Bændablaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 49

Bændablaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2015 Hægt er að hefja nytjar á terunn- um tveimur til fimm árum eftir sán- ingu og hámarks uppskera fæst eftir sjö til tíu ár. Runninn getur hæglega náð rúmlega 100 ára aldri en nytjar af honum eru mestar til fertugs eða sextugs eftir aðstæðum. Vex vel í beinni sól og hálfskugga skóglendis. Kýs rakan, vel framræstan, eilítið sendinn og súran moldarjarðveg. Við tínslu á tei eru einungis tvö til þrjú efstu blöðin tínd og við góðar aðstæður er hægt að safna laufinu á tveggja vikna fresti. Til að varðveita bragðgæði telaufanna eru þau þurrk- uð strax eftir tínslu. Auk þess sem telauf eru notuð í te er unnið úr þeim bragðefni sem nýtt eru til að bragðbæta áfenga drykki, mjólkurdeserta, sælgæti, kökur og búðinga. Uppruni og saga Ættkvíslin Camellia telur eitthvað á þriðja hundrað tegundir sem vaxa víða um heim. C. sinensis skiptist í fjögur kvæmi C. sinensis var. sinensis, C. sinensis var. assamica, C. sinensis var. pubilimba og C. sinensis var. dehungensis. Tvær af þeim eru C. sinensis var. sinensis og C. sinensis var. assamica, mest ræktaðar til teframleiðslu. Sú fyrri í Kína en sú seinni á Sri Lanka og Indlandi. Ekki er vitað fyrir víst hvaðan terunninn er upprunninn og plant- an þekkist ekki villt í náttúrunni og því um ræktunartegund að ræða. Ýmislegt bendir til að Camellia sinensis var. sinensis reki uppruna sinn til Yunnan-héraðs í Kína og C. sinensis var. assamica til Assna á Indland og landanna í Suðaustur- Asíu. Í dag er plantan ræktuð á hita- beltissvæðum allt í kringum jörðina. Auk þess sem hún er skrautjurt í görðum á norðlægari slóðum. Nafnið Camellia er í höfuðið á moldóvíska jesúítaprestinum Georg Kamel sem stundaði trúboð og rann- sóknir á plöntum á Filippseyjum í lok 17. aldar. Ræktunaryrki af C. sinensis skipta hundruðum en þau helstu kallast benifuuki, fushun, kanayamidori, meiryoku, saemidori, okumidori og yabukita. Talið er að neysla á seyði te runnans hafi fyrst átt sér stað í Yunnan-héraði í Kína og það drukkið í lækningaskyni. Elstu heimildir í Kína benda til að te hafi verið þekkt þar í landi í allt að þrjú þúsund ár fyrir upphaf okkar tímatals. Elstu rit- uðu heimildir um ræktun terunnans eru aftur á móti mun yngri eða frá því um 40 fyrir Krist. Tedrykkja var orðin almenn í Kína um miðja áttundu öld og þaðan breiddist hún til nágranna landanna, Kóreu, Japan og Víetnam. Þrátt fyrir að te hafi verið drukkið í Himalayafjöllum Indlands varð drykkja þess ekki almenn í landinu fyrr en við hernám Breta og stórrækt- un þeirra á terunnum þar. Fyrstu Evrópumenn til að kynn- ast tei voru portúgalskir trúboðar og kaupmenn sem heimsóttu Kína í byrjun sextándu aldar og kölluðu þeir það chá. Hollenska Austur- Indíafélagið flutti fyrsta tefarminn frá Japan til Evrópu árið 1609. Tedrykkja náði fljótlega vinsældum í hollensku borginni Haag og barst þaðan til Þýskalands, Frakklands og fljótlega með kaupmönnum verstur yfir Atlantshafsála til New York. Te var í boði á kaffihúsum í London 1657 og þegar hefðarmærin Katrín frá Bragansa í Portúgal giftist Karli II Englandskonungi árið 1662 hófst innreið tedrykkju við ensku hirðina. Vegna þess hvað te var dýrt var það ekki fyrr en í upphafi 18. aldar sem drykkurinn náði verulegri útbreiðslu á Englandi og það voru Englendingar sem fyrstir settu sykur og mjólk út í teið sitt. Árið 1770 birti framkvæmdastjóri Twining, sem var stórinnflytjandi tes til Englands, grein þar sem hann hélt því fram að íbúar smáþorps skammt frá London lifðu á því að falsa te. Að sögn greinarhöfundar framleiddu þorpsbúar yfir 20 tonn á ári af telíki sem samanstóð af muldu og ristuðu laufi asktrjáa og sauðfjárskít og í sumum tilfellum blómum yllis til að bæta bragðgæðin. Te átti sinn þátt í sjálfstæðis- baráttu Bandaríkjanna. Árið 1773 klæddust nokkrir sjálfstæðissinnar indíánaklæðum og fóru um borð í flutningaskip sem var að flytja te. Mennirnir hentu farminum í höfn- ina í Boston og segir sagan að hún hafi litið út eins og þykk