þar sem áður hafi verið nánast auðn, aðeins einstaka snarrót, væri allt í einu orðið gróið land. Það hafi síðan verið hægt að nýta undir sumarhúsabyggð. Ferðaþjónustubændur nýttu sér uppgræðslu með trjám til að fá skjólsælla svæði þar sem þeir reistu veitingasal, gistihús og tjaldstæði. Árangurinn væri þegar byrjaður að sjást og yrði greinilegri eftir því sem trén hækkuðu. Þá sagði hún að skjólbelti geti myndað falleg svæði í kringum lög- býli, til dæmis komið í veg fyrir að vélaskemma og vélar sjáist frá vegi. Það sé bæði umhverfisbætandi fyrir ferðamanninn sem á leið hjá og gæfi ábúendum meiri frið með sitt. Þá hafi bændur aukið skjólbeltagerð við tún, akra og grænmetisgarða til að ná betri uppskeru. Ferðaþjónusta bænda Jóhanna kom inn á ferðaþjónustuna og þátt bænda í þeirri uppbyggingu. Sagði hún að með því að bændur hlúðu vel að landinu kæmi það þeim til góða í ferðaþjónustunni. Þegar landið er farið að líta vel út vekur það áhuga og möguleika á gönguferðum, jeppaferðum og veiði- ferðum. Þar þyrfti þó að huga að því sem mikið er í umræðunni eins og utanvegsakstri. Í hestaferðum þyrfti einnig að huga að umhverfi og ásýnd beitarsvæða og úthaga. Auk þess þyrfti að huga að dýra- og plöntu- lífríkinu – fuglaskoðun, plöntufræði og merkilegum svarðarnautum, heit- um laugum, heitum uppsprettum og umhverfinu í kringum þær. Þá nefndi hún m.a. að sveitaheim- sóknir væru að verða algengari t.d. í smalamennskur og nýtingu náttúru til matargerðar s.s. fjallagrös, ber, kræklingur, vatnafiskur, krydd, og sveppir. Ekki mætti raska tegundum, frekar að búa til vistvænlegt umhverfi fyrir þær. Gróður mætti nýta til að lita garn, og í snyrtivörur og sápur. Þá spurði Jóhanna hvað við ætl- uðum að selja ferðamönnum. „Við leggjum mikla áherslu á íslenska náttúru, ósnortið landslag, hreina náttúru, gott vatn og loft. Við viljum að fólk upplifi íslenska nátt- úru, ekki auðn. Sjái fjölbreytileik- ann en ekki sandfok. Við viljum að á Íslandi séu bændur sem selja heil- næma vöru til að fæða ferðamann- inn, þá skiptir sjálfbær landbúnaður meginmáli. Það eru bændur sem stunda búskap, landgræðslu og ferðaþjón- ustu saman og þeir eru sönnun þess að þessir þættir geta farið vel saman ef við tökum ákvörðun um það og vinnum vel,“ sagði Jóhanna María Sigmundsdóttir. /HKr Bændur í sátt við náttúru og ferðamenn − „Við fengum ekki jörðina að gjöf frá foreldrum okkar, við fengum hana að láni frá börnunum okkar“ „Bændur hafa lífsviðurværi sitt af íslenskri náttúru, það er þeirra hagur að landið sé vel þétt, gróðri vaxið og undir- búið undir hvaða nýtingu sem er, beit eða aðra uppbyggingu.“ Uppbyggingarsjóður Norðurlands úthlutar styrkjum: Fimm verkefni fá styrki upp á 10 milljónir króna Uppbyggingarsjóður Norður- lands eystra hefur úthlutað 10 milljónum króna í styrkvil- yrði til atvinnuþróunar og nýsköpunarverkefna á starfs- svæði Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga. Þetta var síðari úthlutun ársins 2015, en áður var úthlutað í júní sl. Tólf umsóknir bárust en fimm verkefni hlutu styrkvilyrði. Þau verkefni sem hlutu styrk að þessu sinni eru Austurgátt/Fly Europe sem hlaut vilyrði fyrir 3,5 milljónum króna, en verkefnið lýtur að millilandaflugi milli Egilsstaða og London og hefst það næsta vor á vegum Discover the World í sam- starfi við Tanni Travel og Fjallasýn Rúnars Óskarssonar ehf. sem er umsækjandi. Markmiðið er að stuðla að millilandaflugi um aðra flugvelli en Keflavík á ársgrund- velli í framtíðinni og efla þannig ferðaþjónustu og atvinnuupp- byggingu á Norðausturlandi. Hagkvæmni próteinverksmiðju könnuð Verkefnið Próteinmjöl úr jarðhita fékk vilyrði fyrir þremur milljónum króna, en það felst í að þróa aðferð til að vinna próteinríkt fóðurmjöl úr kolefnisútblæstri frá jarðhitavirkjun- um. Umsækjandi er nýsköpunarfyr- irtækið Geo-Protein ehf., sem í sam- starfi við Landsvirkjun undirbýr og kannar hagkvæmni á uppsetningu til- raunaverksmiðju við Kröfluvirkjun. Heimaslóð hlýtur kr. 1,5 millj- ónir í styrkvilyrði. Heimaslóð er tímabundið átaksverkefni um að efla búskap og stuðla að jákvæðri þróun í landbúnaði í Þingeyjarsýslu. Umsækjandi er BSSÞ í samstarfi við BSNÞ, búgreinasamtök í Þingeyjarsýslu, Sparisjóð Suður-Þingeyinga, RML og AÞ. Fuglahátíð á Húsavík Twin town bird festival: Vardö- Húsavík hlaut eina milljón króna í styrkvilyrði. Verkefnið snýst um að efna til fuglahátíðar á Húsavík í beinu framhaldi af fuglahátíð- inni Gullfest í Varanger í Noregi. Að verkefninu stendur Fuglastígur á Norðausturlandi í samstarfi við Biotope, forsvarsmenn Gullfest og Norðurþing. Markmiðið er að styrkja ímynd Norðausturlands sem fugla- skoðunarsvæði á heimsvísu. Mýsköpun: Markaðssetning og kynningarátak erlendis hlýtur kr. 1.000.000 styrkvilyrði. Mýsköpun vinnur að því að koma upp þör- ungaverksmiðju í Mývatnssveit og felst þetta verkefni í því að koma á tengslum við stofnanir og fyrirtæki erlendis sem eru framarlega á því sviði. Sem fyrr segir bárust tólf umsóknir nú og sótt var um tæp- lega 27 milljónir til verkefna með áætlaðan heildarkostnað um 67 milljónir, en til ráðstöfunar voru 10 milljónir. /MÞÞ Forsvarsmenn verkefna sem hlutu styrkvilyrði úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra. Frá vinstri, Hlöðver P. Hlöðversson, Guðrún Tryggvadóttir, Arnheiður Rán Almarsdóttir, Gunnar Jóhannesson, Hermann Bárðarson, Þórhallur Bjarnason og Jóhann Þórhallsson. Mynd / AÞ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.