Bændablaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2015
Ungliðahreyfing Slow Food með ráðstefnuna We Feed the Planet á Ítalíu:
Bændum fækkar og þekking á
framleiðsluaðferðum glatast
− notkun á áburði og eiturefnum er hömlulaus og matvælaöryggi heimsins stefnt í voða
Í Mílanó á Ítalíu var í október
síðastliðnum haldin ráðstefna á
vegum Ungliðahreyfingar Slow
Food-samtakanna. Tilgangur ráð-
stefnunnar var að vekja athygli á
málstað bænda og smáframleið-
enda í heiminum.
Kveikjan að ráðstefnunni var
heimssýningin í Mílanó, EXPO
2015, en þema sýningarinnar að
þessu sinni var matur og fannst
Slow Food að sýningin gerði iðnað-
arframleiðslu helst til of hátt undir
höfði á kostnað bænda og smáfram-
leiðenda.
Svar við EXPO
Ungliðahreyfing Slow Food ákvað
því að blása til ráðstefnunnar We
Feed the Planet sem eins konar svari
við EXPO. Einungis 6 mánuðir
fóru í að skipuleggja ráðstefnuna
og var 2.500 bændum, framleið-
endum og áhugafólki boðin þátt-
taka. Undirrituð, frá Karlsstöðum í
Berufirði, þáðu boð um að taka þátt.
Matvælaöryggi heimsins
er stefnt í voða
Í opnunarræðu ráðstefnunn-
ar fór Joris Lohman, formaður
Ungliðahreyfingar Slow Food,
yfir kveikjuna að ráðstefnunni og
það vandamál sem matvælafram-
leiðsla í heiminum stendur frammi
fyrir. Framleiðslan færist sífellt á
færri hendur, smáframleiðendum
og bændum fækkar og þekking á
framleiðsluaðferðum glatast. Þannig
verða lönd ósjálfbjarga og matvæla-
öryggi heimsins er stefnt í voða.
Áhugaverður fyrirlestur um
„andgróða“
Ráðstefnan byggðist á fyrirlestrum
og umræðum. Franski heimspek-
ingurinn Serge Latouche flutti
áhugaverðan fyrirlestur um and-
gróða (e. degrowth). Hans kenn-
ingar fjalla um að gróði eigi sér
ekkert annað markmið en að græða.
Eyðing auðlinda svo sem vatns og
lands sé takmarkalaus og úrgang-
ur eigi sér heldur engin takmörk.
Notkun á áburði og eiturefnum er
hömlulaus og ekkert sé hugsað út í
afleiðingarnar, aðeins fjárhagslegan
skammtíma gróða.
Ótti við TTIP-fríverslunar -
samning Bandaríkjanna og ESB
Í umræðum um fríverslun-
arsamninga (e. Global Trade
Agreements) var mikið rætt um
TTIP-fríverslunarsamninginn
milli Evrópusambandsins og
Bandaríkjanna. Samningurinn, sem
er í deiglunni, er mjög umdeildur.
Margir óttast að erfðabreytt mat-
væli eigi eftir að flæða hömlulaust
til Evrópu án þess að neytendur
séu upplýstir um það og evrópsk-
um landbúnaði sé stefnt í voða.
hollan mat fyrir alla og minni sóun. Myndir / Slow Food Youth Network.
Svavar Pétur Eysteinsson og Berglind Häsler, fulltrúar Íslands á ráðstefnu
Slow Food Youth á Ítalíu. Mynd / SVE/BH
Matur framleiddur með sjálfbærum hætti samkvæmt hugmyndafræði Slow
Food.