Bændablaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 59
59Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2015
Danir ekki tilbúnir til að greiða nægilega fyrir sérstöðu landbúnaðarvara:
Þekktur svínabóndi hættir
framleiðslu sérvöru
− kennir versluninni um að pína niður verð á framleiðslunni
Þekktur svínaframleiðandi í
Danmörku, Karsten Westh, ákvað
á dögunum að hætta framleiðslu á
svínakjöti með ákveðna sérstöðu
vegna þess að veitingastaðir og
verslunarkeðjur eru
ekki tilbúin til
að borga full-
nægjandi verð
fyrir vöruna.
Að því er
fram kemur í
Landbrugsavisen
þá mun Karsten
loka fyrirtæki sínu,
Det Bornholmske
Kødkompagni, sem
hefur frá byrjun árs
selt svínakjöt undir
v ö r u m e r k j u n u m
Bryggerigris, Økogris
og Økoskovgris.
Viðskiptahugmynd
Karsten gekk út á að s e l j a
svínakjöt af sérvöldum grísum sem
voru fæddir, uppaldir og slátraðir á
Bornholm.
Kennir verslanakeðjurisunum um
Svínabóndinn kennir nú sérstak-
lega verslanakeðjunum um að sjá
sér ekki fært að borga nægilega vel
fyrir gæðavörur frá honum og
að forsvarsmenn
þeirra vilji fá alltof
stóran hlut í sinn vasa. Kjötið sem
þeir eru tilbúnir að greiða 40–50
danskar krónur á kílóið fyrir er selt
á 150 danskar krónur á kílóið og þar
ofan á bætist virðisaukaskattur.
Karsten gengur harðast út gegn
verslanakeðjunni Coop í dönskum
fjölmiðlum og segir þá tilbúna að
greiða fimm krónur meira fyrir
gæðakjöt frá Bornholm en að við-
r æ ð u r við þá hafi ekki náð
lengra. Einnig er hann
svekktur út í veitinga-
staði í nærumhverfi sínu
sem hafa boðið kjöt frá
honum undir öðrum
formerkjum en rétt eru
og sjálfsagt vegna þess,
að hans mati, að þeir
vilja ekki borga það
verð sem sanngjarnt
er fyrir bóndann.
Útflutningur
á unnu
svínakjöti
til Kína
Á sama tíma greinir
Landbrugsavisen einnig frá því að
nú styttist í að kínversk yfirvöld gefi
grænt ljós á að opna fyrir innflutning
til sín á dönsku elduðu svínakjöti,
eins og pylsum. Tveir þriðju hlut-
ar af kjöti sem rúmlega milljarður
Kínverja neytir er svínakjöt og áætla
Danir nú að með innflutningnum geti
það þýtt 250 milljónir danskra króna
árlega aukalega í danskar útflutn-
ingstekjur. /ehg
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is
Kerruvarahlutir og hlutir til kerrusmíða
í miklu úrvali frá Indespension
Samhliða innflutningi okkar á Indespension kerrum höfum við hafið sölu á
varahlutum og hlutum til kerrusmíða fyrir flestar kerrugerðir, t.d. Indespension,
Ifor Williams o.fl. Eigum á lager mikið úrval varahluta í helstu gerðir bremsu og
hjólabúnaðar fyrir Alko og Knott. Bjóðum einnig sérpantanir.
Nálægð við birgja okkar í Bretlandi tryggir skammann afgreiðslufrest á
sérpöntunum.
Hjólabúnaður, þrýstibremsur, nefhjól, læsanlegir beislis endar,
ljós og ljósabúnaður, bremsuborðar, bremsubarkar, hjólalegur,
hjólnöf, einfaldir beislis endar og margt fleira.
K E R R U R
Heildsöludreifing • Skemmuvegur 10 • Sími 567 1330 • www.hringas.is
• Vörn gegn frosti og tæringu
• Hentugt fyrir alla málma
• Eykur endingartíma
• Kemur í veg fyrir gerlamengun
• Vörn allt niður að -30°C
• Engin eiturefni – umhverfisvænt
• Léttir dælingu
fyrir hita og kælikerfi
frostlögur
Umhverfisvænn
Bændablaðið
á bbl.is og líka á Facebook