teleðja. Aðgerðin var til að mótmæla háum skatti Breta á tei til Bandaríkjanna og leiddi að lokum til stríðs milli ríkjanna. Smygl á tei frá Kína fram- hjá einkaleyfi breska Austur- Indíafélagsins leiddi einnig til tveggja stríða milli Breta og Kínverja á nítjándu öld sem kallast ópíum- stríðin. Skelfilegar aðstæður teverkafólks Reglulega berast fregnir af börnum allt niður í sjö ára aldur sem vinna myrkranna á milli við tetínslu hvort sem það er í Kína, Sri Lanka eða Kenía. Árið 2015 birti BBC úttekt á aðstæðum verkafólks sem starfar við tetínslu og tevinnslu á Indlandi. Teið sem umræðir er notað af mörgum af helstu teframleiðendum í heimi. Aðstæður fólksins eru víða mjög slæmar, launin undir lögbundnum lágmarkslaunum og svo lág að í fæstum tilfellum nægja þau fyrir nauðþurftum. Börn og fullorðnir úða skordýraeitri og öðrum varnar- efnum án hlífðarbúnaðar og eitranir af þeirra völdum tíðar. Algengt er að fjölskyldur teverka- fólksins búi á jörðunum þar sem teið er ræktað. Oft og tíðum er bústaður þess kofaræksni með hripleku þaki og þar er hvorki rafmagn, rennandi vatn né salernisaðstaða. Á einu býl- anna voru 464 sameiginleg salerni fyrir 740 heimili, með allt að tíu í heimili, og flest stífluð. Fólkið gerir því þarfir sínar utandyra í opin ræsi eða á milli terunnanna. Bragðbætt og styrkt te Misjafnt er milli þjóða hvort fólk kýs að drekka sitt te með eða án bragðefna. Auk þess sem er hægt að fá grænt og svart te. Munurinn á svörtu og grænu tei felst aðallega í þurrkunartíma laufanna. Svart te er þurrkað lengur en grænt og er um 60% heimsframleiðslunnar af tei af terunnum. Hægt er að fá te með sítrónu-, pip- armintu- eða ávaxtabragði. Jasmín, Darjaeeling og Earl Grey te sem er bragðbætt með bergamótappelsínum sem er súr og perulaga ávöxtur af sítrusætt. Á Sri Lanka þykir gott að krydda te með kanil. Víða í Evrópu er te styrkt með viskíi eða koníaki. Öðrum finnst skipta máli hvort er sett á undan í bollann, teið eða mjólkin. Hægt er að fá te í lausu eða pressað í kökur. Árið 1907 sendi bandarískur tesölumaður út tepruf- ur í litlum pokum sem hengu á spotta. Viðtakendur prufanna komust fljótlega upp á lag með að stinga pokunum í heitt vatn. Það var þó ekki fyrr en eftir heimsstyrj- öldina seinni að te í tepokum varð söluvara. Te á Íslandi Danskir embættismenn voru fyrstir til að flytja te til Íslands á fyrri hluta 18. aldar. Vinsældir drykkjarins virðast snemma hafa orðið tals- verðar og heldri Íslendingar voru fljótir að koma sér upp tekönnu, bollum og kötlum. Framan af var fágætt að almenn- ingur ætti slíkt fínerí en í ferða- bók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar, sem kom fyrst út 1772, segir: „Te og sykur eru nú orðin svo algengar vörur, að næstum því hver góður bóndi á nú teáhöld.“ Bjarni Pálsson landlæknir, annar höfundur ferðabókarinnar, átti teketil þegar hann lést í Nesi við Seltjörn árið 1779. Hjónin Þorkell og Guðrún í Ketu á Skaga, sem lét- ust árið 1785, áttu teketil, svarta tekönnu úr leir og aðra með tréloki, þrjú bollapör og þrjár teskeiðar. Í eignauppgjöri sextugs bónda á Melrakkasléttu, sem lést sama ár, segir að hann hafi átt stóran teketil úr eir, annan lítinn og tekönnu úr tini. Í dag er slíkur munaður á hverju heimili og sumir drekka aldrei neitt annað en grænt te úr örþunnum postulínsbollum með litla fingur út í loftið. Siðir við tedrykkju eru formfastir víða í Asíu. Árið 1907 sendi bandarískur te- sölumaður út teprufur í litlum pokum sem hengu á spotta. Það var þó ekki fyrr en eftir h e i m s s t y r j - öldina seinni að te í tepokum varð söluvara. Þrátt fyrir að tetínsla sé mest með höndum er hún sums staðar vélvædd. Tetínsla á Sri Lanka. Við tínslu á tei eru einungis tvö til þrjú efstu blöðin tínd og við góðar aðstæður er hægt fresti. Mynd / VH Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is Láttu ekki hálkuna koma þér að óvörum. Skrúfaðir ísnaglar í ýmsum lengdum, fyrir dráttavéla- og vinnuvéladekk, vélsleðabelti ofl. Einnig karbítnagla til að skrúfa undir skó. ÍSNAGLAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.